Ég skoðaði þessi PingPong búr í gær og leist ekkert sérstaklega vel á þau fyrir utan verðið, búrin eru löng og mjó og henta ekki hvaða fiskum sem er en það sem mér leist verst á eru lokin, þau virtust ekki vera vönduð smíð og ég hvet þá sem hafa hug á að fjárfesta í svona búri að skoða þau vel og líka leita sér upplýsinga um hvort ljósin standist Íslenskar kröfur.
Þau heita jinlong og voru flutt inn af einstaklingum sem ætluðu að selja þau í Englandi en það gekk ekki upp og þá voru þau flutt hingað.
Ljósin standast íslenskar kröfur, en gert er ráð fyrir að filterinn sé í lokinu og þegar ég skoðaði þessi búr í Keflavík þá vantaði of mikið af búnaði sém þarf til að filterinn í lokinu virkaði.
Já, þetta er örugglega ekki alslæmt. Ég held samt að ég myndi hringja í tryggingafélagið mitt og athuga með vatnstjón af völdum fiskabúrs svona til að vera viss áður en ég fengi mér búr sem hljómar of ódýrt til að vera gott
Maður þarf að kíkja á þetta við tækifæri, svo maður viti hvað maður er að tala um
keli wrote:Já, þetta er örugglega ekki alslæmt. Ég held samt að ég myndi hringja í tryggingafélagið mitt og athuga með vatnstjón af völdum fiskabúrs svona til að vera viss áður en ég fengi mér búr sem hljómar of ódýrt til að vera gott
Maður þarf að kíkja á þetta við tækifæri, svo maður viti hvað maður er að tala um
fasteignatryggingin borgar vatnstjónið en þú þarft heimilistryggingu/innbúskaskó til að fá búrið sjálft bætt
Veit ekki til þess að það sé nokkuð að þessum búrum og held að fólk ætti bara að vera ánægt með að geta fengið svona búr á hlægilegu verði ástæðan fyrir verðinu er ekki að þessi búr séu drasl
veit hver þessi einstaklingur er sem pantaði þaug.en er mjög samála vargi um að þau henti ekki öllum fiskum.það eina sem mér dettur i hug er skraufiskabúr.held að þau séu öll um 40 cm breið.en já þaug eru ódyr.
personulega myndi ég samn ekki kaupa þau þótt þau kostuðu 50þ vegna asnarlegrar hönnun á þeim.sry gylli...
Þessi búr eru ekki verri en önnur búr til sölu hér á landi.Það munar 5cm á breidd og á t.d Juwel búri sem eru einnig framleidd í Kína þau virka mjórri en "venjuleg" búr afþví að þau eru rúnuð,ljósin eru ekki verri en hver önnur og skáparnir sterklegri en sambærilegir skápar sem ég hef séð og að búrin séu of mjó fyrir suma físka er kjaftæði, ef eitthvað ræður því hvað er hægt að hafa í búri þá er það lengdin ,þannig að efað þetta er ekki díll til að skoða þá veit ég ekki hvað er ....... og glerið er þykkt í þessum búrum og frágangur í lagi eftir því sem best fæ séð.
animal wrote:Þessi búr eru ekki verri en önnur búr til sölu hér á landi.Það munar 5cm á breidd og á t.d Juwel búri sem eru einnig framleidd í Kína þau virka mjórri en "venjuleg" búr afþví að þau eru rúnuð,ljósin eru ekki verri en hver önnur og skáparnir sterklegri en sambærilegir skápar sem ég hef séð og að búrin séu of mjó fyrir suma físka er kjaftæði, ef eitthvað ræður því hvað er hægt að hafa í búri þá er það lengdin ,þannig að efað þetta er ekki díll til að skoða þá veit ég ekki hvað er ....... og glerið er þykkt í þessum búrum og frágangur í lagi eftir því sem best fæ séð.
ég verð að hringja í Þjóðverjana sem smíða juwel og láta þá vita að það sé búið að færa verksmiðjuna til kína áður en þeir mæta í vinnu á mánudaginn
þeir hafa verið snöggir að færa verksmiðjuna þar sem hún var í Þýskalandi í gær
Ég skil nú ekki af hverju þeir sem eru svona hrifnir af Kínabúrunum eru endilega að bera þau saman við Juwel en ekki aðra framleiðendur en fyrst svo er tel ég Juwel búrin að öllu leiti betri en þessi búr fyrir utan það að kínabúrin bjóða betra verð pr. lítra.