smá spurning

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

smá spurning

Post by Agnes Helga »

sæl veriði.

Ég var að pæla, er nóg að sjóða grjót og steina ef maður ætlar að setja það í búr? OG bull sjóða þau?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Harðsjóða það bara. :)

Persónulega sýð ég aldrei neitt sem kemur úr Íslenskri náttúru, skola bara með heitu vatni.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Vargur wrote:Harðsjóða það bara. :)

Persónulega sýð ég aldrei neitt sem kemur úr Íslenskri náttúru, skola bara með heitu vatni.
Þetta er ekki bara út ísl. náttúru.. er samt að pæla í að fara í steinaleiðangur með voffana mína mér til félagsskapar í fjöruna :wink:

Takk fyrir svarið :D og ég fer að sjóða steina :P
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Jæja, sauð hrafntinnu (svarta gljáandi steina) og hvíta steina, kemur skemmtilega út.. Tetrurnar eru að fíla þetta held ég.. Eru að farnar að hegða sér öðruvísi og synda meira um í hóp...

Samt smá slagsmál á milli gúramana... gullgúramakonan sem ég keypti var svo bara karlmaður, held ég ( er ekki alveg viss) :) svo það er rígur á milli þriggja gúrama.. rosa stuð í búrinu alltaf..

Úff hvað mig langar til a starta síklíðu búri!! en á maður ekki að bíða aðeins með það og halda hinum fiskunum? Tími þeim alls ekki, finnst þeir flottir þótt þeir séu "venjulegir fiskar" bara og hef ekki pláss f. mörg búr.
Last edited by Agnes Helga on 11 Sep 2007, 17:20, edited 1 time in total.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Held það sé afskaplega erfitt fyrir fisk að vera karlmaður :wink:
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Já, ég held það sko.. Veit nú ekki hve lengi þetta ástand á eftir að ríkja? Kemst á svona goggunarröð hjá þeim eða? Aðeins skárra á milli þeirra eftir þessar breytingar þó.. en ég veit það breytist eftir smá tíma :x
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Post Reply