Birkir 06-07 Ameríku síkliður

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Birkir 06-07 Ameríku síkliður

Post by Birkir »

Jahérna. Loksins fæ ég minn eigin þráð.
400l juwel búr. Er með tvær dælur, eina Eheim og eina Rena. Á eftir að ákveða hvor þeirra fer í búrið.
Lok með tveimur perustæðum. Og nú þarf ég smá ráð frá ykkur meisturunum.


Ég verð með ameríkusíkliður, rætur og plöntur. Ameríkusíliður eru ekki fyrir mikla lýsingu. Hvernig perum mælið þið með? Einni blárri (til að ná fram og ýta undir litinn á þeim...?) og aðra hvíta?
Last edited by Birkir on 15 Dec 2006, 13:26, edited 1 time in total.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

blessaður tengdu bara báðar dælurnar við búrið . ! gerir ekkert nema gott. .

það er fín hugmynd að fá sér litaða peru með hvítri . . hefur þessa litaða þá fyrir aftan hvítu , velur lit eftir því hvaða litir eru í fiskunum . . ég er td. með rauðleita peru til að ná betur fram rauða litnum í eldmunnunum og óskar. hef einnig verið með gular og bláar .. allt eftir stemningu og íbúum búranna.. maður ætti kannski að smella fleiri rauðum í tilefni jólanna?
Last edited by Hrappur on 11 Dec 2006, 18:04, edited 1 time in total.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

takk fyrir það kjépps.
Ég mun leggja áherslu á green terror og firemouth.

en þarf maður ekki að vara sig á styrkleika peranna? ef svo er, getið þið gefið mér tölur? hvar er hagstæðast og best að versla svona perur.

og enn önnur pæling varðandi perur. eru einhver færdæmi fyrir því að hafa hvíta, bláa og rauða?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sammála nebba, báðar dælur í búrið, það gerir ekkert nema gott.

Varðandi perur þá mundi ég fara hefðbundnu leiðina, eina daylight og eina warmwhite, hugsanlega skipta warmwhite fyrir coolwhite deluxe.
Ég er með hvoru tveggja í búrum hjá mér og sáttur með bæði, coolwhite peran birtir mikið upp búrið en er líka frekar mikil þörungaframleiðsla.

Ertu búinn að fá búrið ?
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Vargur wrote:Ertu búinn að fá búrið ?
Nei herra minn. Fæ það eftir rúma viku.
ef ég fer inn í perubúð (hvaða?) á ég þá bara að segja "eina daylight og eina warmwhite"?

á ég ekki að fá mér rauða eða bláa.... eða heita þær einhverjum meira pro nöfnum en bara rauða peran?

Varðandi tvær dælur: á ég að láta þær koma ofan í búrið á sama stað?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

ef ég fer inn í perubúð (hvaða?) á ég þá bara að segja "eina daylight og eina warmwhite"?
Það væri mjög gott ef þú ætlar að kaupa svona perur. :wink:

Dayligt er bláleit og warmwhite er gulleit, eina rauða peran sem ég veit um önnur en jólapera heitir homelight.

Dælurnar staðsetur maður vanalega sitthvoru megin í búrinu, reyndar hefur mig langað til að prófa að hafa inntök á tveim dælum á sama stað til að fá meira streymi inn í dælurnar.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

ert þú með ameríkana í búrinu? ég spyr af því að þeir eru ekki með eins æpandi liti og afríkanar. er að spá hvort þetta perumix sem þú ert að mæla með nái fram sem bestu litum úr mínum fiskum.

djöfull er ég spentur.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

Persónulega finnst mér fallegast að nota hvítar perur frá Arcadia eða Sylvania. Sérstaklega ef þú ert með greenterror þá færðu bestu litina úr honum með þannig perum.

Ég var með bláa peru í Frontosa búrinu til að framkalla bláa litinn þeirra. En mér fannst það alltaf gervilegt og setti bara hvítar freshwater perur og þá voru þeir miklu eðlilegri og flottari.

Þú kaupir bara perur í fiskabúr.is sem passa í 400l Rio (36w held ég). Þar sem ekki eru speglar í lokinu er það frekar mild birta sem hentar ameríkusíkliðum.

Ég er sjálfur með 2x 400l Rio búr. Mér finnst perurnar sem fylgja búrinu alveg afleitar (sérstaklega þessi gula)og ég skipti þeim út fyrir Arcadia eða Sylvania perur. Eftir það urðu fiskarnir miklu litríkari og bara allt annar blær yfir búrunum og ég nota ekki aðrar perur í dag.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er sammála þessu, gula warmwhite Juwel peran er ekki nógu góð, ég hef skipt henni út líka.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Takk fyrir þetta piltar.
Vargur ég verð i bandi við þig síðar varðandi einkapóstinn.


Ég fæ búrið að öllum líkindum á morgun.
Planið hjá mér er að setja sand, vatn, steina og rætur í þetta á morgun og sunnudaginn.
Ég hef sett upp búr nokkrum sinnum en það er alltaf svona þegar maður fær sér nýtt búr þá verður maður svo æstur og spenntur og þá vil ég alltaf fá inpútt frá reyndu fólki.

Hvernig hafið þið þetta þegar þið eruð að starta.Hversu lengi látið þið vatnið taka sig áður en þið setjið plöntur og fiska í? Ég er að hugsa um að hafa þetta gangandi í svona viku eftir að plöntur eru komnar í og kannski nokkrum neon tetrum sem tilraunadýr og sjá hvernig þetta tekur sig áður en ég fer að setja síkliður í búrið.

Hvaða efni setið þið vatnið (flóru/bakteríuefni sem maður kaupir í búðum), á ég að setja eitthvað í jarðveginn til að undirbúa komu plantnanna?
Einnig hef ég heyrt fólk tala um matarsóda og salt í þessu samhengi.

Öll svona start upp þekking ykkar væri vel þegin. Ég verð með tvær tunnudælur í gangi. Hlakka til að sjá hvernig það kemur út.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Þegar að ég er að starta búrum þá eru oftast komnir fyskar á innan við 48 tímum, set engin efni í búrið eða neitt slíkt, ég tek reyndar stundum vatn eða sand úr öðru búri sem hefur gengið í einhver tíma og set í búrið

Matarsódinn held ég að sé til að hækka pH gildið
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Persónulega geri ég þettta nokkurn veginn svona:

Set sand, grjót og rætur í búrið, fylli með vatni. Ég er ekkert sérstaklega að bíða með að setja fiska í búrið, skelli þeim bara í ef hitastigið er rétt eða bíð í mesta lagi þar til daginn eftir.

Læt búrið malla með fiskum í nokkra daga og læt fiskana búa til næringu fyrir plönturnar, fjarlægi þá helming vatni svo auðveldara sé að planta.

Ég nota aldrei nein efni í vatnið, læt flóruna bara byggjast upp, efni geta gefið mönnum falskt öryggi. Ég passa mig bara á að vera duglegur í vatnskiptum 1-3. mánuðinn.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Takk fyrir góð drengir.

Hversu hátt/lágt á Ph gildið að vera fyrir ameríku síkliður?
Er ekki hægt að kaupa mæli svo maður þurfi ekki að vera að hlaupa með endalaust af prufum í búðirnar.

salt?

Sandur: á ég að hafa hann grófan eða fínann, hvað fíla þessar elskur?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sandurinn er bara smekksatriði, persónulega kann ég best við fínan.

Salt er ágætt í hófi, ekki mikið ef þú ætlar að vera með gróður, ég set stundum ca eina lúku í 500 l.

Hafðu engar áhyggjur af pH, ef þú setur Íslenskt vatn :) í búrið og ætlar að vera með Amerískar sikliður. Vatn, hefðbundinn sandur eða möl, trjárætur og leirpottar, þá er pH í fínu lagi, fiskarnir þola mjög breitt pH en allar breytingar og sveiflur eru slæmar.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Búrið er núna við hliðin á sófanum mínum. Ég er að velta fyrir mér hvar ég á að hafa það. HAldið þið að það væri of mikið áreiti fyrir fiskana þegar fólk er að setjast í sófan þarna nokkrum sinnum á dag. Ætti ég að hafa búrið annarstaðar?

Image

Málið er að þetta er ekki stór íbúð þannig að nú er að finna hvar það á að vera svo ég geti hafist handa.

með von um skjót viðbrögð :wink:
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Já flott búr. Er þetta 400 litra Juwel búr?
Þetta er nánast alveg eins og mitt sem er af þeirri gerð :)

Ég er með mitt i stofuni og það er i góðu lagi svo ég get ekki seð að það sé neitt að þvi að planta þessu þarna.

Hvaða sikliður ertu búin að velja saman?

Gangi þér vel

Kv Ólafur
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Ég ætla að reyna að láta Green Terror og Firemouth fyrst um sinn....
Aðal málið er að koma dælunum og þessu í gang.
Er með Rehna og Eheim sem ég ætla að setja í. Er að því núna. Rena dælan eru mikil vísindi sem ég skil ekkert í :oops:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Til lukku með búrið.

Sikliður eru yfirleitt ekki stressaðar vegna umgangs nema síður sé, þær koma yfirleitt strax á móti manni þegar maður birtist við búrið í von um að fá eitthvað í gogginn.

Rena Xp dælurnar eru mjög einfaldar í notkun en geta virst flóknar fyrst, ertu í einhverjum vandræðum með hana ?
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Vargur wrote:Til lukku með búrið.

Sikliður eru yfirleitt ekki stressaðar vegna umgangs nema síður sé, þær koma yfirleitt strax á móti manni þegar maður birtist við búrið í von um að fá eitthvað í gogginn.

Rena Xp dælurnar eru mjög einfaldar í notkun en geta virst flóknar fyrst, ertu í einhverjum vandræðum með hana ?
Já, það er svo mikið að rörum, krönum, börkum og aukadóti að ég skil ekkert í þessu. En ég er alltaf svona þegar ég er æstur, þá trúi ég að ég viti ekki neitt.
Veit ekki hvort þið þekkið Georg í Kópavoginum, en þetta er hans búr og Renadælana hans. Veit ekki hvernig kappinn fór að því að láta slönguna úr henni draga alla leið ofan í búrið. Kannskie r ég að gera eitthvað vitlaust, ef ekki þá þarf ég að druslast út í búð og kaupa lengri slöngu.
Ekkert smá hvað maður verður óþolinmóður þegar búið er að finna búrinu stað... þá vill maður vera í þessu bara á fullu og koma vatni í þetta.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Takk fyrir hamingjuóskirnar Vargur. Þetta er svo spennandi. Ég vil fara að setja vatn í það núna. Er bara að bíða eftir bíl svo ég geti farið að hnubbla sandi. Vantar ljósan sand þar sem búrið er svart og bakrunnurinn er svartur. Ma ekki vera of mikið svart.
Einhverjar hugmyndir um ljósan sand?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég veit að Georg var ekki með Rena dæluna í notkun þannig það getur verið að það vanti slönguna fyrir hana, þá er bara að kaupa slöngu og koma dælunni í notkun í rólegheitunum, hin dælan er feyki nóg til að byrja með.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég er með Rena Filstar XP3, veit ekki hvort hún sé eitthvað lík þinni.
Hún er ekki svo flókin, reyndar setti ég hana ekki saman sjálf.

Sjálfsagt er málið að vera slakur þegar maður setur þetta saman og reyna að hugsa rökrétt, þekki það sjálf að vera svona æst og klúðra öllu. :roll:
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

slipslips: rétt hjá þér
Ólafur: jú þetta er þannig búr.


Fór þarna á svæðið þar sem BM Vallá og fleiri malar-pimps hafa aðsetur sínar. Ætlaði að nabba sandsprufum í poka en ég var ekki að finna neitt því að ég vil hafa sandinn eins "náttúrulegan" og ég get. Hvítur og kolbikarsvartur eða steingrár sandur var ekki að meika það.
Einhverjar tillögur um hvar ég get fengið autentic útlítandi sand fyrir ameríkubúr?
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

poulsen í skeifunni 2 er með pool filter sand í 25 kg pokum sem er svona leirljós að lit. .

en ég hugsa að ég myndi vera með svartan sand í þessu búri einmitt vegna þess að allt annað er svart.

fiskar sýna mikla og góða liti í þannig umhverfi og annað sem er í búrinu skín skært ef svo má að orði komast.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Birkir wrote:Ég ætla að reyna að láta Green Terror og Firemouth fyrst um sinn..:

ég er nokkuð viss um að GT eigi eftir að slátra öllu sem fer með þeim í þetta búr (það er of lítið). .. ekki síst ef þú nærð pari í GT , ein kelling yrði kannski til friðs ef hún fengi sitt pláss . aflsmunur og grimmdarmunur á fullorðnum GT og FM eru svona svipaður og á FM og gúbbí , no contest.

en svo er aldrei að vita ef fiskarnir alast upp saman og nóg af felustöðum .
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

nebbi wrote:
Birkir wrote:Ég ætla að reyna að láta Green Terror og Firemouth fyrst um sinn..:

ég er nokkuð viss um að GT eigi eftir að slátra öllu sem fer með þeim í þetta búr (það er of lítið). .. ekki síst ef þú nærð pari í GT , ein kelling yrði kannski til friðs ef hún fengi sitt pláss . aflsmunur og grimmdarmunur á fullorðnum GT og FM eru svona svipaður og á FM og gúbbí , no contest.

en svo er aldrei að vita ef fiskarnir alast upp saman og nóg af felustöðum .
Takk fyrir góð ráð höfðingi. Ég veit ekki með svartan sand, eins og áður segir þá er ég ekki mikið fyrir að hafa svona mikið svart inn í stofunni minni. Búrið sjálft með bakgrunninum er eins Frúarkirkjan í Dresden eftir loftáris bandamanna í heimstyrjöldinni síðari.

Ég hef heyrt þessar spár varðandi Green Terror og ég tek þær alvarlega. Það er þó þannig að fiskó á mjög unga GT til sölu þannig að ef þær eru smáar og alast upp með öðrum fiskum þá gæti þetta gengið. Ég hef heyrt þá getgátu jafn oft og þá að þær geri öllum öðrum fiskum lífið leitt. Við sjáum til. Ef svo er þá sel ég þær bara.

Að því sögðu þá væri gaman að fá Green Terror sambúðarreynslusögur.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Keypti sand í Poulsen í dag. Fékk 25 kíló af tandurhreinum og ljósum sand á 1500kr. Blanda blandaði því við þann sand sem ég átti fyrir og nú þarf ekki mikið upp á svo ég geti farið að setja vatn í búrið. Þarf bara að kaupa mér nýja fötu eða einhvern andskotann til að fara með vatnið í. Nenni ekki að hlaupa í marga klukkutíma með afskorna tveggja lítra kókflösku :shock:
Pósta mynd eftir vinnu.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvernig væri að flytja vatnið í slöngu ? :wink:
Sú flutningsleið virkar yfirleitt best í í búr sem eru stærri en 50 l. :P
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Vargur wrote:Hvernig væri að flytja vatnið í slöngu ? :wink:
Sú flutningsleið virkar yfirleitt best í í búr sem eru stærri en 50 l. :P
Ég spáði í það en þar sem ég er alger fáviti þegar kemur að heimilisverkfærni (nema auðvitað að elda mat og þrýfa, það er mín deild) þá veit ég ekki hvernig á að festa slöngu á venjulegan eldhúskrana sem er ekki með skrúfgang.

Varðandi samlífið: Myndu ekki Grenn Terror og Salvini gera Utaka síkliðum lífið leitt?
dellukall
Posts: 29
Joined: 04 Dec 2006, 15:16

Post by dellukall »

Farðu varlega í trjárætur, þær eru ekki sérlega vistvænar fyrir síklíður
þar sem vatnið verður súrt af þeim,aftur á móti tilvaldar fyrir fjölgun á brúsknefjum og fleiri botnfiskum.
Matarsóti hækkar mikið rétt ph gildi en aðeins til skamms tíma.
Salt getur verið gott að setja í búrið ef þér finnst fiskarnir "klóra sér".
Post Reply