hvernig og afhverju?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

hvernig og afhverju?

Post by Agnes Helga »

Afhverju eyðast kuðungarnir á eplasniglunum upp? Hvað vantar? og hvernig á ég að sporna gegn þessari eyðingu? eða rotnun? þetta lítur smá þannig út :/

2 af 3 sniglum voru dauðir áðan, en þetta voru samt gamlir sniglar frá eldri bróður mínum :( Gamlir og góðir..
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það vantar kalk í vatnið, smá skeljasandur eða nokkrar skeljar duga yfirleitt.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Hvernig skeljar þá? :oops: en geta gullfiskarnir ekki drepist af skeljasandi? þeir eru nu alltaf að taka steina upp í munninn..
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvernig skeljar ? uhh hnéskeljar :roll:
Gullfiskarnir ættu að vera save þó smá skeljasandur eða skeljabrot séu í búrinu. Reyndar eru gullfiskarnir sennilega þó stór hluti af skýringunni á slappleika sniglanna, gullfiskar og eplasniglar eiga yfirleitt ekki saman vegna þess að gullfiskarnir eru sífellt að kroppa í sniglana sem veslast þá upp og drepast.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Vargur wrote:Hvernig skeljar ? uhh hnéskeljar :roll:
Gullfiskarnir ættu að vera save þó smá skeljasandur eða skeljabrot séu í búrinu. Reyndar eru gullfiskarnir sennilega þó stór hluti af skýringunni á slappleika sniglanna, gullfiskar og eplasniglar eiga yfirleitt ekki saman vegna þess að gullfiskarnir eru sífellt að kroppa í sniglana sem veslast þá upp og drepast.
Já, sko ég var að tala um, er í lagi að setja svona útlenskar skeljar í? Þarf ég að sjóða þær? Skeljasandur er ekki beint að ganga þar sem ég er með dökka fína möl í botninum..

Já, ég var að hugsa um að gefa gullfiskana mína.. en þeir eru nú samt flottir finnst mér.. Var að hugsa um að skipta þeim út fyrir eitthvað.. :) Langar í fleiri skalara.. :P
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Allar skeljar ganga en gættu þess að erlendu skeljarnar séu ekki lakkaðar eða jafnvel bara skrautskeljar úr harðplasti eða postulíni, þá gera þær ekkert gagn.
það þarf ekkert að sjóða neitt sem fer í fiskabúr, bara skola vandlega með heitu vatni.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

já, okey takk f. svörin :) þetta eru bara skeljar sem ég tók af strönd í portúgal
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Post Reply