180L Malawi búr

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
gumbo
Posts: 36
Joined: 29 Sep 2007, 13:43
Location: Uppá "heiði"

180L Malawi búr

Post by gumbo »

HæHæ. Ég er nýr í bransanum :D .
Ég fékk mér 180L juwel bur. Er ekkert smá ánægður með þetta.
Hérna eru myndir af burinu :D

Image

Image

Image

Hvernig líst ykkur á?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Mér finnst grjóthleðslan mega flott hjá þér. Mættir setja litlu hvítu steinana aðeins ofan í mölina, annars verða fiskarnir sjálfsagt ekki lengi að grafa búrið til.
Hvaða sortir (svo maður sletti eins og húsmóðir í jólasmákökubakstri) ertu með?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
gumbo
Posts: 36
Joined: 29 Sep 2007, 13:43
Location: Uppá "heiði"

sortir

Post by gumbo »

Ég er ekki alveg með það á hreinu :D
En ég er með 4 labidochromis caeruleus
2 pseudotropheus kingzeise
2pseudotropheus socolofi og 2 albino socolofi
1 fiðrildafisk
og 5 Synodontis multipunctatus ryksugur.

Ég held að þetta heiti þetta :D. skoðaði bara myndirnar á fiskabur.is og reyndi að finna réttu fiskana miða við nöfnin.
Þessi nöfn koma með tímanum.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Voða fínt.
Þú ruglar saman Kingsizei og Cynotilapia afra (white top), Þú ert með þá síðarnefndu, þeir eru nánast alveg eins og kingsizei í lit og hegðun en þó sitthvor tegundin.
gumbo
Posts: 36
Joined: 29 Sep 2007, 13:43
Location: Uppá "heiði"

vitleysa

Post by gumbo »

já það er rétt hjá "Vargi"
Post Reply