hehe eftir og ekki eftir soldið langt síðan að ég sagði á eftir en já ég fór loks í það að taka myndir af búrinu, var að breyta því í gær tók helming af vatni þreif allan þörung og breitti inní búrinu og er búin að taka fullt af myndum svo að hérna koma þær:
svo eru þeir alveg brjálaðir í þörunga töfluna eða vitamins töfluna (er ekki alveg viss hvað þetta heitir):
Loksins loksins skipti ég um sand í búrinu hef ætlað mér að gera það í marga mánuði en varð aldrei neitt úr því nema núna, setti svartan sand í stað skeljasand og skipti um plaggat aftan á búrinu, ég setti einlitan svartan bakgrunn. keypti nokkrar plöntur en fiskarnir voru svo yndislegir að vera búnir að éta og tæta þær allar daginn eftir en eftir standa eitthverjir stönglar upp úr sandinum. en já í búrinu eru
2 synspilum
2 hardwegi
1 flowerhorn
1 gibbi
2 Nigaraguense
svo eftir smá tíma set ég 1 óskar en hann er í 60 L búri núna vegna þess að ég ætla að leifa honum að stækka meira svo að hann fari að verja sig eitthað,
Jæja það eru komin fullt af hardwegi seiðum núna, hardwegi parið er búið að hrigna 3 sinnum en þetta er 1. skiptið sem það koma seiði, ég veit ekkert hvort ég á að taka seiðin frá þeim og setja þau í 30 L búr eða hvort parið passi seiðin það vel að þau verða ekki étin, hvað haldið þið? í búrinu er hardwegi, synspilum, flowerhorn, óskar og citrinellum allt eru þetta bara litlir fiskar ennþá nema óskarinn hann er ca. 18 cm og búrið er 300 L
svo fylgir 1 mjög óskýr mynd með:
Það er margt búið að breytast í búrinu núna, Hardwegi seiðin hurfu en það leið ekki langur tími þegar þau voru búin að hrigna aftur en er búin að taka parið og seiðin setti þau ein í 180 L búr. í búrinu núna eru 3 óskarar (var einmitt að fá einn í dag hjá honum Gilmore hér á spjallinu) 1 þeirra er 25 - 30 cm, 1 sirka 15 cm og 1 sirka 8 sm. svo er einn Mídas í búrinu líka og talking catfish. fyrir sirka mánuði síðan tengdi ég co2 systemi við búrið og plönturnar hafa stækkað og dafnað mjög mikið síðan þá. en ætla að henda inn nokkrum myndum:
heildarmynd:
Hérna er Talking catfish sem ég keypti í gær uppí fiskabur.is:
mér finnst ólíklegt að þú sjáir kynið en minn/mín er 20 cm og það er enginn hnúður byrjaður að myndast á höfðinu svo að ég er farinn að halda að þetta sé kelling hjá mér.
Flowehorninn hvarf allt í einu ég held að hardweginn hafi drepið hann, en midasinn var alveg til friðs, það þorði engin nálægt seiðunum hjá þeim en er búin að færa hardwegana yfir í annað búr þá er meira líf í þessu búri vegna þess að hardweginn átti allt búrið ef þau voru með seiði