kribbar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

kribbar

Post by Hafrún »

kribba parið mitt er búið að hrigna og er það bara alveg eins og með convictana klekjast út á 3 - 4 dögum og gefa þeim ekkert fyrstu 2 vikurnar og hvað er það sem maður á þá að gefa þeim hef eitthvað heirt um artemiu en er það besta sem að þeir geta fengið eða er eitthvað annað sem að þeir get fengið (og er ekki soldið mál að gefa þeim artemiu vegna þess að þetta þarf að vera í flösku með lofti og eitthvað).
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Já, það tekur örfáa daga að klekjast út.
Ætlar þú að taka seiðin frá eða hafa þau áfram í búrinu?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

Post by Hafrún »

er betra að taka þau frá (þau eru bara ein í búrinu semsagt hængurinn og hrignan í 50 L )passa kribbar seiðin sín eða eiga þau til með að éta þau það er bara einn gróður í búrinu frekar tómlegt búr var akkuratt að fara að bæta í búrið en þegar að ég sá að búið var að hrigna í búrinu ákvað ég ekkert að vera að fikta í því.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég var með kribbapar sem hrygndi og fyrir rest hurfu öll seiði, ég veit þó ekki hver át þau því ég er með fullt af öðrum fiskum í búrinu.
Kribbarnir pössuðu þó vel upp á afkvæmin og fylgdu þeim um allt búr.

Ef þú ætlar að koma þessum seiðum upp myndi ég taka foreldrana frá eftir nokkra daga og þá þarf líka að fóðra þau með sérstöku seiðafóðri eða mylja flögur mjög smátt. Þú getur fengið fóður í næstu verslun, kostar ekki mikið. Svo er líka hægt að fá frosið en það kostar aðeins meira.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

Post by Hafrún »

allt í lagi ,er 30 L nógu stórt fyrir kribba parið seinna meir þegar að ég tek þau í burtu og hvað myndir þú segja ca. margir dagar þangað til að ég eigi að taka þau frá seiðunum.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég held að 30 ltr. ætti að vera allt í lagi fyrir parið.

Ég myndi taka foreldrana eftir svona viku en það væri líka ágætt að fá álit hja einvherjum öðrum með það.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

seiðin þurfa ekki foreldrana ef engir aðrir fiskar eru í búrinu
en það er flottara að sjá parið með seiðin en líka áhættusamara ef parið fer í fýlu
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

Post by Hafrún »

já ég er einmitt að pæla að hafa foreldrana bara hjá seiðunum þar sem að búrið sem að þau hefðu farið í verður upptekið fyrir aðra fiska sem þurfa meira á því að halda :)
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

Post by Hafrún »

núna var ég að sjá 9 pínulítil seiði hjá þeim parið skiptist á að vera inní hellinum og hjá seiðunum svo það er ábyggilega eitthvað inní hellinum líka :D
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

Post by Hafrún »

ég ætla að setja hérna nokkrar myndir af seiðunum:
það er nú ekkert neitt vða auðvelt að taka myndir af þeim:

Image

Image

og svo ein að stoltum pabba :) :

Image

ég veit að þetta ætti kannski ekki alveg að vera undir aðstoð en þar sem að ég var með þráð þar um þessi seiði ákvað ég bara að setja myndirnar þar líka...
Kristín F.
Posts: 158
Joined: 02 Apr 2007, 17:08

Post by Kristín F. »

Almáttugur!!

Fiskur; Ef þú vilt láta eins og 2 seiði, þá endilega láttu mig vita 'skan :D
Ég er með seiðabúr og auka fiskabúr til að hafa þau í þangað til þau stækka og svol ;)
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

Post by Hafrún »

jæja þá er ég búin að taka seiðin frá kribbaparinu setti þau bara í sér búr kribbaprið var eitthvað að reka þau alltaf útí horn og kellingin að taka þau alltaf upp í sig eins og hún ætlar að éta þau, en svo þegar að ég var búin að vera að filgjast með þessu þá sá ég að parið er búrið að hrigna aftur svo að það getur verið svarið yfir því að þau vor alltaf að reka seðin útí horn, en seiðin eru orðin sjálsbjarga svo að þau eru farin að éta seiðamat og svolleiðis en sambandið með hitann í svona seiðabúri á hann bara að vera eitthvað í kringum 26°c eða meira... :D
Kristín F.
Posts: 158
Joined: 02 Apr 2007, 17:08

Post by Kristín F. »

Tíhí :klappa:

..ég bíð spennt :D

-ha? Hiti?? Jájá, örugglega :P
Hlýtur að vera sami hiti og hjá hinum bara :idea:

Ég hlakka ógó til að fá seiðin hjá þér :dansa:
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

Post by Hafrún »

já þau eru svona svipað og þetta stór núna ____ svo þau eru búin að stækka rosalega mikið seinustu vikuna.
Kristín F.
Posts: 158
Joined: 02 Apr 2007, 17:08

Post by Kristín F. »

Frábært hjá þér ;)

..þú hefur samband við mig þegar þú vilt að ég taki þau :D
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

Post by Hafrún »

allt í lagi :D :D en þarf nokkuð dælu í svona seiðabúr er með 4 convict seiði og dælan er svo kröftug að seiðin eiga erfitt með að synda um búrið,þetta er 30 L búr og ég er með dælu fyrir 60 L átti ekkert annað er ekki í lagi að taka hana bara úr sambandi ef ég passa vel um að skipta um vatn oft.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er hætta á að seiðin lendi í dælunni. Það er gott að setja loftstein ef þú átt svoleiðis.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Fjögur seiði í 30 l búri án dælu ætti að vera í lagi ef þú átt ekki loftdælu, passaðu bara upp á vatnið að gefa ekki of mikið og hafa td eplasnigil í búrinu fyrir matarleifarnar
Þú getur líka sett nylonsokk og teigju yfir dæluna til að seiðin sogist ekki inn.
User avatar
Hafrún
Posts: 173
Joined: 18 Jun 2007, 18:41
Location: Mosfellsbæ

Post by Hafrún »

eitt seiði dáið, er með svo mikið af steinum gróðri og pott að það er svo erfitt að finna seiðin :? svo að ég er að pæla er í lagi að setja þau bara í glært plastbox með engu nema smá sandi og hitara og dælu
Post Reply