Juwel RIO 400.l

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Juwel RIO 400.l

Post by barri »

Eigið þið til stífurnar sem eru þvert ofan á búrinu? Þær brotnuðu báðar hjá mér í dag án nokkurar sýnilegrar ástæðu. Ég þorði ekki öðru ena að lækka í búrinu hjá mér um helming ca. Er nokkuð þorandi að hafa það fullt nema hafa þær í?
Já og kannski verð ef þær eru til
Kv Barri.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þær ættu að vera til. Alls ekki hafa búrið meira en hálffullt þangað til þú skiptir um þær.
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

Post by iriser »

Fyrirgefið að ég spyrji hér, en af hverju ekki að hafa búrið fullt án þess að hafa þessar stífur? Ég er ekki með þær í og hef haft bara eina í marga mánuði og ekkert mál :?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Framleiðandinn mælir gegn því að stífurnar séu fjarlægðar nema aðrar ráðstafanir séu gerðar til að tryggja að langhliðar búrsins brotni ekki undan þunga vatnsins. Það að vera ekki með stífurnar eikur einnig stórlega á hættu á að búrið brotni, td. ef undirstaðan er ekki á sléttum fleti eða eitthvað álag myndist á búrið.
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

Post by iriser »

Ok, gott að vita það, þá er bara að skella þessari sem ég á, á búrið en hin brotnaði :? Verð þá að koma og fá svoleiðis ef það er til.
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

Post by iriser »

Jahér, ekki vissi ég þetta, nú bara passar þetta ekkert :? Það vantar cm uppá að ég geti fest þetta í, þ.e. þar sem þetta á að vera. Passar ef ég set það nálægt endunum en þarf þetta ekki að vera þarna við 1/3 og 2/3??
Þarf ég þá ekki að taka slatta af vatninu úr til að geta fest þetta eða er það bara ekki hægt?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er ekki óeðlilegt að stífan passi ekki ef búrið er fullt af vatni, stífan er eimitt til að hindra að langhliðar búrsins svigni undan þunga vatnsins.
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

Post by iriser »

Ok, takk fyrir þetta. Fer í það á morgun að taka vatn úr og setja þetta á.
Er ekki ennþá bara opnað klukkan 4 á daginn? Er náttúrulega best að setja báðar í á sama tíma.
Anyhow, takk fyrir þessar upplýsingar :D
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

Er nokkuð að frétta af stífunum?
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

ég gleymdi að panta þær um daginn þannig að þú mátt skamma Hlyn
ég fæ þær í pósti eða eins og þeir sögðu í verksmiðjunni

"Yes, of course we will send you some of the straps by post immediately."

kemur þá trúlegast strax eftir helgi
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hey... :?:
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

he he
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

Takk fyrir það þið kannski sendið mér línu þegar þær berast?
User avatar
acoustic
Posts: 631
Joined: 27 Apr 2007, 21:06
Contact:

Post by acoustic »

vá það er greinilega juwel stífu vandamál á íslandi þessa dagana.
mig vantar líka þessa stífu.
8)
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

Eru þessar stífur nokkuð komnar?
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

stífurnar ekki komnar
ég hringdi á pósthúsið og þeir sögðu að 6 virkir dagar væri venjulegt með svona sendingar
ég sagði þeim að það væru orðnir 11 virkir dagar og þá sagði starfsmaðurinn að það væri líka bara eðlilegt og þetta hlyti að fara að koma
hverslags póst kerfi er þetta það tekur ekki nema viku með skipi að fá vöru en vikur með póstinum
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

Þá er bara að harka af sér svolítið lengur ,búrið er engin prýði svona hálffullt.
Gilmore
Posts: 208
Joined: 20 Oct 2006, 07:52

Post by Gilmore »

úfff

Ég var með svona búr og engar þverstífur í heilt ár......ég hef verið heppinn að það brotnaði ekki. Glerið var líka vel bogið.....kæruleysi bara. :oops:
User avatar
acoustic
Posts: 631
Joined: 27 Apr 2007, 21:06
Contact:

Post by acoustic »

ég veit um gaur sem er með 400 lítra juwel og það hefur vantað stífu síðann hann fékk búrið fyrir rúmu ári og hann hefur verið með það fullt af vatni allan tíman hann segir að málið á búrinu sé 1.cm breiðara uppi og það hefur ekkert skeð í allan þennan tíma.
vildi bara deila þessu með ykkur. 8)
User avatar
acoustic
Posts: 631
Joined: 27 Apr 2007, 21:06
Contact:

Post by acoustic »

Ps. mig langar ekki að taka þennan séns. :?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

acoustic wrote:ég veit um gaur...
...er það kannski sá sem póstaði fyrir ofan þig ? :-)
User avatar
acoustic
Posts: 631
Joined: 27 Apr 2007, 21:06
Contact:

Post by acoustic »

:P nei ekki alveg. Vargur :!:

Eru stífurnar komnar ?
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Ég myndi ekki vera hræddur um að búrið brotni, þó svo að stífur vanti, nema galli sé í glerinu.
Mesta álag á fiskabúrum er þar sem dýptin er mest og það er alltaf við botninn, ef maður snýr búrinu rétt og þar heldur botnplatan hliðunum saman!
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Botninn er ekki áhyggjuefni ef hann er ekki boraður og búrið á slettum fleti. Langhliðarnar á háum og löngum búrum eru viðkvæmastar og þar er algengast að búr brotni ef enginn stuðningur er að ofanverðu.
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

Þó að einhver "gaur" taki svona séns eins og ég vil meina að það sé að vera ekki með þessar stífur þá ætla ég ekki að taka þátt í því!
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Ég á að sjálfsögðu við álag af vatnsþrýstingi. Það skiptir engu máli hvað búrið er stórt, þrýstingurinn fer eingöngu eftir rúmþyngd og hæð. Steinar, möl og sandur hafa meiri rúmþyngd heldur en vatn og hækka þau því þrýstinginn, venjulega á botnplötu búrsins.

En eins og fram kemur hjá Vargi þá verða búr fyrir öðru álagi, td. álagi þar sem fólk er oftast að baksa við búrin, það er að ofanverðu.
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

Eru stífurnar nokkuð komnar????
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Er með 1 stífu og get ekki séð að það skipti nokkru máli........... enda eiga þær ekki að ráða því hvort búrið heldur, þykkt glersins á að ráða því
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Atli
Posts: 225
Joined: 18 Dec 2006, 05:57
Location: Reykjavík

Post by Atli »

ég myndi nú frekar segja að kíttið / líminginn ráði því hvort að búrið haldi eða ekki. Juwel gengur vel frá öllum sínum búrum og ég hefði ekki nokkura áhyggjur þó allan toppramman vantaði á búrið. Málið er að ef það er ekkert hnjask á undirstöðunni og ekki sé verið að sulla svo mikið í búrinu að það komi stórar öldur þá á þetta allt saman að sleppa. Ég hef séð 1200 lítra búr sem var by the way mjög hátt, haldast saman á kíttinu einu og það er engin lygi.
Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
User avatar
acoustic
Posts: 631
Joined: 27 Apr 2007, 21:06
Contact:

Post by acoustic »

Er með 1 stífu og get ekki séð að það skipti nokkru máli
ég líka :) ekkert ves. þetta eru nú eingin geimvísindi :P
Post Reply