Gullfiskar
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Gullfiskar
Mig vantar basic upplýsingar um hvernig á að hugsa um gullfisk, ég er að fara að passa einn í 3 mánuði og kann ekki á þá
Passa allir gullfiskar saman? Sá sem ég er að fara að passa er einn og ég vildi gjarnan bæta við félagsskap fyrir hann
Passa allir gullfiskar saman? Sá sem ég er að fara að passa er einn og ég vildi gjarnan bæta við félagsskap fyrir hann
Það eina sem þú þarft að gera er að gefa honum að borða bara lítið einu sinni á dag (það gerði ég við mína) en ég er ekki að fatta við hvað þú átt með hvort allir gullfiskar passi saman
En ég var með 3 gullfiska (1 slæðusporð og 2 venjulega) og bardagafisk í sama búri (10L) og það gekk bara mjög vel en ég myndi ekki þora að gera það aftur við hættu á að bardagafiskurinn ráðist á hina en ertu s.s. að meina hvort það sé í lagi að hafa slæðusporð og venjulegan saman??

hvaðan fá allir þessar upplýsingar um það að bardagafiskar séu árásagjarnir ??en ég myndi ekki þora að gera það aftur við hættu á að bardagafiskurinn ráðist á hina
Þeir eru aðalega árásagjarnir á sína eigin tegund, þeir eru það hægir að þeir eiga ekki auðvelt með að ná hvaða fisk sem er
Það er þá helst að þeir reyni að narta í sporða, t.d. hjá gubbyköllum
Ég var nú með bardagakarl í búri með öðrum fiskum, og einn daginn þegar ég kom heim vantaði í sporðinn á flestum. En bardagafiskurinn var í lagi.. Einn fiskurinn er með sporð sem er svona > í laginu núna.. með gati í miðjunni
En annars held ég að ég sé búin að ná því hvernig gullfiskar virka, ekki of heitt vatn, gefa að borða.. Ekki flókið
En annars held ég að ég sé búin að ná því hvernig gullfiskar virka, ekki of heitt vatn, gefa að borða.. Ekki flókið
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
En er 10 L búr ekki alltof lítið fyrir þennan fjölda af fiskum?Kaja wrote:Ok en hvaða fiska er hægt að hafa með bardagafisk??
Eins og ég sagði var ég með bardagakall og 3 gullfiska í 10L búri og það gekk bara mjög vel
Systir mín er með 2 gullfiska og eina ryksugu í um 30 L búri og finnst mér fiskarnir ekki mega vera fleiri.
Jú þetta er í meira lagi... Næstum vonlaust að halda vatnsgæðum góðum og þá fara fiskarnir að veikjast og svona vesen.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
- Agnes Helga
- Posts: 1580
- Joined: 18 Nov 2006, 14:05