Tunnudæluvesen!

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Tunnudæluvesen!

Post by Piranhinn »

Ég er alveg að verða búinn að reita öll hár af höfði mér
vegna þess að ******* tunnudælun fer ekki af stað aftur,
var að þrífa hana... Ég er búinn að prufa allt samkvæmt bókinni,
vantar að vita hvort að ég geti gert e-ð meira til að fá sírennslið af stað?
Vinsamlegast aðstoðið mig áður en ég tapa mér :x
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Passaðu að það sé ekkert loft í slöngunum.
Það getur verið smá bras að ná því en það má hvergi vera loft, ekki heldur í dælunni.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

prófaðu að sprauta vatni inn um inntakið á dælunni, þá ætti allt loft að fara út og dælan að fara í gang
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

ok ég verð bara að halda áfram að reyna og vera viss um að það sé ekkert loft neinsstaðar... er búinn að setja sirka 10L af vatni í þessa
6L dælu og hélt þarmeð að það væri hvergi loft :/
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Ég er með Rena XP3 dælu og síðast þegar ég hreinsaði hana kom ekkert rennsli í gegnum hana. Ég hafði gleymt að setja lítið lok sem kemur undir dæluspaðana!
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

þetta er leyst, það var allt uppfullt af lofti í tunnunni sjálfri.
Takk fyrir hjálpina. :)
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Hvaða tegund af dælu er þetta?
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

am-top professional AT-3336, fínasta dæla, virðist bara
hafa gleypt svolítið loft þegar ég var að fylla tunnuna af vatni :=)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Læturu hana ekki fylla sig sjálfa ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

nei tæmi allt í vatnsskiptum og set einnig nýtt vatn í dæluna...
hver er vaninn hjá ykkur?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Er ekki krani á slöngunni sem hægt er að skrúfa fyrir svo dælan fyllist bara aftur þegar þú ert búinn að þrífa hana ?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Svona geri ég á 600 lítra búrinu mínu, smíðaði sjálfur hreinsikerfið í það, nota Xp3 og Sacem 1500L/h

1. tek dæluna úr sambandi
2. loka fyrir slöngurnar með kúluventlum (Xp3 hefur innbyggt lokunar kerfi)
3. losa dælunar frá slöngunum
4. Þríf dælurnar
5. Tæmi rörið sem skilar vatninu úr dælunum þannig að ekkert "syphon" myndast og loftið sem er í dælunum nær að sleppa út um það rör
6. tengi dælurnar upp á nýtt við slöngurnar
7. opna fyrir intaks kúluventilinn á báðum dælum og síðan útaks ventilinn fyrir báðar, þá byrjar að flæða í dælurnar og þær fyllast
8. Set þær í samband og maður er búinn :)

Fyrir 170L búrið er ég með Aquael 250 650L/h tunnudælu, hana er mega auðvelt að þrífa

1. tek hana úr sambandi
2. losa slöngurnar með handfangi sem lokar fyrir slöngurnar samtímis með því að snúa
3. fer með dæluna og þríf hana
4. set hanfangið aftur á sinn stað og sní til baka og þá byrjar dælan að fylla sig (Útaks endinn þarf að vera fyrir ofan yfir borðið því annars myndast "Syphon" í báðum slöngum og loftið kemst ekkert burt sem er innan í dælunni)
5. kveiki á dælunni :)

Edit:

Eitt líka gullið til að losna við allt loft úr tunnunni er að losa rólega um eina festinguna sem heldur henni saman þá fer allt auka loft burt, en veriði með handklæði við hendina, það getur frussast út um allt af miklum krafti ef maður fer of hratt og opnar of mikið :D
Last edited by Squinchy on 10 Sep 2008, 17:12, edited 1 time in total.
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

ég tek úr sambandi, skrúfa lokana fyrir flæðið, tek slöngurnar frá dælunnni, tæmi og hreinsa filtera, set nýtt vatn í, tæmi loft og la go.
Edit:
Ef þetta svaraði ekki spurningunni hjá Varg, þá, jú... Það
eru lokar á slöngunum sem að ég gæti í sjálfu sér opnað, sett
allt draslið í gang og látið það um að fylla tunnuna af vatni.
Last edited by Piranhinn on 12 Oct 2007, 11:28, edited 1 time in total.
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Það dregur rosalega úr rennsli á dælum þegar þær eru orðnar skítugar, nánast stoppar. Það er enginn kraftur í þessum spöðum.
Er powerhead einhver lausn á þetta?
Eitt sem ég hef tekið eftir hér. Það eru margir með tvær dælur, þó svo að önnur dælan sé gefin upp fyrir að duga fyrir búrið. Hver er ástæðan?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Eina lausnin er sú að þrífa dæluna oftar :)

Hvað ertu annars að setja í föturnar á þínum Xp3 ?
Svona er þetta hjá mér
Neðsta karfan: 2x grófir svampar neðst, 2x fínir svampar ofan á
Miðju karfan: Kol poki og filter vatt ofan á
Efsta karfan: Keramik hringir og mjög þunnt lag af filter vatt púða

Ástæðan fyrir að hafa fleiri en eina dælu er bara einfaldlega þessi: Það er ekkert til sem heitir að hreinsa vatnið of mikið ;)
síðan fer það líka mikið eftir því hvað þú ert með í fiskabúrinu, ef þú ert með einhverjar drullu maskínur eins og óskar og aðra stóra fiska :P þá er sniðugt að vera með dælu sem ræður við sirka 2x stærð búrsins
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Ég hef verið með það sama í minni dælu og þú, en við síðustu skipti setti ég ekki ný kol. Er nokkur þörf á því að vera alltaf með kol?
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

það gerir hver eins og hentar, finnst mér.
Það er eins og hann sagði, það er ekkert til sem heitir ofþrif á vatninu, nema kannski þegar maður er farinn að hella Ajax útí :D
Kolin eru kannski ekki nauðsynleg, en gera auðvitað sitt gagn.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Hahahaha Ajax :lol:

Okei :), nei kol eru ekkert nauðsyn, eina sem þau eru góð fyrir er til þess ef að vont lykt kemur af vatninu og þá getur maður sett kol í og þá fer lyktin, síðan endast þau víst bara að meðaltali í 2 - 4 vikur áður en þau fillast af drullu og eru þá hætt að þjóna einhverjum hreinsunar tilgangi

En ég hef þetta í bæði Xp3 og Aquael dælunni, veit samt ekki afhverju, þetta er svona hundrað ára gamalt ;) gæti alveg eins hent þessu og aukið Bio filteringuna mína á 170L búrinu, og þá Mechanical filteration á Xp3 þar sem ég nota Sachem dæluna sem "Bio tower" hehe :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply