Setti loks vatn í búrið í stofunni eins og ég sagði
ákvað að setja rætur, gróður og fínan ljósann sand í það kl 7 í kvöld
og þaut niður í búð og svona varð útkoman
set meira inn hér http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/Gre ... _grein.htm
en hendi eflaust myndum inn hér líka
og þá er bara næsti hausverkur hvað fer ofan í búrið af fiskum
farið að sjást betur inn í búrið
Last edited by Gudmundur on 24 Sep 2007, 21:33, edited 1 time in total.
ég setti plakat aftaná sem sést ekki vel þarna því búrið er skýjað
ég á von á nýjum bakgrunnum fyrir jólin sem virðast flottir á myndum upphleyptir en þynnri heldur en þeir sém ég á núna í búðinni en ég nennti ekki að bíða eftir þeim og set þá bara í þegar ég breyti búrinu seinna
Ég hef ekki ákveðið hvaða fiskar fara í búrið ennþá
ég hef oft sagt að fiskabúr skuli innréttast þannig að það sé hægt að horfa á þau tímunum saman án þess að fiskarnir séu komnir ofaní
og núna er ég einmitt í þeim pakkanum
ég er alltaf að horfa á búrið og hef gaman af
þannig eiga búr að vera því ef hægt er að horfa á fiskalaust búr þá verður meiriháttar að horfa þegar fiskarnir koma líka
helst eitthvað sem ég hef ekki átt áður
sandurinn í botninum er meiriháttar fyrir corydoras
helst þyrfti að geta komið seiði þannig að dvergsíkliður koma til greina
einhverjir litlir hópfiskar kannski
einhverjar L-sugur ?
mér var að detta kúlíálar í hug
hef svo sem átt þá oft áður en aldrei í búri með fínana sand
Djöfull er ég ánægður með þig, um að gera að demba sér í plönturnar af einhverri alvöru!!
Kemur mjög vel út hjá þér, þó ég sé nú ekki mikill burkna aðdáandi, alltaf þótt það vera frekar síklíðískar plöntur, ef þannig má komast að orði.
Ég ákvað að hafa einfaldar plöntur og harðgerðar sem þurfa lítið ljós þar sem ég er bara með tvær T8 yfir búrinu
ég reikna með að flytja á næstu mánuðum og þá bæti ég við fleiri búrum og þá kemur gott gróðurbúr sterkt inn