Sull frammundan

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Sull frammundan

Post by Svavar »

Jæja ég er svona að undirbúa mig undir að koma níu dælunni fyrir og ætla að láta hana keira svona sólahring eða svo síðan er meininginn að taka 1140 l búrið í smá klössun og hugmyndin er sú að tæma það algerlega bæði af fiskum sem og gróðri og jafnvel möl og koma fyrir mó eða mold undir sandinum þar sem plönturnar mínar eru ekki að þrífast, ég ætla að nota tækifærið og keira salt kúr á diskusana mína svona þeim til gleði og ánægju ef um einhver sníkjudýr væri að ræða í þeim og þeir hafa bara gott af svona hreinsun, ég er búin að tæma 2 búr í rekkanum (samtals 400 l) fyrir fiskana annað fyrir diskusana og hitt fyrir hina fiskana sem ekki þola eins mikið salt.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Re: Sull frammundan

Post by Rodor »

Svavar wrote:Jæja ég er svona að undirbúa mig undir að koma níu dælunni fyrir og ætla að láta hana keira svona sólahring eða svo síðan er meininginn að taka 1140 l búrið í smá klössun og hugmyndin er sú að tæma það algerlega bæði af fiskum sem og gróðri og jafnvel möl og koma fyrir mó eða mold undir sandinum þar sem plönturnar mínar eru ekki að þrífast, ég ætla að nota tækifærið og keira salt kúr á diskusana mína svona þeim til gleði og ánægju ef um einhver sníkjudýr væri að ræða í þeim og þeir hafa bara gott af svona hreinsun, ég er búin að tæma 2 búr í rekkanum (samtals 400 l) fyrir fiskana annað fyrir diskusana og hitt fyrir hina fiskana sem ekki þola eins mikið salt.
Er ekki hætta á því að moldin blæði upp úr mölinni/sandinum og liti vatnið?
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Nei það er ekki mín reynsla, kanski svona fyrstu vikuna er búrið pínu skíað en samt á að vera hægt að gera þetta án vandræða. Likilinn af því að þetta gangi vel er að tæma búrið vel og nær þurka það upp setja síðan moldina eða mólagið sem er þunt kanski 0,5 -1 cm og setja svo pínu vatn og mynda svona einskonar drullu köku bara ekki of þunna svona leir í rauninni. síðan er sandurinn settur yfir og vatnið varlega í búrið dælt í skál eða fötu og látið flæða þannig í búrið, það verður fyrst bras ef maður seinna meir ætlað að færa plöntur þá er hætta á drullu sprenigingu en þá er betra að lifta plöntunni aðeins upp úr saninum og einfaldlega klippa hana lausa úr mölinni. þetta hefur sína kosti og ókosti eins og flest ekki satt :D
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvaða hita hefur þú vanalega á 1140 l. búrinu ? Er hann ekki í hærri kantinum, getur það ekki átt þátt í að gróðurinn er ekki nógu góður ?
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Ég er að keira á um 28°C það hefur vissulega áhrif en þetta er þriðja búrið sem ég er með diskusa í og þetta hitastig en fyrsta sem ekki er með neinni mold í botninum og í hinum búrunum var ég einfaldlega í vandræðum því þau sukku í gróðri en þær einfaldlega þrífast ekki í þessu búri. það er ástæðan fyrir því að mig lagnar að prufa að fara í þetta sull þar að segja ef lægir um helgina og það verður veður til að fara og ná í mold ég nenni því varla í þessu roki.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Mór varð fyrir valinu í botninn, það var hafist handa í gær við að ná fiskum uppúr, diskusarnir voru einfalt mál og eru nú á saltkúr svona til að nota ferðina, ég tæmdi svo búrið og kom ullunni fyrir undir sandinum með því að moka saninum í annan enda búrsins og koma mónum fyir og moka svo öllu í þann helminginn og síðan að gera eins hinsmegins. það var svo plantað upp á nítt og búrið hefur svo verið keirt fiskalaust í nótt og verður í dag en í kvöld reykna ég með að sleppa einhverjum fiskum í það þó ekki diskusunum þar sem ég klára kúrinn á þeim og þeir fara ekki í búrið fyrr en í næstu viku. Ég er svo að fá karinála torfu í búrið ef ekkert klikkar á sunnudaginn svona til að punta uppá fiskaflóruna í búrinu.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvað verður svo af fiskum í búrinu ?
Það væri gaman að fá myndir af þessu.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Líka sull hjá mér í ísköldum öl :D heyrumst gamle ven
Ace Ventura Islandicus
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Það sem er að fiskum í búrinu eða verður það eru mínar 8 bodiru eða 4 stórar trúða bodiur og svo 4 tígris bodiur, ég sleppti svo 10 brúskum úr ræktinni minni sem eru svona hálf vaxnir í búrið og svo fékk ég karidilála tetrur í gær og svona til að geta kallað þetta torfu þá fékk ég 100 stk. og demit það tekur sig flott út, síðan fara diskusarnir mínir í búrið eftir svona viku tíma og þá fer að verða komin tími á að reyna að taka einhverjar myndir af ruglinu, ég fékk svo Agassi par í gær og Cacado dverg síkliður sem eru í sótthví hjá mér og spurning um fiðrilda síkliður sem ég líka á. ég er svona að færa mig yfir í dverg síkliður sem svona meðfiska með diskusunum sem henta vel. Við Jónbi eða réttara sagt Jónbi er svo búin að pípa að vatnskipti búnaðinum mínum uppí skúr fyrir ræktina, en ég lofta (sprengi upp með loftara kubbum) allt vatn sem kémur í ræktina mína uppí skúr og nota svo fallið niður á neðri hæðina til að láta vatnið renna til mín, við loftarann er svo varmaskiptir þannig að ég nota eingöngu kaldavatnið en fæ það 28°C niður til mín. þetta geri ég til að losna við heitavatnið sem hefur pH 9,3 hérna í skagafirði og er full hátt fyrir diskusana mína, en kaldavatnið er á milli 7,1-7,3 sem hentar mér betur og þá er líka kostur að fá vatnið uppsprengt en það þíðir að ég get skipt út öllu vatni án þess að fá þessar leiðindar loftbólur út um allt búr sem er ekki bara súrefni eins og margir halda heldur allur andskotin sem kalla má loft tegundir, bæði góðar og slæmar.
Last edited by Svavar on 02 Oct 2007, 05:11, edited 1 time in total.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Já heyrðu Animar skál og mundu að "grønt er sundt" i hvert fald grøn Tuborg.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Skemmtilegt brasið á ykkur bakkabræðrum með vatnið :lol:

Það hlýtur að vera ansi magnað að sjá kardinálana í búrinu.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Já við erum nær dauða en lífi af niðurgangi af kaffidrikkju, ég vona svo að kardinálarnir hafi lent sæmilega hjá mér það verður spennandi að sjá þá í dag en þeir eru frekar smáir og ég er feigin því að diskusarnir eru ekki í búrinu með þeim því þá hefðu þeirr sennilega verið í kvöldmatinn. Ég reyni að manna mig í að taka einhverjar myndir af þessu í kvöld.

Annars er eitthvað gallerí á þessu spjalli ? :oops:
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er því miður ekkert gallerí en það er hægt að vista á http://www.fishfiles.net fyrir þetta spjall.
Já við erum nær dauða en lífi af niðurgangi af kaffidrikkju
:rofl:
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Það er smá krísa,,,, afsakið seinaganginn á myndum. hleðslutækið fyrir myndavélina fynst ekki :evil: En skipuleg leit stendur yfir.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Loksins loksins, hleðslutækið fanst í gær þannig að myndir ættu að nást í dag og þá fer að styttast í að það komi einhverjar myndir frá mér :oops:
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Þetta er 1140 l búrið eftir breitingar, fleirri myndir annað hvort í kvöld eða morgun.

Image

Image

Image

Image

Kardinála tetrurnar virka hálf litlar í búrinu en ég setti 100 stk með diskusunum.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Mjög flott hjá þér búrið, og glæsilegir fiskar!
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

stórglæsilegt !
hvernig er nýja dælan að koma út ?
maður sér á myndunum að það er góður kraftur í henni..
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Ég er alveg himinlifandi yfir dælunni hún nær að snúa þessum vatnsmagni með léttum leik og ég tók niður powerhed sem ég hafði annars notað með hinum dælunum, Önnur Marathon 1500 dælan mín sem var við búrið er enþá með og sér um að dæla í gegnum UW ljósið hjá mér. Gróðurinn á svo vonandi eftir að þrífast betur eftir að mórinn kom undir sandinn ég kém með fleirri myndir af því sulli síðar í dag eða á morgun og eins nokkrar myndir úr ræktinni.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Flott búrið hjá þér gamli og diskusarnir dásamlegir.

Mér brá nú aðeins þegar ég las:
Svavar wrote: og eins nokkrar myndir úr ræktinni.
Datt fyrst í hug líkamsrækt og fannst það freka óskilt fiskunum en svo kveiknaði á fattaranum í mér :roll:
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Skélli mér með myndavélina í sturtu í kvöld þegar að ég geri heiðalega tilraun til að spila körfu með félögum mínum í slökkviliðinu, nei ég er hræddur um að það yrði vesen og læt nægja að koma með myndir úr fiskaræktinni. :P
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Kristín F.
Posts: 158
Joined: 02 Apr 2007, 17:08

Post by Kristín F. »

Vaaaaaahhh??!!!
ÓmæGod!

Gvöðmundur minn hvað þetta er GLÆSILEGT!!
Ég fæ hreinlega gæsahúð af hrifningu..

Svavar: ok, þér hefur tekist að sannfæra mig - Discus eru hreinlega fallegustu, glæsilegustu, virðulegustu fiskar sem hægt er að hafa!!

Ekki hvarflaði að mér að búrið þitt væri svona glæsilegt - og íbúarnir!!

TAKK fyrir að sýna okkur - enn og aftur GLÆSILEGT hjá þér :)
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Já þetta er stórglæsilegt og diskusarnir eru eithhvað svo, hvað á maður að segja, það er stóísk ró yfir þeim :roll:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta er stórglæsilegt !
Eru diskusarnir ekkert ósáttir við strauminn frá dælunni og eru þeir ekkert að stelast í kardinálana ?
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Takk fyrir hrósið, Vargur það er frekar þungur straumur frá dælunni sem hentar diskusunum vel það er verra með svona mjóa bunu, það er helst að það sé mynsti diskusin sem hefur áhuga á kardinálunum en þeir stóru láta þá alveg í friði enda vanir að vera með white cloudy. en fleirri myndir

Image
Image
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

og aðeins fleirri.
Image

Par sem ég er með sér inní rækt og er að reyna að fá til að hrigna.
Image

Eitt af gotfiska búrunum úr ræktinni.

Image

Skallar úr ræktinni.
Image

Læt þetta duga í kvöld fleirri myndir á morgun eða hinn.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Verið að tæma búrið og undirbúa sig fyrir að koma moldardrullunni fyrir í botninum.

Image
Ljóta ullan í gangi, og útgangurinn eftir því. :oops:
Image
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Leifi 2 gömlum myndum að fljóta með sem eru fyrir breitingar bæði af 1140 l búrinu og eins af ræktinni en þar hefur margt breist.
Image

Image

Það er sér í lagi litli (járn rekkinn) sem hefur breist hann er komin með önnur smá búr eða 10 stk 20 l búrum og allt komið á sumpinn (þetta hvíta neðst) þannig að nú skipti ég út vatni í 20 búrum samtímis sem sparar heil mikla vinnu. myndir síðar af því.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ertu að nota yfirfall á búrunum í járn rekkunum ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Já það er einskonar yfirfall, þar að segja að það er glerplata kíttuð í eitt af hornunum, og þar ofanvið fínt net og slanga neðst í botninum, þessi tíu 200 l búr eru botnboruð og með teleskop
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
Post Reply