Smá spurning um salt ofl...

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Smá spurning um salt ofl...

Post by Anna »

Þolir gróður salt?
En eplasnigill?

Var að setja upp búr :dansa:, hef ekki skolað sandinn nógu vel, smá drulla úr honum skýjar búrið, eins er rótin að lita hressilega. Þýðir þetta bara að það þarf að skipta um vatn aftur og aftur og aftur og aftur.... og róta nóg í sandinum?

Hvenær er kominn tími fyrir ancistru í búrið? Eftir mánuð eða bara strax?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Allur venjulegur gróður á að þola salt en ég veit ekki með eplasnigilinn, þekki þær skepnur lítið.

Ég hef lent í því oftar en einu sinni að skola mölina ekki nógu vel og í þeim tilfellum tók ég allt upp og skolaði aftur VEL. Nennti ekki að vera sífellt að skipta um vatn. Ræturnar lita alltaf vatnið, mismikið þó eftir því hvernig rót þetta er.

Skella ancistru strax í búrið.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

mæli ekki með því að nota salt með plöntum. Sumar plöntur þola vissulega smá salt, en það virðast flestir plöntunördar sammála um að salt sé ekki af hinu góða fyrir plöntur, það væri þó helst fyrir afrískar plöntur og vatnaplöntur. En flestar plöntur koma úr lygnum ám í S-Ameríku og Asíu þar sem vatnið er nánast alveg laust við seltu, slíkar plöntur koma ekki vel út úr söltun.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

sniglarnir þola ekki saltið vel..
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Heh, þarna ertu komin með 2 mismunandi svör við saltinu og plöntunum.

Ertu ekki bara að tala um stuttan tíma, nokkra daga?
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Ja, ég var bara að spá hvort það borgi sig að salta þegar ég set nýju fiskana útí, búrið fór upp í gær en ég tók slatta af vatni úr búrinu og kreisti vel úr svampinum í dælunni í nýja búrið svona til að koma flórunni af stað - og svo núna svamla 2 gullfiskar og 1 skali í búrinu.

Planið er að setja nýja fiska nk mánudag (er að fara í útilegu :shock: um helgina), þá verður búrið búið að keyra í viku með gullfiskunum í.

En til að reyna að hindra hvítblettaveiki þá var ég að spá í að salta líka... Saltið færi svo bara með hefðbundum vantsskiptum.
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Inga Þóran wrote:sniglarnir þola ekki saltið vel..
Já, mig minnti að ég hafði heyrt það einhversstaðar. þannig að ef ég þarf að salta búr krakkanna þá þarf snigillinn að fara í annað búr á meðan. Vildi bara vera viss, því ekki vil ég drepa Ella eplasnigil með söltun :P
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sniglar og plöntur þola illa salt.
Það er þó allt í lagi að setja 2-3 matskeiðar í 100 lítra eða meira af vatni til að fyrirbyggja ýmsa smákvilla.
Post Reply