Ný startað. (Update bls. 2)

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Ný startað. (Update bls. 2)

Post by Mr. Skúli »

Núna er svona c.a. klukkutími síðan ég startaði nýja búrinu mínu og hef nokkrar spurningar:

Vatnið hjá mér er svona hvítleitt.. er það bara loft eða ryk sem fer á stuttum tíma?

Og til að kæla vatnið úr 28- 30 c° niður í c.a. 22 - 24 c° hef eg þá bara slökkt á hitaranum?.. er með hann stiltann á 24 c°

Set inn mynd seinna.
Last edited by Mr. Skúli on 24 Dec 2006, 10:18, edited 1 time in total.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Nýtt vatn er oft hvítleitt, það er bara súrefni í vatninu.
Til að lækka hitan getur þú tekið hitarann úr sambandi eða bara bætt köldu vatni í búrið.

Endilega komdu svo með myndir og segðu okkur frá búrinu.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

Búrið er MP eitthvað 58l. með svona boga frammgleri sem kemmur mjög vel út að mínu mati.. svo er ég með EIHEM dælu og einhverveginn hitara veit ekki alveg.. en fyrsti fiskurinn kemur annaðhvort á morgun eða mánud. en ég á frátekinn Pictus kattfisk (Linkur) sem ég mun skella í búrið á mánud. en mér vantar bakgrunn er ekki viss hvort ég eigi að fá mér bláann eða svona steina bakgrunn.. en í sambandi við plöntur.. hvernig plöntur ætti ég að fá mér?..
Rúnar Haukur
Posts: 160
Joined: 13 Nov 2006, 19:13
Location: Akureyri - norðan við á
Contact:

Post by Rúnar Haukur »

Smá pæling...

Sé að pictusinn verður 15-25cm skv. tjorvar.is - og þar er sagt að hann þurfi 200lítra búr. Ertu ekkert hræddur um að þitt sé of lítið ?
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

ég er með þetta til að byrja með.. fæ mér kannski 2- 300l. eftir kannski hálft ár..
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

en í sambandi við plöntur.. hvernig plöntur ætti ég að fá mér?..
Best er að þú veljir einhverjar auðveldar plöntur í nýtt búr td. Egeria densa eða Cacomba. Plöntur eins og Anubias eru einnig góðar. Best er að fara bara varlega í plöntukaup fyrst meðan búrið er nýuppsett og reyna að kaupa plöntur sem eru ódýrar og gera ekki miklar kröfur.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

Er kominn með myndir af þessu.

Image
Klst. eftir að vanið fór í.

Image
Daginn eftir að plönturnar fóru í.

Image
Búri eins og það er í dag. samt munu fara í það á morgun einhverjir steinar og græn glerbrot og kafbáturinn kemur uppúr.

Image
Gibbinn (Gibbiceps) minn að borða.

Image
Ég veit ekki alveg hvernig ryksuga þetta er en hún heitir víst Mæja því kærustuni minni fannst hún sæt.

Image
Hér er Bæáhákarlinn minn að láta eins og hálfviti. Hann er búinn að vera voða skrítinn, búinn að synda á glerinu í mest allann dag..:/

Image
Og svo er hér stoltið mitt, Pictus kattfiskur sem ég keypti í vatnaveröld í keflavík í gær.

Svo stefni ég á kannski annan Bláhákarl og svo einhverja litla svona sem skraut í gróðurinn hjá mér. Hugmyndir eru vel þegnar.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Laglegasta búr, ég sé jafnvel fyrir mér einhverjar Amerískar sikliður, td eitt par, í minni kantinum í þessu búri.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

ef ég mindi skella gúbbý fiskum þarna, einhverjum flottum yrðu þeir bara étnir eða?.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Pictus þykir guppy fiskar lostæti, hann er sérstaklega gjarn á að taka karlana á nóttinni þegar þeir liggja við botninn.
Ég mæli frekar með einhverjum aðeins hraðskreiðari fiskum, td. sverðdrögurum.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

en hérna... þetta hljómar soldið asnalega een.. mindiru vilja fræða mig smá um Bláhákarlinn (Mr. Cool) ig Pictusinn (Sleggjan)?(þ.e. hvað éta þeir helst og svona, hef reynt að gefa þeima bara svona flögur sem ég keypti í dýraríkinu og þeir líta ekki við því..).. mér finnst hákarlinn frekar asnalegur núna.. sindir bara utan í glerinu á einum stað og hreifir sig ekkert annað..:/
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Botn og kattfiskar eru oft smá tíma að jafna sig á breyttum aðstæðum og haga sér oft undarlega fyrst og eru felugjarnir, ég mundi setja einhvern felustað fyrir pictusinn í búrið, eitthvað sem hann getur falið sig undir.
Pictusar eru líka yfirleitt bestir í hóp, 3 eða fleiri. Þeir eru mest á ferðinni á nóttinni og ef þú villt sjá hann í aksjón þá ættir þú að deyfa eða slökkva ljósin og bíða hreyfingalaus eftir því að hann fari í könnunaferð um búrið.

Hér eru helstu uppl.
Best þekktur sem: Pictus
Latneskt heiti: Pimelodus Pictus
Uppruni: Columbian Amazon
Hitastig: 24-28°
Stærð: 15 cm
Ræðst ekki á aðra fiska en getur étið litla fiska eins og tetrur og guppy.
Þykir nokkuð auðveldur í umhirðu en er viðkvæmur fyrir hvítblettaveiki.

Ég þekki lítið til hákarlsins, mæli með google.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

en sko hann er ALLTAF á hreyfingu!.. hann stoppar ekki.. en veistu hvað ég ætti að geefa honum að éta?.. og ætti ég að skella mér á annann með honum?..
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eimmitt, pictusinn er fullfjörugur fyrir flesta, einhver felustaður gæti hægt aðeins á honum.
Pictus étur allt venjulegt fiskafóður.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

mér var bent á rækjur.. er eitthvað til í því?..
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Rækjur eru fínar en passaðu bara að taka leyfar úr búrinu ef einhverjar eru því óétnar rækjur eru fljótar að menga vatnið.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

eru piktusarnir ekki grimmir við að éta allt, hryggningar og annað?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Pictus étur allt sem kemst upp í hann, reyndar eins og flestir fiskar. Hægfara fiskar og litlir, hrogn og seyði eru ofarlega á vinsældarlistanum hjá pictus.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

Jæja, ég keypti mér tvo fiska í dag, einn bláhákarl bara til að hafa tvo, og svo einn stórann og flottann brúsknef! :D hann er ábyggilega svona 13 cm og ég er alveg geeeðveikt ánægður með þessa félaga!.. reyni að taka myndir af þeim þegar þeir eru orðnir minna feimnir.. :wink:
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

Smá update, ég er búinn að bæta smá við mig núna á síðustu dögum, búinn að versla við vatnaveröld einn bláhákarl og stórann brúsknef, og í fiskabúr.is einn rauðuggahákarl og tvo kuhli ála, það er ótrúlega gaman að fylgjast með öllu þessu lífi í búrinu eftir að ég slekk á því og gef að borða :lol: svo er svona planið fljótlega eftir áramót að fá mér stærra, ef einhver hér ætlar að fara að losa sig við kannski 150 - 250l. búr meiga þeir alveg tala við mig :wink:

Hér koma myndir:

Image
Búrið í núverandi mynd.

Image
Brúsknefurinn minn.

Image
Svo eru hér nýji bláhákarlinn, rauðuggahákarlinn, gibbinn minn og svo glittir þarna smá í kuhli álinn.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

þú ert greinilega með metnað. gaman að fylgjast með þessu.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

já takk fyrir það.. stefnan er að fá mér fleyri ryksugur og svo smá bláhákarla hóp eeen fyrst er það stærra búr! :P
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

Langar að setja inn myndir sem ég hef verið að taka í kvöld,

Image
Báðir bláhákarlarnir.

Image
Aðeins að sýna sig.

Image
Annar Kuhli állinn sem Vargur seldi mér í gær:P

Image
Og svo að lokum Rauðuggahákarlinn sem Vargur seldi mér einnig í gær.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Mér finnst þessi brúsknefur alveg sérlega flottur.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

já ég er mjög stoltur af honum! einhverra hluta vegna er ég mjög heillaður af ryksugum og svona kattfiskum! neeeta ryksuga verur mjög sennilega albino einhver.. svo langar mér í fleyri bláhákarla!
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Ef að þú ert hrifinn að ryksugum/botnfiskum þá gætiru haft gaman af fiskum af synodontis tegundinni
mér þykir afskaplega gaman af þeim og veit að vargur gerir það líka

nokkur dæmi um þannig fiska

Image

Image

Image

Image
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

langar rosalega í lýrusporðs plegga, Bulldog/Rubber Pleco og einhvern albino plegga
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Pleggarnir eru flottir en kattfiskarnir eins og td synodontis eru skemtilegri að mínu mati vegna þess að þeir eru yfirleitt sjáanlegri í búrinu.

Ég gleymdi að sýna þér þennan Skúli þegar þú komst í búðina um daginn.
Image
Platydoras costatus
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

já þessi er töff! en mér fynnst þessir pleggar og gibbar bara svo töff!
mér fynnst ógeðslega gaman að sitja bara fyrir framan búrið mitt og horfa á sugurnar mínar hreifa sig á steinunum.. :D
guns
Posts: 359
Joined: 30 Nov 2006, 01:04
Contact:

Post by guns »

Ef mér skjátlast ekki þá er Mæja Gul Kínasuga... en annars flott búr hjá þér :)
Post Reply