Ég dreif í þessu og núna getiði fengið 3lítra af tetra cichlid sticks á verð eins útúr búð. 3500kr.
Eða 1 lítra (eins og stór dolla) á 1200kr (kostar 3600kr útúr búð)
Sendið mér PM ef þið hafið áhuga.
Ég kíkti í fiskó í dag, vantaði dollu af tetra cichlid sticks.

Sú dolla kostar um 3600kr og inniheldur einn líter af cichlid sticks. Allt í lagi verð svosem.
Svo sá ég 10l fötuna, hún kostar 11.900kr, þeas maður borgar 3x meira fyrir matinn ef maður kaupir hann í lítilli dollu.

Hefur einhver áhuga á að kaupa stóra fötu með mér og fá þannig síkliðufóður 3x ódýrara en það kostar venjulega? Fínt væri að fá svona 3 manns með mér í þetta og maður getur sparað helling á fóðurkostnaði!