Við erum með afrískar síklíður í 165l búri. Í fyrradag dóu 3 fiskar hjá okkur (allir af sömu tegund) úr einhverju sem við vitum ekki hvað er!
Þetta er eins og sveppa eða bakteríusýking. Við söltuðum vatnið og hækkuðum hitann í 27 gráður til að reyna að bjarga hinum. Svo í dag og gær tökum við eftir að næsta tegund sem eru einnig 3 stk af er komin með þetta líka Það er eins og hreistrið sé að detta af þeim! Byrjar sem gegnsæ slikja einhvers staðar á búknum og svo er það byrjað að detta af. Einn er sérstaklega slæmur.
Restin er ekki með þetta, en er ekki bara spurning hvenær þeir fá þetta? Skrítið líka að þetta leggst á eina tegund í einu.
Við fóðrum nú ekki of mikið og höfum verið að passa það vel seinustu daga. Það er ekki langt síðan við höfðum góð vatnaskipti 40-50%.
Hvað gæti þetta verið og hvað getum við gert?
Takk fyrir að lesa
kv. Kristel
Vantar hjálp :(
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Hljómar eins og costia en hún leggst reyndar sjaldan á Malawi sikliður.
http://www.acuaristas.cl/album_pic.php?pic_id=2274
Salt og hár hiti (28-30°) ætti að drepa þetta niður, lyf eru einnig fáanleg.
http://www.acuaristas.cl/album_pic.php?pic_id=2274
Salt og hár hiti (28-30°) ætti að drepa þetta niður, lyf eru einnig fáanleg.
Ég set hér inn nokkrar myndir, afsaka gæðin.
Þetta er sá sem er verst farinn núna. Við hækkuðum hitastigið þegar
fyrstu veiktust og söltuðum en honum versnaði. Þarna er hreistrið dottið af.
Og við erum farin að sjá þessa slikju á tveim öðrum af sömu tegund.
Ætti ég að skipta um vatn líka eða sjá bara hvað skeður?
Hitastigið er 28 gráður og búið að vera það í nokkra daga.
Hvaða lyf er þetta sem við gætum þá prufað?
takktakk

Það var um 120gr. Við settum það 2-3 dögum áður en fyrstu dóu og svo settum við aftur í gær þegar við sáum að þessi var orðin slappur. Líka um 120gr. (ofsöltun?) Þannig það virðist allavega ekki ennþá hafa áhrif
Ættum við kannski þá að skipta um vatn núna? Hversu mikið þá?
Og salta svo aftur eftir það?
Ættum við kannski þá að skipta um vatn núna? Hversu mikið þá?
Og salta svo aftur eftir það?