Hvíta Convict parið mitt.

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er gott að vera með sand fyrst meðan foreldrarnir eru með seyðin því foreldrarnir róta upp sandinum og seyðin nærast í fyrstu á smáögnum úr sandinum. Þegar þú tekur svo seyðin og flytur í sér búr þá mundi ég hafa það berbotna þar sem það er auðveldara að þrífa.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Takk :)...hvað mæliru með því að hafa seiðin lengi hjá foreldrunum, og hvað ætti ég svo að gefa seiðunum, þegar að ég tek þau uppúr ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég mundi hafa seyðin hjá foreldrunum eins lengi og þú telur óhætt, helst 2-3 vikur, þú getur prófað að taka hluta þeirra og látið foreldrana reyna sig á hinum.
Seyðin éta svo nánast hvað sem er.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

okay, takk..ég held samt að þau haldi ekki út 2-3 vikur...ef að kellingin fer að pikka í eitt og eitt brjálast kallin og meiðir kellinguna og þá þarf ég að færa hana og bara vesen o.O...vissi ekki að þetta yrði svona mikið vesen...
guns
Posts: 359
Joined: 30 Nov 2006, 01:04
Contact:

Post by guns »

Nei, þetta er svo gaman! =) Karakterinn í fiskunum og náttúran í þessu öllu. Finnst þetta frábært!
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Já þetta er það ...bara bjóst ekki við þessu :lol:
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Seiðin komin ! Og þau eru MÖRG ! þau hafa aldrei eignast svona mörg áður :shock: En núna vil ég held færa þau eins fljótt og ég get...vil ekki að þessi verði étin..ég vil sjá einhver stækka og verða stór og flott ^^

Má ég byrja að færa þau yfir í sér búr um helgina ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það ætti að vera í lagi. seyðin eru reyndar út um allt ef foreldrarnir eru ekki til að smala þeim saman þannig þú skalt passa að ekki sé dæla í búrinu sem þau geti sogast inn í.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Hvernig dælu mæliru þá með ?
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Ég mæli með sandlausu búri og loftdæl, skipta um vatn öðru hverju, getur farið yfir í vatnsdælu þegar að þau verða stærri.

gangi þér vel
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Loftdælu helst eða þá bara að setja svamp eða nælonsokk fyrir inntakið á dælunni þannig að seyðin sogist ekki inn.
Ég var einu sinni með convict seyði í búri með engri dælu en reyndar nokkrum plöntum og þau virtust hafa það fínt, sennilega vaxa þau þó mun hraðar ef það er dæla sem heldur hreyfingu á vatninu þannig það sé súrefnisríkara.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Takk fyrir svörin :D En hvað mæliði með að ég gefi þeim ?
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Mínum seyðum hef ég bara verið að gefa molnar flögur og einhvern seyðamat
Það er örugglega til eitthvað betra fóður (artemía?) en þetta virkar allavega
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Seiðin eru komin í sérbúr, keypti svampdælu og það er ekki sjens að þau geti sogast inní hana :lol: ...er ekki með hitara í búrinu...þarf það eitthvað ? ...það er alltaf svo hlýtt inní herberginu þar sem að búrið er.

Skildi samt nokkur eftir hjá parinu, svo að það komi ekki nýr seiðahópur allveg strax =P
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Þau þurfa ekki hitara en þau stækka hraðar með hans
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

ég er einmitt með auka hitara...ætla að skella honum í í kvöld
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

heyrðu mig nú sko ! ..ég er bara ekki að ná þessu :S ...

Flest öll seiðin dauð, þrátt fyrir svampdælu hitara og ágætlega stórt búr og hreynt vatn og næringarríkan mat :shock:

Getur einhver komið með útskýringu á þessu ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta ætlar að verða erfið fæðing og svo er sagt að convict séu einfaldir í ræktun.
Ég á aldrei í neinum vandræðum með þá, eina sem mér dettur í hug að geti hafa gerst er offóðrun og þá of hátt nitrat eða ammoníak í kjölfarið. Slíkt getur gerst hratt í seyðabúrum ef eitthvað er af óétnu fóðri á botninum.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

oh, það hlítur bara að vera það...var svo gáfuð að biðja pabba um að gefa seiðunum um daginn, hann gaf þeim allt of mikið, náði mest af matnum úr búrinu en ekki öllum :S...hlítur að vera það :?

Þetta virðist ekki vera að ganga upp hjá mér XD
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

þolinmæði Hólmfríður, þú reynir bara aftur og á endanum tekst þetta
Post Reply