
En svo er mál með vexti að tengdó á fiskabúr sem ég held að sé um 70 L eða eitthvað álíka. Þau eru með tvær ryksugur og einn frosk í því. Sem sé ekki mikið líf




En já spurningin er þessi hvort að þessar stóru sugur ráðist á fiska sem myndu koma í búrið, erum nefnilega orðin svolítið þreytt á svona líflausu búri mánuð eftir mánuð og langar að gera eitthvað í þessu en erum hrædd um að sugurnar munu bara éta allt sem kemur þangað. Þau voru með neon tetrur, þegar sugurnar voru mikið minni en þær eru núna, en þær dóu eða voru étnar. Voru með tvo froska en annar hvarf sporlaust eftir stuttan tíma, en hinn lifir fínu lífi. Hafa ekki verið með fleiri fiska heldur en þetta held ég

Hef nefnilega ekki hugmynd um hvernig þessar sugur haga sér þegar þær eru orðnar svona rosalega stórar eins og þessar eru og hvort að þær séu ekki bara vaxnar upp úr þessu búri sem þær eru í.

Vona að einhver skilji eitthvað í þessu röfli mínu hehe
