Piranha.....

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
corydos
Posts: 11
Joined: 01 Nov 2007, 09:51
Location: út á landi

Piranha.....

Post by corydos »

Var að hugsa mér að kaupa mér Piranha, en þá þarf ég að vita sitthvað um þá.
Ég var að hugsa um að setja þá í 160 L búr sem ég á eða er það of lítið. og ef ég ættla að kaupa mér þá veit ég ekki hversu marga ég á að kaupa mér. T.d. er það þannig að ef ég kaupi mér einn og hann stækkar og kaupi mér annan minni seinna þá verður hann étin af hinum?
Og get ég geymt þá í svona fiskipoka á leiðinni heim því að það tekur alveg 1 1/2 kl. að keyra heim og ef það er eitthvað sem þið viljið segja mér eitthvað meira fróðlegt þá væri það vel þegið en ég vona að ég fæ einhver alvöru svör frá einhverjum fróðum. :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þú getur verið með svona 2-3stk í mesta lagi í 160l búri. Það gengur ekki að bæta litlum við seinna. Þú þarft að hafa góðan hreinsunarbúnað, og svo er gott að googla aðeins og kynna sér fiskinn.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

ég bætti litlum við seinna, þeir voru talsvert minni en þeir sem ég átti
fyrir, það gekk bara vel. Ég mæli samt með því að þeir séu ekki of litlir.
Og auðveldast er að gúgla bara allt um þá eða lesa sér til á www.wikipedia.org
(Skrifa Red Bellied Piranha í leitarorð, eða Pygocentrus nattereri.)
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

Ef þú færð þá í 2-3 cm stærð þá geturu alveg keypt 4-6 stk, en þú veist það að þeir geta aldrei verið nema 2 allra mestalagi 3 þegar þeir eru komnir í einhveja stærð.
það er best að kaupa þá á sama tíma, það minnkar líkurnar á afföllum.
Í sambandi við að flytja þá heim þá er engin hætta ef þeir eru littlir biddu bara um að það verði sett soldið ríflega af vatni.

Skoðaðu þetta http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=1691

Og ekki vera hræddur við að spurja, ég veit eitt og annað um þessa fiska
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Maður vill frekar að það sé lítið af vatni og mikið af lofti í pokanum ef maður er að fara langt.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
corydos
Posts: 11
Joined: 01 Nov 2007, 09:51
Location: út á landi

Post by corydos »

takk!! flott grein. En ég held að ég þurfiað fá mér stærra búr? :)
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Ef þig langar að hafa fleiri en 2-3 til frambúðar þá þarftu stærra búr, ekki
spurning. Þeim finnst fínt að hafa pláss til að stækka og líka bara miklu skemmtilegra að hafa fleiri saman.
Post Reply