Já, ég nota hann lítið sem ekkert, hef bara ca einu sinni til tvisvar notað hann.. glersugan og sniglarnir halda öllu hreinu ásamt hinni ryksugunni.. Þetta er í raun bara þarna.. var í búrinu og ég tók það ekki úr þegar ég setti það upp
Og takk fyrir ábendinguna.. ég tek hann úr við tækifæri.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Birkir wrote:Sé þarna svona segul-glerhreinsara. Ég myndi síður nota slíkt verkfæri því með tímanum gæti það farið að rispa glerið á búrinu.
Ég var einmitt að kaupa mér svona segul til að hreinsa glerið (sem ég hef reyndar ekki þurft hingað til ) Keypti hann í fiskó og er hann svona grár eða akkúrat svona
það er aðallega ef það festist sandur eða drulla á púðanum...
ég var með svona segul sem fór niður i sandinn og hef ekki notað hann síðan, enda fullur af sandi.
En þessir mag-float eru fínir fyrir það að það er ekki svona ull eða efni sem hreinsar, semsagt sandkorn og drasl fara ekki inní púðann.
Það er svona grófur bursti bara á mag-float seglunum.