ég gat ekki séð betur en að vargurinn okkar er í næsta þætti af dýravinum á skjá einum. ég var alveg búinn að gleyma því að hann hafi fengið heimsókn frá þeim.... það verður gaman að fylgjast með þessu
Þetta var fínt, vantaði samt meira af fiskamyndum, td. sást Red-tail ekkert, stórundarlegt þar sem það fer talsvert fyrir honum.
Vona svo að sverðdragafórnin vekji ekki einhver hörð viðbrögð.
Þarna fékk maður líka að sjá styrjuna. En já sammála því að þeir hafi sýnt frekar lítið af þessum monsterum, var að horfa á þetta í gær og það
er pínu þannig að þeir séu að reyna að troða eins miklu af auglýsingum í þetta og hægt er og því gefst ekki tími til að skoða dýrin betur Það sem fram kam var hins vegar vissulega mjög flott.
Viðtalið við mig stóð vel og lengi, ég fór ítarlega í fiskana og mikið myndefni var tekið en svona er þetta, svo er klippt og nokkrar mínútur notaðar. Hún Guðrún hafði á orði að þetta væri efni í heilan þátt, svo er spurning hvort katta og hundafólkið nenni að horfa á meira en 4 mínútur af fiskum.
Fólk verður að sætta sig við að það eru fleiri gæludýr en hundar og kettir.
Ég nenni t.d. aldrei að horfa á þennan þátt því þetta er svo mikið af hundum, köttum og auglýsingum.
Ásta wrote:Fólk verður að sætta sig við að það eru fleiri gæludýr en hundar og kettir.
Ég nenni t.d. aldrei að horfa á þennan þátt því þetta er svo mikið af hundum, köttum og auglýsingum.
Ég sé ekki þessa stöð, en ég er alveg sammála þér. Ég hefði ekki áhuga að horfa annað en þátt um fiska sem "gæludýr".
Fyrir mér er þetta þó ekki réttnefni, því ég gæti aldrei gælt við fiska. Þetta eru tómstundadýr hjá mér.
Ætli hestamenn kalli hestana sína gæludýr
Jú hestar eru í sumum tilfellum gæludýr.
Annars finnst mér þeir vera meira en það.
En förum ekki nánar út í það hér
Já það er ekki auðvelt að gera öllum til hæfis. Eins og þetta með íþróttirnar.
Mætti gefa meiri tíma fyrir hvert hobby og jafnan.
En halló það verður aldrei meðan við ráðum engu
Hvað segið þið um að kalla fiskana húsdýr, í orðsins bókstaflegustu merkingu og málið er dautt? hehe Reyndar eru sumir fiskar "kelnir"
og ekki er það til að manni þyki þeir e-ð leiðinlegri
Nákvæmlega það er hvort eð er allur fjandinn sem fólk er með sem gæludýr (húsdýr)
Vargurinn sagði svo réttilega að maður fer ekki út með fiskana sína
Maður (viðrar) sýnir þá bara á netinu (spjallinu)
Squinsy var í Dýravinum áðan, flottur kallinn, ég átti reyndar von á að það yrði mamma hans sem sýndi tjörnina.
Þetta var nú aumi shortarinn, sýnt í 3 mínútur frá tjörninni en á undan var heillangt viðtal við einhverja hundakerlinu sem grenjaði bara yfir því hvað vinir hennar hefðu verið leiðinlegir við hana.