Fóður

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Fóður

Post by Vargur »

Flestir eru sammála um að fóður hefur mikið að segja í lit fiska og auðvitað heilbrigði og lífleika þeirra.
Ég hef alltaf gefið fiskunum mínum fjölbreytt fóður, nokkrar týpur af fóðri frá fleiri en einum framleiðanda. Með því eru meiri líkur á að fiskarnir fái þau efni sem þeir þarfnast og þá er hugsun mín að fóðurtegundirna bæti hver aðra upp, ef eitthvað vantar í eina týpuna þá er líklegt að sú næsta gæti innihaldið það.
þessa dagana er ég að hugsa um fiska fyrir mág minn, hann er með Malawi sikliður í 240 l búri, fiskarnir koma frá mér og búrið er í fínu lagi, fiskarnir heilbrigðir og allt ástand gott. Það vakti athygli mína að fiskarnir eru frekar litlitlir, ekki eins skýrir og fallegir litir í þeim og hjá ættingjum þeirra sem eru í mínum búrum.
Ég tel að fóðrið sé skýringin, þe of einhæft fóður, fiskunum er gefið ágætt flögu fóður frá virtum framleiðanda og lítið eða ekkert ferskt grænmeti.

Sjálfur gef ég mínum fiskum fjölbreitt fóður, nokkrar týpur frá nokkrum framleiðendum, mikið af fersku grænmeti og spirulina töflur.

Að mínu mati er margt fiskafóður algert drasl, fullt af fylliefnum og unnið úr lélegu hráefni og því ná fiskarnir ekki þeim litum sem þeir eiga að vera í. Þörungur, grænmeti, gróðurleifar osf inniheldur efni sem kalla fram og auka bláa og dökka liti í fiskum meðan margt sjávarfang og smádýr auka rauða og gula liti.

Image
Maingano, fæddur og uppalinn hjá mér.

Ég hef prófað margt fóður og gef í dag nokkrar tegundir sem ég hef hvað besta tilfinningu fyrir.

Image

Meginuppistaðan í fóðrinu hjá mér hjá Malawi fiskunum er Sera granugreen og Dijanapet tropi, blandað með fiskeldisfóðri til að drýgja það. Ca. annan hvern dag fá þeir Dijanapet spirulina töflur og öðru hvoru Tetra shrimp sticks, 3-4 sinnum í viku ferskt grænmeti eins og gúrku, broccoli. kál, kartöflur og annað sem til fellur og 1-2 sinnum í viku örlítið af rækju, einnig gef ég öðru hvoru ýmsar aðrar fóðurtegundir.
Ég býst reyndar við að ég muni bæta einhverjum týpum af Tetra fóðri í þetta því ég hef góða tilfinningu fyrir því fóðri.

Image

Amerísku sikliðurnar fá sama fóður en meira af rækju og einnig próteinríkarfóður eins og Sera Granured og fiskeldisfóður ásamt convict seyðum osf sem auka snakki.

Hvaða fóður gefið þið ykkar fiskum helst ?
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Ég gef könunum minum blóðorma ,rækju og þurrfóður i bland.
Samt gef ég rækju i flest skipti en blóðorma i það næsta og þá koma einmitt litirnir framm 8) Sérstaklega þegar blóðormarnir eru gefnir en þeir verða alltaf lika jafn æstir þegar rækjan birtist.
Annars held ég að þeir éti allt :)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Fóður

Post by Bruni »

Sælt veri fólkið og til hamingju með gott spjall. Rakst á fínar pælingar um fóður. Ég hef gefið mínum fiskum nánast eingöngu King British fóður í mörg ár. Frosnar rækjur dottið ofaní endrum og sinnum. Mér virðist ekki þurfa meira til, fiskarnir stórir, flottir og heilbrigðir. Held að maður fái mest fyrir peninginn frá þessum framleiðanda.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Flest fiskafóðurmer eins uppbyggt, maður þarf bara að skoða aðeins innihaldslýsinguna og reyna að sneiðja hjá fóðri sem er að mestu fylliefni og vona að hráefnið sem notað er i framleiðsluna sé sem best.
Segðu mér Bruni, hvar er King Brithish fóðrið selt, er það ekki í einhverjum stórmörkuðum, veistu verðið og magn ?
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

fóður

Post by Bruni »

Fóðrið fæst í Dýralandi. Mig minnir að verðið liggi einhversstaðar um 2000 kallinn á dolluna sem er c.a 1 lítri Umbúðirnar ekkert sérstaklega flottar en innihaldið virkar vel.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Í byrjun gaf ég alltaf sama þurrfóðrið en hef núna verið að prufa mig áfram.
Það sem ég hef verið að gefa er: Spirulina tablets, þurrfóðrið, Tetra Shrimp Sticks, Tetra Mini Sticks, rækjur, greænmeti, ávextir, blóðormar og granured sem er próteinríkt fóður

Mér langar soldið til að prófa granugreen, veistu nokkuð hvar það fæst?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sera granugreen fæst í Dýraríkinu.

Nú er ég að prófa fóður frá Tetra sem mér líst mjög vel á,
TetraPro Vegetable en það inniheldur eimitt mikið grænfóður og spirulina.

Image
Premium food for all ornamental fish - for increased resistance to disease.

the new Multi-Crisp with a concentrated content of spirulina algae
with healthy, easily digestible vital nutrients contained in spirulina algae
promotes the fish's resistance to disease and vitality
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Re: Fóður

Post by Birkir »

Vargur wrote:Amerísku sikliðurnar fá sama fóður en meira af rækju og einnig próteinríkarfóður eins og Sera Granured og fiskeldisfóður ásamt convict seyðum osf sem auka snakki.
Takk fyrir eðal grein. Góð viðbót við umræðurnar í "aðstoð". Ég sé fyrir mig margann spekinginn hafa skoðanir á hinu og þessu hérna.

En tékkaðu það sem ég feitletraði að ofan... gefa þeim Convikt seiði?
:shock: Var þetta einhver einkahúmor því að ég hef aldrei heyrt um þetta. Jú auðvitað éta síkliður oft minni fiska og fá þá kannski í matinn á hátíðardögum... Rak upp stór augu þar sem þú nefndir Convict seiði sérstaklega.


Ég gef mínum Tetra Cichlid Granules, rækjur og einhverjar botnfiska töflur frá Dakana PET(veit ekkert hvort að það sé e-ð varið í þær)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

hvar er King Brithish fóðrið selt, er það ekki í einhverjum stórmörkuðum
Þetta var selt í Nettó, veit ekki hvort það fæst þar ennþá og kostaði mjög lítið.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Image
Image

Þetta er það fóður sem ég er að nota ásamt fóðri frá King British, rækju, fisk og svo á ég ýmislegt í frystinum sem ég þarf að fara að prófa.... blóðorma, daphniu, Red Plankton og kjötmix sem ég bjó til fyrir diskusana. Í því eru hjörtu úr nautum, paprikuduft, spirulina, hvítlaukur, spínat, fiskafóður.. man ekki hvort ég setti eitthvað meira í það.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

En tékkaðu það sem ég feitletraði að ofan... gefa þeim Convikt seiði?
Var þetta einhver einkahúmor því að ég hef aldrei heyrt um þetta. Jú auðvitað éta síkliður oft minni fiska og fá þá kannski í matinn á hátíðardögum... Rak upp stór augu þar sem þú nefndir Convict seiði sérstaklega.
Lifandi fóður eins og seiði og smáfiskar er frábært fyrir fiskana, stútfullt af vítamínum og steinefnum .
Ég nefni convict seiði sérstaklega vegna þess hve þeir eru auðveldir í ræktun, bara setja karl og kerlingu saman í vatn og seiðin eru komin eftir nokkra daga, jafnvel þó annað kynið vanti þá reyna convict samt hrygningar.
Last edited by Vargur on 03 Jan 2007, 07:47, edited 1 time in total.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Vá. Það þykir mér áhugavert.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

Vargur wrote:
En tékkaðu það sem ég feitletraði að ofan... gefa þeim Convikt seiði?
Var þetta einhver einkahúmor því að ég hef aldrei heyrt um þetta. Jú auðvitað éta síkliður oft minni fiska og fá þá kannski í matinn á hátíðardögum... Rak upp stór augu þar sem þú nefndir Convict seiði sérstaklega.
Lifandi fóður eins og seiði og smáfiskar er frábært fyrir fiskana, stútfullt af vítamínum og steinefnum .
Ég nefni convict seiði sérstaklega vegna þess hve þeir eru auðveldir í ræktun, bara setja karl og kerlingu saman í vatn og seiðin eru komin eftir nokkra daga, jafnvel þó annað kynið vanti þá reyna convict samt hrygningar.
Mér finnst þeir bara ekkert auðveldir í ræktun :?
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Ég keypti í dag granugreen og Tetra PRO Vegetable.
Bæði innihalda spirulina og Malawi fiskarnir tóku mjög vel við þessu
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hefur einhver prófað að fara niður í fjöru og tínt marflær til að gefa?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þegar þið gefið brokkoli hendið þið litlum hausum ofan í eða myljið?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Fiskarnir hjá mér éta það ekki nema soðið og þá hendi ég litlum hnausum ofaní og þeir rífa það í sig.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Ég nota sömu aðferð

Síðan var ég að bæta við TetraPro Colour svona fyrir ameríkana og aðra fiska
dellukall
Posts: 29
Joined: 04 Dec 2006, 15:16

Post by dellukall »

Ég hef aldrei heirt talað um soðið grænmeti fyrir
fiska ,,,en góð hugmynd.
Aftur á móti hef ég gert rækjumixfóður fyrir mína malawi fiska
og þeir eru brjálaðir í það og dafna mjög vel á því !!!
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

dellukall wrote:Ég hef aldrei heirt talað um soðið grænmeti fyrir
fiska ,,,en góð hugmynd.
Aftur á móti hef ég gert rækjumixfóður fyrir mína malawi fiska
og þeir eru brjálaðir í það og dafna mjög vel á því !!!
þú verður bara að passa að þeir fái ekki of mikið prótín, það getur farið illa með þá
ég gef mínum Malawi rækjur 3-4 sinnum á mánuði, síðan gef ég þeim gúrku og appelsínu oftar, þú ættir að prófa það líka svona á móti rækjunum
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Gott að geta hent afgöngum af grænmeti í búrið eftir matinn.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

sliplips wrote:Gott að geta hent afgöngum af grænmeti í búrið eftir matinn.
já það getur verið þægilegt, það er reyndar svakaleg samkeppni hér á heimilinu um hver fær restina af grænmetinu
Ég er með eðluna og fiskana, hitt pakkið er með fugla og nagdýr
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

LOL
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
dellukall
Posts: 29
Joined: 04 Dec 2006, 15:16

Post by dellukall »

Ég hef ekki verið að gefa þeim rækju eingöngu,
heldur 50% rækjur og 50% grænar baunir,(ekki ora :))
og bindiefni ásamt fjölvítamíni.
Ég gaf þetta eingöngu í 2-3 ár með góðum árangri...
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

ok, ég hef ekki einusinni það mikla reynslu af áhugamálinu, hef verið í þessu í rúmt ár :lol:
en það er ótrúlegt hvað maður lærir mikið á því að vera á þessum spjöllum
Baunirnar eru sniðugar, hvernig útbýrðu þær?
Hefuru prófað að gefa þeim spirulina töflur? ef ekki þá mæli ég með því
dellukall
Posts: 29
Joined: 04 Dec 2006, 15:16

Post by dellukall »

Ég er sammála um þetta með spjallið.
"Þetta er algjör upplýsingabanki"
Annars er rækjumixið nokkurnvegin í þessa áttina.
0,5 kg rækjur (heilar með haus og hala,soðnar)
0,5 kg grænar baunir.ég hef notað þessar frosnu í pokum
Hálf tafla fjölvítamín(sem er ætluð fólki)
gelatin duft.sett í síðast.
keyra allt í góðum mixer þar til þetta er orðin fínn grautur,
Setja síðast gelatínið samkv ráðlögðum skammti á pakkningu.

kveðja...
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta er fínasta mix, margir bæta broccoli, smá gulrótum og spirulina í svona mix.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Já, ég þyrfti að fara að blanda mitt eigið mix

Síðan mæli ég með að þið prófið að gef appelsínu/klementínu!!!
Það er svakalega gaman að gefa þeim þetta og flestar taka vel í þetta, nema tanganyika af einhverri ástæðu, en það sem kom mér á óvart var að Ameríkusíkliðurnar eru hrifnir af henni
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

gelatine? er ekki töluvert af ónáttúrulegum efnum í því og hugsanlega of mikið af dýrafitu?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er allt í lagi að nota þetta Birkir, þetta er bara venjulegt matarlím. Ég hef notað svona í fiskafóður.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Post Reply