Stofnum félag.

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Eigum við að stofna félag skrautfiskaeigenda ?

Poll ended at 28 Oct 2006, 18:16

Já, ég er með.
9
100%
Nei, bara rugl.
0
No votes
Mér er sléttsama, verð ekki með.
0
No votes
 
Total votes: 9

User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Ólafur wrote:Skrautfiskur er snilldarnafn og nú auglýsi ég eftir lógói fyrir félagið :D

Svona einhvernvegin:


Skrautfiskur

Félag Islenskra skrautfiskaeigenda

F.I.S.E

Svo kemur einhver mynd :?
eða félag íslenskra skrautfiskakvenna og karla :)

F.I.S.K
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Hvað segiði? er eitthvað að gerast með þetta félag?
ég væri allveg til í einn fund eða svo núna um jólin
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hjólin snúast hægt en snúast þó, ég veit ekki hvort fundur fyrir jól sé góð hugmynd þar sem almennt hafa allir meira en nóg að gera í desember en þó ef áhuginn er til staðar er ég til.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Hver væru hagsmunál slíks félags og hvernig stefnur og reglur?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það á að vera til eitthvað um það einhversstaðar en það væri líka gott að fá tillögur frá ykkur.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eigum við ekki að stefna á að halda fund strax í byrjun janúar, það hafa flestir nóg að gera fyrir jól og svo hangið þið landsbyggðarhyskið náttúrulega hjá ættingjum milli jóla og nýárs. :)
Pippi313
Posts: 4
Joined: 19 Dec 2006, 06:59

Post by Pippi313 »

Sæl verið þið.
Pétur heiti ég og væri meira enn lítið til í að vera með í þessu félagi, þó svo að ég sé eitt af þessu landsbyggaðarhyski :D
Ég er búsettur á Sauðárkróki, ég er með 400 lítra búr og eitt 60 l sem ég nota sem lendingarbúr þegar ég læt nýja fiska vera í áður enn ég skelli í stóra búrið.
Ég er með svona kokteil í búrninu hjá mér, skala, hákarla, bótíu, synadontus,plegga,brúska,gúrama og 1 firðildafisk.
Ég hitti einmitt á þig Vargur núna seinustu helgi þegar ég kom með Skalana til þín frá Svabba.

Kv. Pippi
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Flott að heyra frá þér Pétur. Það er nú mikil gróska í fiskahobbyinu þarna hjá ykkur, eruð þið ekki með eitthvað félag þarna ?
Pippi313
Posts: 4
Joined: 19 Dec 2006, 06:59

Post by Pippi313 »

Jú reyndar er svona smá félag hérna hjá okkur, Skrautfiskafélag Skagafjarðar :D
Jú það eru nokkuð margir hérna í fiskunum og virðist sem að áhuginn sé aukandi hérna í firðinum.
Sem er bara gargandi snilld.

Kv. Pippi
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Post by Petrún »

Ég verð með. Ætla að reyna að gera eitthvað lógó fyrir þetta einnig. ;)
User avatar
Atli
Posts: 225
Joined: 18 Dec 2006, 05:57
Location: Reykjavík

Mættur á svæðið

Post by Atli »

Ég er mættur og búinn að skrá þáttöku í félag skrautfiskaeigenda [FSFE].

BTW. þetta er miklu skemmtilegri þráður hér heldur en hjá tjörvari þó svo ég taki líka jafnt þátt í honum. En mig langar að sjá fleiri meðlimi á þessu vef hérna heldur en 70 manns sem eru skráðir meðlimir.

Þetta takmarkar svo mikið fikaáhugafólk að maður veit allveg hverjir skoða bara þessa síðu... við sem kunnum að synda .... og gefa fiskunum okkar að borða :)

Heyrumst, and spread the word!
Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
Rúnar Haukur
Posts: 160
Joined: 13 Nov 2006, 19:13
Location: Akureyri - norðan við á
Contact:

Post by Rúnar Haukur »

Er með í svona félag :D

Gæti hýst vef félagsins ef út í slíkt væri farið
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Stefnan er að hafa fund föstudaginn 4. janúar kl. 20.
Strákarnir í Dýragarðinum, Síðumúla 10 ætla að vera svo vænir að leyfa okkur að hittast þar og sýna okkur verslunina í leiðinni.
mundivalur
Posts: 58
Joined: 20 Sep 2006, 17:06

Post by mundivalur »

Ég er til,það verður bara einhver að taka upp það sem þið segið á fundunum og senda mér austur :lol: :lol: :lol:
Rúnar Haukur
Posts: 160
Joined: 13 Nov 2006, 19:13
Location: Akureyri - norðan við á
Contact:

Post by Rúnar Haukur »

Auðvitað verður vefvarp af fundinum fyrir okkur sem búum í paradísunum ekki sódómu :D errakki ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Eitthvað passar nú ekki saman dagurinn og dagsetningin á þessu fundarboði ??
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Nú já, ég varð að treysta á aðra varðandi dagsetninguna þar sem ekki fannst dagatal á heimilinu, :oops: en það er þó föstudagurinn sem er um að ræða, hvaða mánaðadagur er þá ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er þá föstudagurinn 5. janúar.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Muna fundinn !!
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

föstudaginn 5. janúar, kl 20:00, Dýragarðurinn, Síðumúla 10

Bara hafa þetta á hreinu :wink:
Rúnar Haukur
Posts: 160
Joined: 13 Nov 2006, 19:13
Location: Akureyri - norðan við á
Contact:

Post by Rúnar Haukur »

Smá forvitni...

Er búið að stofna félagið og ef svo er hverjir eru í forsvari ? eða er þetta kanski stofnfundur og þá aftur er hægt að skrá sig einhverstaðar sem stofnfélagi ef maður getur ekki mætt ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Aðalhvatamaðurinn að þessu félagi og sá sem mest hvílir á heitir Hlynur Ingi og hann tekur við skráningum. Best er að senda honum pm með a.m.k. nafni og netfangi.
Það hefur verið haldinn 1 fundur svo faktískt séð er búið að stofna félagið.
Rúnar Haukur
Posts: 160
Joined: 13 Nov 2006, 19:13
Location: Akureyri - norðan við á
Contact:

Post by Rúnar Haukur »

Eitthvað að frétta af fundinum ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Fundurinn var fínn, mest fóru fram almennar umræður um fiska og tilheyrandi. Fundargestir kynntu sig og sögðu frá sínum fiskum osf.
Þetta var mjög gaman og fræðandi.
Nú mun stjórnin aðeins ráða ráðum sínum en svo er næsti fundur áætlaður að um mánuði liðnum og verður hann nánar auglýstur síðar.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Ég var út á landi með erlenda gesti mína.
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

ég ætlaði að mæta en svo steingleymdi ég þessu :|
Post Reply