Stórt ! Ef þú ætlar að hafa þessa fiska saman og fleiri til duga 400 lítrar eitthvað.
Það er kannski frekar málið að ákveða búrstærðina (eins stórt og hægt er) og vinna svo útfrá því.
iss fyrst kallinn er að bjóðast til að smíða hvaða stærð sem er, er um að gera og láta hann smíða yfir 1000L búr
Þá gætiru fengið þér tiger shovelnose en á endanum myndi hann samt éta hina.
Ef þú vilt ekki svona risabúr er alveg hægt að fá skemmtilega fiska í t.d. 400L búrið.
Aðal atriðið væri að sleppa tiger shovelnose, gætir þó fengið þér lima shovelnose í staðinn og wc og black ghost væru allir í góðum málum í 400L
black ghost eru skemmtilegir, þarft bara að passa svolítið hverja þú setur með honum svona til að byrja með því þeir stækka hægt. Passa að setja ekki fiska sem gætu étið hann og að hann fái tækifæri til að éta svo hann svelti ekki, getur verið seinn að éta.
bara einhverja rólega / semi-grimma fiska sem eru ekki of gráðugir á mat og sem geta ekki étið hann.
Myndi t.d. ekki setja hann með síkliðum.
Minn er sáttur og étur vel, er með Polypterus-um, clown knife-um og fleirum.
í stuttu máli er það ætt fiska frá afríku sem hefur verið óbreytt frá tíma risaeðlanna, það eru um 17 tegundir eftirlifandi og flestar fáanlegar til einkaeignar, þó fáar tegundir hafa verið til hérna á Íslandi.
Þeir verða frá 30cm og uppí 100cm þó minnstu tegundirnar eru bara fáanlegar hér á landi.
Senegalus er algengastur.
Þeir eru ekki mjög grimmir og ganga vel með öðrum fiskum, þeir éta samt alla litla fiska.
Ropefish er líka náskyldur þeim, einn sinnar ættar.
gaby0702 wrote:Hvar er hægt að fá ropehead, polypterus og black ghost ?
ropefish eru til í fiskó, dýragarðinum og dýraríkinu.
polypterus senegalus eru til í fiskó.
polypterus ornatepinnis eru til í dýragarðinum.
black ghost eru til í dýragarðinum.
já bara hvaða stærð af skölum sem er og hvaða ryksuga?
ef þú ert að tala um ryksugufisk skiptir það engu máli, það er ekkert nauðsynlegt að hafa ryksugur og black ghost étur þær líklega ekki.