Minn er alltaf að fá á sig hvítar skellur öðru hvoru. Ég fæ ekki betur séð en það sé vegna þess að hann er að tálga á sér roðið með því að reka sig utan í.
Áttu mynd af þessum hvíta/hvítu blettum?
Sjáðu hvíta blettinn á Guttormi. Hann hefur fengið svona áður á hliðina og líka á hausinn. Ég hef ekkert gert við því og það hefur gróið og skilið eftir sig ör. Það endar með því að ég fer að kalla hann Örvar
er ekki með vélina eins og er en skal redda því hið fyrsta, en
þetta sem er á Guttormi þínum lítur soldið út eins og það
sé smá "innfallið" en minn er með hvíta skellu sér og lítur ekki
beint út fyrir að það sé sár undir hjá honum.
Jæja, skellti 2 matskeiðum af salti í búrið í fyrradag og hefur þetta
farið dvínandi síðan þá. Þannig að ég held þessu bara áfram þar til þetta er farið.
Enn kemur upp blettavesen hjá öðrum óskarnum og virðist ekki
gera neitt gagn að salta í þetta skipti, þar sem að þetta virðist vera að aukast Hvað er best að gera?
Þar gæti legið ástæðan fyrir veseninu ef þú hefur aldrei skipt um kolafilterinn. Kolin endast í max 6 vikur og sennilega styttra í svona litlum filter. Eftir það geta þau farið að leka óþverranum aftur í búrið.
Mín ágiskun er að þetta er bara sár, minn rauði fær stundum svona þegar það eru smá fætingur í milli óskarana tveggja, þá lendir hann stundum utan í stein og þá rifnar bara smá hreistur af, hverfur eftir svona viku, gerði það allavegana hjá mér
En mynd getur hjálpað mikið til að dæma um hvað þetta er, búinn að spurja á oscarfish.com ?
Oscarfish er nú sennilega eitt al lélegasta forum il að spyra að einhverju, þeir mundu bara skammast yfir því að hann væri í litlu búri.
Allir aðalgaurarnir þar eru hættir og síðan mynnir helst dýraríkisspjallið.
Gleymdum myndavélinni í gær Get reynt að gera það í kvöld.
Hinn óskarinn er hins vegar pottþétt með sár og þetta er ekki líkt allavega
ekki eins og er.
sárið sem annar þeirra er með er jú svipað þessu bara aðeins dýpra og nýrra. Það er allt í "sóttkví" núna þar til þetta mál verður leyst
Af hverju ertu annars að losa þig við þína óskaradurga?