1000 litrar ættu að rétt duga undir svona skepnu í fullri stærð, reyndar eru þessi kvikindi lítið á ferðinni.
Ég fékk hann í fiskabur.is, eina búðin þar sem nánast öruggt er að maður rekst á óhefðbundna fiska.
Verðið er óuppgefið að svo stöddu en er ekki mikið hærra en verð á lítið merkilegum saltvatnsfisk enda verslunin fiskabur.is þekkt fyrir hógværa verðlagningu.
Mér finnst hann allveg gríðalega flottur ...ég man eftir honum í Fiskabur.is þegar að ég var að vinna þar. Gott að einhver sem að hefur vit á fiskum keypti hann, því að þetta er ekki beint byrjendafiskur.
Ég er aðeins búinn að vera að fylgjast með honum, hann er yfirleitt alveg hreyfingalaus á daginn en þegar maður slekkur ljósið fer hann strax á stjá og virðist hreinlega bíða eftir því að minni fiskar villist uppí "skófluna".
Ég vona bara að það gerist svo hann fái eitthvað að éta.
Ég setti "skófluna" í sér búr um daginn vegna þess að fyrri búrfélagar voru aðein fyrir að narta í uggana á honum þegar hann lá á botninum.
Hann er alveg að fíla sig núna, það er eins og hann svífi í vatninu þegar liggur hreyfingalaus fyrir ofan botninn.
Ég setti nokkur johannii seyði hjá honum í von um að hann fengi sér eitthvað snakk. Hann virðist ekki ná þeim þannig ég hef fórnað nokkrum Gubby í hann. Þeir eru ekki lengi að hverfa. Stefnan er að ala nokkur convict seyði fyrir hann, 1000 stykki eða svo.
"Skóflan" er farin að gæða sér á rækjum þannig nú þarf ég ekki að vera að vesenast með að fóðra hann á lifandi þó það verði í einhverjum mæli í framtíðinni.
Rakst á þessa mynd á MFK., 29" skóflunefur að gæða sér á 19" skóflunef.
Ég bætti einum við í skrímslasafnið áðan, um er að ræða Polypterus senegalus sem er ættaður frá vestur og mið hluta Afríku.
Senegalus getur orðið um 40 cm og jafnvel stærri í náttúrunni.
Sá sem ég er með er um 15 cm að ég held (gleymdi að mæla).
Eimitt Ólafur, ég ákvað að láta hann ekki sleppa þar sem þetta var sá síðasti. Ég er orðin mjög heitur fyrir því að safna að mér fiskum sem geta talist frekar óvenjulegir, þe. meðan ég hef pláss fyrir þá.
Það er talað um að fullvaxinn svona fiskur þurfi um 200 l búr.
nú verður kallinn að stækka við sig i búrum .
vona að baðkarið sé laust svona til að byrja með .
annars sá ég einn sem leysti pláss vandamál með plastbarnasundlaug , fyllt'ana af skötum
Ég er ekki með baðkar en sturtubotninn gæti gengið.
Reyndar er ég að hugsa um að láta kanski Amerísku haugana fara síðar, veit samt ekki alveg, tími ekki Óskurunum. Ætli ég endi ekki á fleiri búrum.