400L. Malawi
Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta
400L. Malawi
Þá er komið að því að setja upp þráð fyrir búrið sem við keyptum um daginn, og þar sem ég er líka kominn með nýja myndavél þá get ég boðið ykkur uppá þokkalegar myndir.
Búrið er 400L. Juwel og í því eru...
3 stk. M. estherae OB
3 stk. Sokolofi
5 stk. Y. lab
1 stk. Livingstoni
3 stk. Venustus
2 stk. Johanni
2 stk. Borleyi
1 stk. Red tail shark
2 stk. Decorus
2 stk. Pseudotropheus flavus
4 stk. Ancistur
Set inn nokkrar myndir
Þetta var ein af fyrstu myndunum sem ég náði á nýju vélina
Johanni
Heildar mynd
Þessi vildi vera með
Sokolofi
Y. lab eru fyndnir, það er eins og þessi og einn annar hjá mér séu með yfirvaraskegg
Mér fynnst þessir tveir mjög flottir
Livingstoni
Decorus
Og eina í viðbót
Borleyi
Það var magnað þegar ég keypti Borleyi og var að setja þá í búrið, þá héldu hinir að þeir væru að fá að borða og biðu eftir fæðu. Svo kom eitthvað (sem þeir héldu að væri matur) og þeir stukku á þetta eins og enginn væri morgundagurinn, en það var bara lítill Borleyi. Venustus eru stæðstir og frekastir og einn þeirra náði honum um leið og hann lenti á vatnsyfirborðinu og hélt honum í kjaftinum í nokkrar sek, svo fattaði hann að þetta var bara fiskur (eða eitthvað) og slepti honum. Eftir þetta hafa þeir alveg fengið að vera í friði.
Kem með fleiri myndir seinna, það er bara svo gaman með nýju myndavélinna

Last edited by Höddi on 22 Jan 2008, 23:02, edited 4 times in total.
ZX-6RR
-
- Posts: 1482
- Joined: 20 May 2007, 01:16
- Location: rvk
Takk fyrir.
Nú hef ég gefist upp á stóru plöntunni (sem er lengst til hægri í búrinu) einhverjum þykir gott að ná sér í smá snarl, og sést það á plöntunni. En það sem verra er að Venustus þykir rótinn af henni mjög góð og þeir rífa hana upp til að éta rótina, þegar ég kom heim í gær var hún kominn hálfa leið uppúr mölinni og engu líkara en hakkavél hafi komist í rótinna. Svo í dag var hún bara fljótandi um búrið þannig að ég gafst upp og henti henni.
Þarf að fara í leiðangur á morgun eða helgina til að kaupa nýja.
Einhverjar sem þið mælið með?

Ég verð að segja gefa þér rós í hnappagatið fyrir þessar myndir hjá þér. þetta eru rosalega fínar myndir hjá þér og einnig óska ég þér til hamingju með nýju myndavélina! - Hvað kostaði hún annars og hvar keyptirðu hana?
PS. ég ætla nú samt ekki að vera með myndavélapælingar á þessum þráð, vildi bara forvitnast!

Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
Takk fyrir hrósið.
Myndavélinn var keypt fyrir mig í USA og kostaði um 400 USD
Ég setti líka upp þráð um hana
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=1908

Þá er kominn tími á smá update..
Ég er búinn að týna einum Borleyi
Hann hefur sennilega ekki höndlað jólastressið og ákveðið að láta sig hverfa, og það tókst hjá honum því það hefur ekkert til hans spurt síðan fyrir jól.
Þá á ég bara tvo svoleiðis eftir, set nýja mynd af öðrum.
Og "Herra yfirvaraskegg" ákvað aðeins að monta sig.
En svo er það þessi hér....
Það er búið að vera einhvað vesen með hann, eins og sést á myndinni þá eru einhver sár á honum. Þetta kom fyrir um daginn líka og þá saltaði ég og hækkaði hita og hann lagaðist, en nú er þetta komið aftur. Svo í morgun þá er sárið aftan á honum orðið ljótt.
Það sér ekkert á neinum öðrum fiskum svo er þetta kannski bara eftir slagsmál þar sem hann er nú sá stæsti í búrinu? Hvað haldið þið
Eitt að lokum. PH er of lágt hjá mér, þegar ég mæli vatnið með Tetra test þá breytist liturinn ekkert á PH skalanum þannig það er ca 6.4.
Ég setti nokkrar skeljar í búrið en það hefur ekki hækkað, þarf örugglega bara fleiri.
Svo spurningin er... þarf ég eitthvað að vera að eltast við þetta? Hefur það einhver áhrif á fiskana

Last edited by Höddi on 30 Dec 2007, 14:56, edited 1 time in total.
ZX-6RR
Ég mundi ekki hafa stórar áhyggjur af pH ef fiskarnir haga sér eðlilega og litirnir í þeim eru góðir. Tetra testin eru líka ekki nógu góð til að mæla ph nákvæmlega. Ef skeljarnar duga ekki þá getur þú prófað að hræra smá matarsóda út í vatn og hella í búrið, byrjað td. á sléttfullri teskeið og mælt svo.
-
- Posts: 1482
- Joined: 20 May 2007, 01:16
- Location: rvk
Ég kom við í Fiskabúr.is í dag (eins og svo margir aðrir, brjálaða að gera) og keypti nýjar perur í búrið, filter í dæluna, kvuðunga og svo einn ungann Johanni.
Perurnar heita Sun glo og Flora glo og er birtan allt önnur núna og komið tækifæri til að reyna meira með lifandi gróður.
Hér er mynd af nýliðanum
Hann vekur smá forvitni hjá hinum og virðist vera frekar hræddur við þá, hangir mikið uppi í öðru hvoru horninu. Það er aðalega Yellow lab sem er að angra hann sem kom mér á óvart þar sem þeir hafa verið svo rólegir hjá mér. En hinn Johanni minnir hann á sig þegar hann sér hann, enda mikill stærðarmunur á þeim.
Hér eru hinir aðeins að skoða hann
svo ein í lokinn af stóra Johanni

- Mozart,Felix og Rocky
- Posts: 409
- Joined: 03 Jan 2008, 17:33
- Location: 116 Kjalarnes
- Contact:
Ég fór í Fiskabúr.is í gær og keypti 110L búr, og eina litla ryksugu (decarus) til að hafa í því (eigum síðan eftir að kaupa meira í búrið).... en allavega ég setti ryksuguna í lítið seiðabúr (svona fljótandi) ofaní 400 lítra búrið á meðan ég var að þrífa hitt og setja það upp. Svo þegar ég vakna í dag og fer að kíkja á þetta þá hefur litla kvikindið komist uppúr seiðabúrinu og er semsagt komið ofaní stóra. Ég næ kvikindinu ekkert upp nema rústa búrinu mínu sem ég ætla ekki að gera, þannig nú þarf ég að kaupa annan í litla búrið.
ZX-6RR