1/2 tonn

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Já, hún Inga pantaði hjá mér og þetta gengur upp fær hún nokkrar.

En ég er ekki hissa á að það skuli vera frontósu mania í gangi , þetta eru svo fallega ljótir fiskar, verða stórir og eru þægilega rólegir.
Eru oftast í slow motion.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eins og diskus án vandræða.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

til hamingju með börnin :) passaðu þau vel :wink: hehe
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Ég hlakka til að sjá myndir :)
Sanity calms, but madness is more interesting.
John Russel

http://www.simnet.is/unnrey
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Nokkrar myndir frá "fæðingunni".
Ég á eitthvað bágt með að taka almennilegar myndir núna, hendin lætur illa en þetta er betra en ekkert.
Image
Mamman í búrinu áður en ég veiddi hana, takið eftir undirhökunni.
Image
Þarna er ég að fara að troða fingrinum á milli til að opna á henni munninn, ginið, kjaftinn... hvað kallast þetta eiginlega á fiskum??
Image
Þarna kom fyrsta gusan út úr henni. Ég var alveg ótrúlega spennt, fyrsta strippið minn :D
Image
Þarna eru þau öll í fötunni, held 17 alls.
Image
Komin í búrið, ég náði ekki betri mynd en þetta.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

En hvað þetta er skemmtilegt :D
Sanity calms, but madness is more interesting.
John Russel

http://www.simnet.is/unnrey
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Já! Þetta er æði!
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Ferlega er þetta flott :shock:

:Ljósk: af hverju þarf að "strippa" - hví meiga mömmurnar ekki hafa þetta í munninum eins lengi og þær vilja? /:Ljósk:
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Ofboðslega skemmtilegar myndir :!:
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Til hamingju með "litlum" :D - rosalegt skemmtilegt myndir
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Anna wrote:Ferlega er þetta flott :shock:

:Ljósk: af hverju þarf að "strippa" - hví meiga mömmurnar ekki hafa þetta í munninum eins lengi og þær vilja? /:Ljósk:
Því við mannfólkið þurfum alltaf að taka fram fyrir hendurnar á öllu eðlilegu og náttúrulegu.

En án gríns, þá held ég að það séu frekar litlir möguleikar fyrir seiðin að ná upp í búrinu.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eins og Ásta segir þá eru möguleikar seiðana í flestum tilfellum vægast sagt litlir. Einnig gengur meðgangan harkalega á móðurina, hún étur ekkert og ef mikið er af stórum fiskum í búrinu þá frestar hún sleppingu eins lengi og hún getur. Algengt er að kerlur nái sér ekki aftir eftir svona þrekraun og verða fyrir aðkasti annara fiska.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég myndi mæla með að setja smá fungus lyf í vatnið hjá seiðunum.. Svona 1/3 af skammti. Það er algengt að það fari fungus í kviðpokann þegar hann er svona stór.

Spennandi að sjá hvernig gengur að koma þeim á legg :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Glæsilegt!
Til hamingju með fyrsta (fiska) strippið þitt :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég sá reyndar mömmuna éta um daginn. Það gengur þvert á allt sem maður hefur heyrt og lesið en hún tók upp í sig nokkrar flögur sem höfðu fallið til botns. Ég fylgdist með henni í nokkurn tíma á eftir til að kanna hvort hún væri enn með hrognin og svo var.
Ég varð mjög hissa.

Ég held ég eigi fungus lyf en ætti ég þá að bæta aftur í jafnóðum og ég skipti um vatn eða er nóg að setja í eitt sinn?

Og takk Piranhinn, ég held bara að ég sé "natural born stripper" :P
Ætli Geiri viti af þessu?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er algengt að kerlurnar taki upp í sig flögur, sérstaklega á seinni hluta meðgöngunnar til að fóðra seiðin.
Ég man sérstaklega eftir einni johannii kerlu hjá mér sem var kostulegt að fylgjast með, hún var með kjaftinn stútfullan af spriklandi seiðum og opnaði bara smá rifu svo seiðin slypu ekki og barðist sína í dágóða stund við að koma flögunum í kjaftin.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta var einmitt fyrir nokkrum dögum sem hún át svo þessi kenning passar.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Er það ekki rétt hjá mér að það þarf ekki að gefa þeim á meðan þau eru með kviðpokann?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það mun vera rétt.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er önnur fronta komin með seiði í kjaftinn :D Ég held samt að það sé nýskeð svo ég ætla að bíða með að strippa hana þangað til ég kem heim frá Danmörku.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Frábær frjósemi hjá frontunum.
Þetta er nú meira flakkið á þér stelpa, hvað á að brasa í Denmark ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég ætla að fara með harðsnúnustu lögfræðinga landsins á jólahlaðborð :wink:
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

Ásta wrote:Ég ætla að fara með harðsnúnustu lögfræðinga landsins á jólahlaðborð :wink:
ja hérna..það er ekki amalegt að fara til DK til að fara á jólahlaðborð 8)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Inga Þóran wrote:
Ásta wrote:Ég ætla að fara með harðsnúnustu lögfræðinga landsins á jólahlaðborð :wink:
ja hérna..það er ekki amalegt að fara til DK til að fara á jólahlaðborð 8)
Þotuliðið getur þetta :lol:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Seiðin stækka alveg ótrúlega hratt og eru sum hver að verða búin með kviðpokann.
Ég var að vonast til að þetta myndi sleppa fram á mánudag en ég ætla að fá fólk til að fylgjast með og gefa fóður ef á þarf að halda.

Ég hugsa að kribbarnir fari að gera eitthvað skemmtilegt, þeir hafa verið í heitm dansi í nokkra daga.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Seiðin standa sig flott, voru öll lifandi þegar ég kom til baka. Það var eitt sem var vanskapað svo ég veiddi það upp í gær og notaði sem fóður.

Í kvöld ætla ég að strippa hina kerluna en það er farið að krauma í kjaftinum á henni.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Snilld. Ertu að gefa seiðunum artemíu?


Ég keypti liquid artemíu um daginn sem ég er að gefa seiðum hjá mér. Umtalsvert þægilegra en að vera að vesenast að klekja út sjálfur.. Lítil krukka sem er stútfull af nýklakinni artemíu, algjör snilld :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ofsalega spennandi að fylgjast með þessum þráð.. hlakka til að sjá fleiri myndir.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég keypti moskító lirfur handa þeim en á artemíuegg sem mér finnst hundleiðinlegt að vesenast með.
keli, hvar fékkstu þennan brúsa?

Ég reyni að ná fleiri myndum í kvöld.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ásta wrote:Ég keypti moskító lirfur handa þeim en á artemíuegg sem mér finnst hundleiðinlegt að vesenast með.
keli, hvar fékkstu þennan brúsa?

Ég reyni að ná fleiri myndum í kvöld.
Þetta svosem enginn brúsi, þetta er örlítil krukka sem kostar 2-3þús. Hinsvegar er aaansi mikið af artemíu í krukkunni, kostar líklega lítið meira en actual eggin og á að hafa sama næringarinnihald. Ég fékk þetta í dýragarðinum, ég hef ekki séð þetta annarsstaðar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply