Gaman væri að heyra hvað fiskar urðu fyrir valinu hjá fólki í byrjun.
Ég eignaðist mína fyrsu fiska fyrir um 30 árum og man lítið hvaða tegundir það voru, ég man þó að 2 rauðir platy voru í hópnum.
Þegar ég varð örlítið eldri og fór að kaupa fiska sjálfur þá voru það þessir hefðbundnu, neon, guppy, platy osf. en ég man þó ekki eftir neinum sérstökum fyrr en ég keypti mér í Amazon á Laugavegi, þá 13 ára gamall eitthvað sem var merkt sem white zebra, reyndist það vera mín fyrsta sikliða og var sennilega M. estherae og drap hann alla hina fiskana mína.
Fyrstu 2 fiskana sem ég fékk voru 2 slörgullfiskar sem ég fékk í afmælisgjöf þann 7.feb í ár, en því miður þá dó einn fyrir stuttu og hinn fiskurinn fór til vinkonu minnar. Þegar ég var búin að eiga gullfiskana í svona 3 mánuði í kúlu byrjaði ég að stækka við mig og svona
en fyrsti fiskurinn sem ég keypti var skali,
wow.hvernig á maður að muna þetta .öruglega 17 ár siðan og var mjög lýklega gubby.en ég man að firsti haplinn minn var Burtoni með v laga sporð
var sérstakur að því leiti.með honum var jack dempsey par og eithverjir zebrar.hann átti búrið ribbin sá
Ég hef nú reyndar ekki keypt mér neitt sjálf
En fyrstu fiskarnir sem voru keyptir voru 4 gullfiskar (reyndar sniglar en það eru ekki fiskar)
En áður en við keyptum þá vorum við búin að fá gefins gullfisk og brúsknef.
ég man ómögulega hver var sá fyrsti, það voru einhverjir hefðbundnir smáfiskar fyrst.
Eini sem ég man eftir var einhver kolbrjálaður barbi sem var að gera hinum fiskunum lífið leitt.
Ég fór með hann í eina dýrabúðina og skipti honum fyrir eitthvað annað.
Hann fór strax í það að taka alla fiskana í búðarbúrinu í gegn.
Stuttu seinna sá ég sama fisk.. í annari búð
einhver hafði keypt hann og skilað honum fljótt í næstu búð.
Mínir fyrstu fiskar voru Gullfiskar m/slæðusporð. 2 stk.
Sérvaldir úr stórum hóp í búðinni enda ekki sama hvernig Gullfiskur yrði keyptur.
Þeir eru báðir til enn og eru algerar fiskibollur.
Meira að segja nokkuð skemmtilegir greyjin.
fyrstu fiskarnir fékk ég fyrir eitthvað 2-3 árum síðan og það voru gubby fiskar en svo stuttu eftir það fékk ég mér convict par sem ég á ennþá með öllum hinum síkliðunum.
Fyrstu fiskanur voru eitt Pleggi og 3 Flying Fox. Vika eftir þeim komu 3 Corydorus. Pau eru allir enn á goðu lifið. Með sem seitna keypti ég Perlgurami og Brachydanyo .
Mínir fyrstu voru 2 gullfiskar ásamt öðrum sem ég fékk frá frænku minni þegar ég var um það bil 8 ára svo dóu þeir allir og ég hætti í nokkur ár svo byrjaði ég aftur og þá fékk ég aftur 2 gullfiska en fyrsti sem ÉG keypti var hann Bubbi bardagafiskur
Mitt fiskastúss byrjaði á því að dóttir mín rellaði í foreldrunum þangað til það var farið og keypt lítið búr ca.25.l og 2 gullfiskar sem hún hafði áhuga á í kannski 1 mánuð og þá lenti það á mér að hugsa um þá, sem hafði þau áhrif að maður ánetjaðist í fiskadellunni .
Pleggi sem ég á enþá í dag, keypti hann bara til þess að taka burt þörunginn í skjaldböku búrinu sem ég var með en síðan fór fiska áhuginn að taka sér bólfestu
Fyrsti fiskurinn sem ég keypti var handa systur minni og var einn gullfiskur (slæðusporður), en fyrstu fiskarnir sem ég keypti handa sjálfri mér voru 3 gúbbíar og einn gibbi
ég átti einhverja fiska sem snáði og man engan vegin hvort gullfiskur eða gúbbar komu fyrst en fékk ekki delluna fyrr en fyrr á þessu ári og þá voru það tvö convict seiði sem kveikti í delluni hjá mér
Mig minnir að það hafi verið gubby, jú örugglega því það var sennilega ekki verið byrjað að selja aðrar tegundir,og ef ég man rétt þá var það í búð í gömlu húsi á Hverfisgötunni ( held það hafi verið fyrsta Dýraríkið ) eða kannski ekki.
Fyrsti fiskurinn sem ég keypti var fimmrákavarbi eða 2 svoleiðis. Ég keypti þá fyrir um 2 árum og á þá ennþá en átti nokkra guppy sem ég fékk gefins áður en ég keypti barbana.
Fyrstu fiskarnir sem ég eignaðist voru venjulegir Guppýar sem mér voru gefnir en fyrsti fiskurinn sem ég keypti var svartur og appelsínugulur Slörgúppý sem ég keypti í Dýraríkinu meðan það var enn í Fichersundinu. Svo keypti ég mér nokkrum mánuðum seinna Black Mollý par.
Fékk minn fyrsta fisk um 1990 voru það tveir Corydoras aneus,
þær fylgdu með en ég var aðalega að kaupa tvær salamöndrur
og tvo vatnafroska
Fyrsta búrið mitt sem þessi kríli lentu í var ekki nema 20L
plastbúr sem ég keypti með bros á vör hjá Guðmundi (rekur nú fiskabúr.is)
tveim árum síðar og dauðum koparryksugum
fékk ég fysta fiskabúrið 70L úr versluninni Gizmó á sauðárkrók, heima
smíðaður gripur í það fóru gullfiskar Eftir það var ekki aftur snúið
Ekki man ég nú hvaða fiska ég fyrst keipti mér en ég er með það alveg á hreinu að fyrstu fiskarnir sem ég eignaðist var tríó af gúbbum og tómatsósu krukka fyrir um 33-34 árum síðan eða um 5 ára aldurinn, mig mynnir nú svo að fyrstu fiskarnir sem keiptir vour svo síðar þegar að búr var komið væri plattý par rautt og svo coridoras.
Fyrsti fiskurinn sem ég fékk var gullfiskur í kúlu. Það er alveg um 6 ár síðan.
Svo fannst mér honum svo einmannalegur að ég fékk annan + 25 lítra búr, og svo gúbbý fiska, og svo framvegis.
það var gullfískur, reyndar tveir saman í risa stóra gler-blómavasa... var hugsað fyrir littla strákinn minn, það er ekkert svo lángt síðan, 3 ár held ég. enn þær dóu eftir bara nokkrar vikur, og svo kom fyrsta 60 litra búr með gubby og svoleiðis... svo búr nr 2... svo búr nr 3.... og nu er ég með 5. hehe.... þetta er ensvo að borða pop, ... þegar maður byrjar getur man ekki hætt
Piranhinn wrote:60 L búr, dælu, hitara og 3 stk red bellied piranha sem ég á enn í dag, voru pínulitlir þegar ég fékk þá, alls ekki eins pínulitlir í dag