Seiðin mín að drepast

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Seiðin mín að drepast

Post by Gunnsa »

Ég var með ca 40-50 seiði undan sömu kerlu, 2 got. Seldi um 20 stk, veit ekki hvernig þau hafa það en af þeim 30 sem ég átti eftir eru einungis um 5 lifandi.. Flest úr seinna gotinu eru dauð, þau 2 sem eftir eru eru að drepast. eitt platy seiði sem ég er með plumar sig vel og eitt seiði sem kemur undan annarri kerlu hefur það líka fínt.. Eru þetta "gölluð" seiði eða er eitthvað að hjá mér?
þau eru í flotbúri í 160L búri ásamt 20-25 fullorðnum fiskum, fóðurgjöf er stillt í hóf 2-3 á dag, ljósatími er frá 1-2 til svona 11.
pH mælist á milli 7,2-7,6. KH um 15. GH um 7-10. No3- á milli 25-50 og NO2- varla mælanlegt
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það gæti verið að no2 hafi farið upp hjá þér fyrst það mælist aðeins, toppað og drepið seiðin, svo vinna bakeríurnar úr því á stuttum tíma og breyta í no3.
Er þetta nýlega uppsett búr sem hugsanlega hefur bara verið að klára að byggja upp flóruna þarna ?
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Búrið var sett upp í lok september.. En það eru ekki nema 4-5 vikur síðan seiðin fóru að drepast.. Flest þeirra eldri sem drepast virðast vera í veseni með sundmagann, verða eins og gleitt u í laginu og maginn flýtur alltaf upp, en þegar þau yngri drepast verða þau stjörf og með oddmjóan sporð..

Ég veit samt ekki hvort það hafi verið nokkuð no2.. kassinn á því var bara ennþá alveg hvítur eins og hann var áður en hann fór í vatnið
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta gæti verið costia eða svipuð sýking og berst oft með kranavatninu. Ég hef lent í því að missa allt að 90% af seiðunum mínum í þetta. Það að hafa vatnið vel heitt og salta duglega virðist duga á þetta hjá mér.
Ef búrið er ekki stórt þá gæti verið gott að setja vatnið vel heitt (33° eða heitara) í fötu og leyfa að kólna aðeins og nota svo í vatnsskiptin, costian drepst í 33°
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Get prófað það, en ég er með plöntur í búrinu, hef lesið að bæði of heitt vatn og salt sé slæmt fyrir þær..
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

oddmjói sporðurinn er líklega costia... Þetta er alveg pain in the ass hjá mér líka, seiðin eru sífellt að fá þetta..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Ég skil samt ekki afhverju bara seiðin undan sömu kerlu fá þetta, hin tvö sem eru ekki undan þeirri kerlu er hraust :roll:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Seiðin geta verið misjafnlega sterk til að takast á við veikindi, þessi sem lifa eru sennilega bara sterkari og þú ættir þá frekar að halda þeim stofni.
Post Reply