Rainforrest coffee!

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
leikur1
Posts: 3
Joined: 16 Nov 2007, 02:41

Rainforrest coffee!

Post by leikur1 »

Var að koma frá Bandaríkjunum í gær og sá þessa líka rosalega flottu fiska, ég er laumu fiskaáhugamaður og á heima allnokkra!! en þessir slógu mig alveg útaf laginu! ég hélt að ég þekkti til fiskaheimsins svona allavega eitthvað, en ég er skák og mát í þessu!

Getið þið kæru spjallverjar sagt mér hvaða tegundir þetta eru !!!

Læt fylgja nokkrar myndir þó að ég hafi tekið slatta !!! í viðbót ! :)


Þessi var æði !! veit ekkert hvaða tegund hann er en finnst dalmatíu fiskur passa voða vel við ;)

Image


Image

Hef séð þennan áður en finnst þeir alltaf jafn flottur! reyndi að ná mynd af honum ef hann skyldi blása út ! en hann var ekki til í "party tricks" ;)

Image

Þetta er bluebird wrasse en hef ekki fengið að sjá hann í eigin persónu áður !! bara töffari, en hann var í banana stuði og það var mjög! erfitt að elta hann hringinn í kringum þetta risa búr!!!


Image

Vil fá útskýringar á þessum takk fyrir takk :)

Image

Og hérna er ein mynd af minna búrinu ;)

Image

Og hvaða herramaður er þetta ??

Image
Önnur mynd af kappanum!

Image

Og í lokin mynd af hliðinu þegar maður labbar inn í matsölustaðinn !!

Takk fyrir mig og vonandi getið þið aðstoðað mig fáfróðu fiskamanneskjuna :D
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Re: Rainforrest coffee!

Post by Ásta »

[quote="leikur1"]

Image
Þetta er líklegast puffer

Image
Einhver múrenutegund myndi ég skjóta á

En hvar er svo þessi flotti veitingastaður?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þeir eru margir fallegir sjávarfiskarnir þó þeir heilli mig ekki.
En burið þarna er eitt það ljótasta sem ég hef séð, ekkert nema asnalega uppraðaðir gervikórallar. Spurning um að setja það í keppnina um ljótasta búrið. :)
leikur1
Posts: 3
Joined: 16 Nov 2007, 02:41

Post by leikur1 »

Já, kaninn er dálítið ýktur, svona eins og þessi staður var í heild sinni :) það tók krókódíll á móti manni þegar maður gekk inn í "regnskóginn" svo voru allskonar apar og frumskógarhljóð, svo í miðjum matartíma gat skollið á þrumuveður með tilheyrandi hljóðum :D þetta var mjög skemmtilegt að koma þarna inn :)

En þetta heitir semsagt rainforest coffee og er mjög vinsæll barnastaður :) en þessar myndir voru teknar í Minneapolis, nánar tiltekið Mall of america :) Mér var búið að detta í hug einhverskonar múrena, en vitið þið ekkert meira, á enginn svona fiska hérna ??
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég man eftir að Tjörvi var með múrenur í F&F en það er búið að loka því núna, einhversstaðar hljóta þær að vera.
leikur1
Posts: 3
Joined: 16 Nov 2007, 02:41

Post by leikur1 »

já ég er svo forvitin að vita hvaða tegund þessir fiskar eru!
Kazmir
Posts: 82
Joined: 01 Dec 2007, 20:40
Location: Selfoss

Post by Kazmir »

Múrenan er líklega Golden Moray.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

mjög flottir fiskar :)
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Er ekki viss á múrenunni en hún er allavega Gymnothorax mögulega favagineus.þessi með hornið er Naso unicornis, dalmatían er kallaður panther grouper, Cromileptes altivelis á 1 svona u.þ.b 5 cm alveg geggjaður.
Ace Ventura Islandicus
Post Reply