Er að spá í hvað sé óhætt að setja mikið grjót í búrið,mig langar nefnilega til að setja eina stóra steinhellu í botninn á steina, og svo hlaða ofan á hana með fleiri steinhellum og búa til nokkra hella.Er mikil hætta á að ég fái allt á flot hjá mér ? Þetta er 300 lítra búr.
Þú getur sett ansi mikið grjót í búrið. Aðalmálið er að þyngdin dreyfist sem mest og ekki sé hætta á að grjótið hrynji niður, td ef fiskar grafa undan því.
Ef þú ætlar að setja mjög mikið grjót þá er ágætt að láta steinana hvíla á plastgrind (eggcrate) eða einhverju sambærilegu.
Jæja hellan stóra komin í búrið og það heldur en kræst er nú soldið paranoid ef þetta mundi springa úff,sérstaklega þar sem ég fékk alveg nóg af vatni í dag,það var hringt í mig í vinnuna og ég beðinn um að koma heim í kvelli því kjallarinn væri fullur af vatni,guð minn anskotans almáttugur sjónin sem blasti við mér þegar ég kom heim ég ætla ekki að lísa því 3 cm drullu vatn út um allt í sameigninni og í 6 geymslum bara til að skemma fyrir manni daginn