Að búa til steina skraut??

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
mundivalur
Posts: 58
Joined: 20 Sep 2006, 17:06

Að búa til steina skraut??

Post by mundivalur »

Ég var að spá er ekki hægt að kítta saman steina,búa til eitthvað skraut eða eitthvað svolegis og hvernig kítti má nota?? Er ekki einhver sem er búinn að gera eitthvað svona??
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það á ekki að vera neitt mál. Mælt er með að notað sé venjulegt sílikon ekki baðherbergis silikin þar sem það inniheldur mygluvarnarefni sem hugsanlega getur haft áhrif á flóruna í búrinu.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég hef ekki gert svona en var einmitt að skoða um daginn bók um uppsetningu fiskabúra og þar voru steinar sem höfðu verið límdir saman, sennilega með fiskabúrakítti (var samt ekki búin að lesa um aðferðina).

Ég held það sé hægt að skera steina í flísasög, ég ætla a.m.k. að prófa það. Passa svo bara að pússa niður hvassar brúnir.
Last edited by Ásta on 10 Jan 2007, 09:28, edited 1 time in total.
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

Þú skalt ALLS ekki nota "venjulegt"kítti það drepur fiskana þína eins og skot. Það verður að vera sýrulaust.
mundivalur
Posts: 58
Joined: 20 Sep 2006, 17:06

Post by mundivalur »

Er kanski málið að nota sama kítt og þegar maður býr til fiskabúr?
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

Ég myndi ekki nota annað en kítti sem er ætlað í fiskabúr
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Svona silikon (syralaust ) fæst i Byko , til dæmis - stendur á að nota fyrir fiskabúr . Hann virkar ágætlega, sjalfur buin profa,á eftir silikon buin að þotna er gott að legja tilheyrandi hlut i kalt vatnsbað eða skola vel til að losna með rest af "silikonilmur"
Post Reply