pípó wrote:Konan var að enda við að spurja hvort ég vildi ekki bara flytja í fiskabúð hehe,ég er nú bara með 7 búr,en hvað ættli hún sé með mörg skó pör
Hvar eru myndirnar af þessum 7 búrum maður ?!?
Ef þú ert ekki enn búinn að læra á myndavélina þá væri fínt að byrja á upptalningu með stærð og íbúum í þessum búrum.
Drattastu svo til að fara að fikta í myndavélinni.
Ég er löglega afsakaður,strákurinn kemur í land 22 des og þá fæ ég kennslu og eftir það þá segji ég bara ó mæ god þá verð ég örugglega rekinn héðan af spjallinu fyrir að drekkja öllu í ( misgóðum myndum )
Þetta er nú ekki lögleg afsökun.
Það er hægt að senda geimflaug með fjarstýrðum bíl til Mars og láta hann keyra um þar og sumar kerlingar geta lært að bakka í bílastæði en þú getur ekki ráðið fram úr einni myndavél sjálfur.
Úff gott að ég var ekki sendur til að stýra þessum bíl á mars ég er svo gjörsamlega út úr kú þegar kemur að einhveju svona tæknidóti,athugaðu það Vargur minn að ég er af þeirri kynslóð þegar 3 stuttar og 1 löng voru hringingarnar og eini skindibitinn sem hægt var að fá var ein pulsa í bæjarinns bestu og svo var hægt að fá franskar í Aski á Suðurlansdbraut,já og alveg rétt það voru ekki til tölvur, bara ritvélar Svo ég held að þú verðir að endurskoða þetta með mig og mars
Ég er svo hræddur um að það komi bara game over ef ég geri eitthvað klúður Annars ef ég á að fara að telja eitthvað upp þá er ég hræddur um að ég verði að fá þig í heimsókn,því ef einhver veit hvað ég er með í búrunum þá ert það þú,þannig að þú verður bara að kíkja í heimsókn,þú gætir kannski blíðkað konunna í leiðinni( sýnt smá áhuga á skópörunnum hennar
Fyndið, talandi um ritvélar.
Við erum með eina slíka í vinnunni sem við notum stundum og þegar koma krakkar ca. 10 ára og yngri spyrja þau yfirleitt hvað þetta er.
Annað bráðfyndið af því að við erum komin í tæknina.
Ég á penna sem maður stingur ofan í stand (eins og í bönkunum í "gamla daga") og nýlega var dóttir vinkonu minnar hér í heimsókn (9 ára).
Hún horfði lengi á pennann og spurði mig svo hvort ég væri að hlaða hann.
En þetta var bara útúrdúr og ég tek undir með Vargi, MYNDIR!!!
Æ hvað er gott að vita að það er til fólk (fleirri en ég) sem er tæknilega fatlað og heft.
Ég skil sko alveg þessa tæknifælni, hún er ferleg.
Hræðslan við Game Over er skuggaleg.
Þannig að ég skil þig vel "pípó" þú átt minn stuðning í þessari baráttu við tæknifælnina.
hey gömlu! ef þið gerið eitthvað og það mistekst, þá geriði bara restart, það er engin takki á tölvu eða myndavél sem þið getið ýtt á og þá kemur bara á skjáinn "Process: Destroying humanity" þannig að bara.. chill!
Iss þú ert ekki einn með þessa fælni.
En málið er að við erum alltof fá til að það sé gert eitthvað við okkur.
við erum nefnilega ekki til vandræða (ennþá)
Eins og með AA skaltu bara taka einn dag í einu
Byrjaðu á að taka myndirnar og eftir það skaltu læra að setja þær inn á tölvuna.
Þá er ekki eftir nema að læra að setja þær á síðuna.
Einfalt, ekki satt?
Jæja er að rembast við að læra þetta,fyrstu myndirnar mínar hingað inn vei :)En þær eru nú ekkert sérstaklega vel teknar,en vonandi verða þær betri með tímanum þegar ég verð búinn að læra á þessa ansk myndavél
Efsta myndin er af 60 lítra búri sem eru með um 70 ancistruseiðum og gubby seiðum og einu pari af kribba,ég gef þeim agúrku á hverjum degi þær eru gjörsamlega vitlausar í gúrkuna Hinar myndirnar eru úr 300 lítra búrinu á eftir að taka myndir af hinum búrunum.
Ég hef gefið sikliðunum gúrkur frá upphafi og þær eru mjög hrifnar sérstaklega sugurnar,annars skipti ég um gúrku á hverjum degi og ekkert verður skítugt,ancistru seiðin stækka allavega hratt en veit ekki hvort það sé út af gúrkunum eða fóðrinu sem ég gef með.
Gaman að fylgjast með þessum þráð.. hlakka til að sjá fleiri myndir
Fyndið hérna fyrir ofan... það er eins og það sé 150 ára fólk að tala sem man sko tímana tvenna.. staðreyndin er að tímarnir hafa breitast ekkert smá á stuttum tíma...
Þegar ég var minni þá var handmjólkað í sumum fjósum og það var heyskapur á sumrin þar sem her manns tók þátt í að heyja og henda "böggum" í hlöðu...
Núna er bara róbót sem sér um kýrnar og einn traktor sem sér um heyskapinn... alveg glatað.
Já Brynja það er nú margt skrítið. En svona til að gera mig enn eldri þá var þetta svona
heima hjá mér (beljurnar og heyskapurinn) og rafmagn kom 1980
En Hr. Pópó VÁ þetta er magnað ( og gaman þegar maður er byrjaður )
Flottar myndir
Mikið væri nú gaman að eiga eitthvað af þessum ancistru ormum.
Svo er bara að drífa inn fleirri myndir ( hehe drengurinn hefur örugglega gert þig
mun geðveikari einhvern tíman ???)
Hvernig gengur að að hafa Kribbaparið með þessu öllu ???
Er þetta hrygnandi par ???
Takk fyrir,nei strák kvikindið var nú alltaf frekar stilltur og góður :)Annars gengur vel að hafa kribba parið með í búrinu,þau eru nú ekki byrjuð að hrygna en eins og ein góða kona sagði þá er kellan alltaf að glenna sig fyrir gaurnum
Æ ég er nú bara þannig Rodor að ef ég fæ áhuga á einhverju þá fer ég algjörlega fram úr sjálfum mér í öfgunum,það segir konan allavega og ekki ruglar hún þessi elska annars er ég að verða óvinsælasti pabbinn á heimilinu búin að troða tveim 100 lítra búrum inn til eldri dótturinnar og einu 80 lítra inn í herbergi hjá syninum,á þá bara eftir að setja búr inn til yngri dótturinnar og hjónaherbergið það verður síðasta vígið sem fellur á þessu heimilli úff, gott að konan les þetta ekki hehe