Best væri líklegast að byrja með nokkra og sjá hvort ekki myndist par. Annars á kvk að vera aðeins breiðari en kk. Auðveldast væri líklega að kyngreina þá á 'gotraufinni' eða hvað sem það kallast á fiskum

allavega þá eru kk með eitt gat en kvk tvö. Sést kannski ekki sérlega vel fyrr en fiskurinn er kominn í þokkalega stærð.
Þeir verða kynþroska u.þ.b. eins árs gamlir.
Það getur ýtt undir hrygningu að skipta hressilega um vatn.
Þeir eiga annars að vera frekar auðveldir til fjölgunar en kk gætir hrognanna þartil þau klekjast út meðan kvk passar nánasta umhverfi.
Hrognin klekjast út eftir ~30klst og foreldrarnir gæta seiðanna í 2-3 daga eftir það.
Svo hef ég lesið að þeir verði svolítið passasamir þegar þeir eru að fjölga sér þannig að aðrir fiskar í búrinu gætu kannski lent illa í því.
Hérna er líka fín grein:
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=1163