Skötur

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Skötur

Post by Rodor »

Eru einhverjir með ferskvatnsskötubúr og eru einhverjir að selja þær?
Gott væri ef einhverjir sendu linka með góðum greinum um ferskvatnsskötur.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég veit ekki til þess að það sé neinn með þær hér á landi...


Þær eru plássfrekar, dýrar og viðkvæmar, þannig að fólk hugsar sig líklega nokkrum sinnum um áður en það fer í svoleiðis kaup.

Mig persónulega dauðlangar í svona, en það verður að bíða þangað til að ég kaupi mér hús sem er með meira plássi en ég hef núna... Standard 500 lítra búr er of lítið, og 720 líklega líka. 900l væri líklega í lagi, þar sem það er frekar djúpt.

Ég hef fengið búðir til að fletta því upp fyrir mig hvað svona stykki kosta (ungar), og það hefur aldrei verið undir 30þús..

Ertu annars að pæla í einhverju sérstöku?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Nei, ég er ekki að spá í neitt sérstakt, en mér finnast sköturnar afskaplega fallegir fiskar. En eins og þú bendir á þá þarf svolítið stór búr og á linknum sem Vargur sendi inn er talað um lágmark 160x80x50 sm fyrir minnstu tegundina. Þannig að það þarf ekki bara löng búr þau þurfa að vera breið, en hæðin er ekki aðalmálið. Það er spurning hvort ekki þurfi að fá sér iðnaðarhúsnæði fyrir fiskana í framtíðinni 8)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Verðum við ekki bara að fara að sameinast nokkrir um húsnæði ? :-)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Vargur wrote:Verðum við ekki bara að fara að sameinast nokkrir um húsnæði ? :-)
Það hefur *OFT* hvarflað að mér að pósta um það hvort það væri ekki einhver til í það :P

Þá væri líka hægt að deila niður gjöfum og svona - svipað og fólk gerir með hesthúsin :D



Rodor: Líka eitt með minnstu tegundina... Hún er ein af þeim sem er erfitt að fá. Ein algengasta og ódýrasta tegundin, motoro, það er sú sem verður stærst og þarf mest pláss...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Vargur wrote:Verðum við ekki bara að fara að sameinast nokkrir um húsnæði ? :-)
Djöfull líst mér vel á það Vargur,ég væri sko til í að vera með í því :)
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Ég vissi ekki að framtíðin væri svona nálægt :roll:
Eyjó
Posts: 298
Joined: 26 Mar 2007, 16:12
Location: Reykjavik

Post by Eyjó »

Bara málið að fá sér fiskiker undir þessi kvikindi þar sem þær eru botnfiskar þarf það ekkert að vera of fallegt.
Post Reply