Hornsjónvarpið

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Já það er nú víst tilfellið að það er víst ekki magnið heldur gæðin :P
Annars er ég ekki alveg að hafa þolinmæði í svona seinagang í myndatöku
og hvað þá að vera ekki með vél með almennilegum að drætti.
Vil getað smellt af núna en ekki á eftir. :lol:

Já búrafjöldinn huhumm.... þar sem ég fékk ekki að fá mér fleirri stór þá var þetta lausnin.
Enda plássið ekki of mikið og þessi 5 eru víst alveg nóg er mér sagt. :roll:
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

jeg wrote:Já það er nú víst tilfellið að það er víst ekki magnið heldur gæðin :P
Annars er ég ekki alveg að hafa þolinmæði í svona seinagang í myndatöku
og hvað þá að vera ekki með vél með almennilegum að drætti.
Vil getað smellt af núna en ekki á eftir. :lol:

Já búrafjöldinn huhumm.... þar sem ég fékk ekki að fá mér fleirri stór þá var þetta lausnin.
Enda plássið ekki of mikið og þessi 5 eru víst alveg nóg er mér sagt. :roll:
Ég er reyndar alveg sammála þér með svona litlar vélar að þær eru eiginlega alveg óþolandi hvað þetta varðar, að taka ekki þegar manni sjálfum hentar.. heldur 10 sekúntum síðar eða bara ekki og líka þetta að geta ekki breitt um linsu.

Ég er einmitt að bíða eftir að kallinn minn fái þá flugu í hausinn að kaupa annað búr.. við erum "bara" eitt 400L. Það er ekki nógu góð hugmynd ef ég sting upp á að kaupa annað búr en um leið og honum dettur það í hug þá er það gert.. híhí svo að ég bíð bara spennt.. :lol: :lol:
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Já svona eru þessir blessaðir karlmenn :hmhm:

Það er illa pirrandi að reyna að ná góðum augnablikum á þessa vél nema hreinlega
vera alltaf á cyber-shot og þá eru gæðin lítil.
Það er oftast nær allt búið og allir farnir heim þegar hún smellir af :P
Verst er þó að geta ekki súmmað t.d. fjöllin heim í stofu :wink:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Iss þið verðið að finna ykkur betri gaura, það er reyndar spurning hvort við þurfum ekki bara að fara að stokka upp samböndin hér á spjallinu og sameina fólk, þá verða sennilega vandamál varðandi fiskabúr og myndavélar alveg úr sögunni. :D
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ertu með einhverjar hugmynd að pörum? :P
Þú ert svo góður að finna pör í fiskabúrum.. það er spurning hvort þú sért ekki góður í því líka á þessu sviði...
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

He he það yrði gaman að sjá hvað kæmi út úr því :rofl:
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

jeg wrote:He he það yrði gaman að sjá hvað kæmi út úr því :rofl:
Þetta verður bara eins og að velja stóðhesta á kynbótamerar... hlakka til! :lol: :lol:
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

úff já það gæti orðið skuggalega sniðug útkoma :lol:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég veit ekki hvort ykkur skvísunum fyndist þetta eitthvað spennandi, ég þarf nefnilega sjálfur engu að breyta því konan mín leyfir mér að vera með fiskabúr. :)

Mér dettur í hug Brynja og Pípó og Jeg og Keli, þá er búið að leysa fiskabúra og myndavéla vandamál allsstaðar. :D

Makaskipti hafa reyndar áður komið til tals hérna.
~*Vigdís*~ wrote:
Vargur wrote:Er ekki bara upplagt tækifæri að fara bara í einhver makaskipti hér á spjallinu. :D Við Hrappur værum td fínir í sambúð....eða bíddu við... :?
:lol: var bara að sjá þetta núna,


Þetta er ekkert mál, Hrappur græðir bara Gúggalú, sendum konuna
þína norður til kallsins hennar, Sveinn flytur inn til konunnar Hrapps og málið reddast, how you doooin :ojee:

Allir kátir og engin sifjaspjöll :twisted:
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

já ég veit ekki sko... Ég er sko alveg ánægð með kallinn minn en ég er alveg til í að taka einhverja....


í kennslustund í myndavélafræði.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

:rofl:

Já ég segi eins og Bryjna minn kall er fínn
en vantar góða myndavél eða ljósmyndara :wink:
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ég líka ætlaði að reyna að hösla þig Vargur... það hefði verið svo hentugt... skiluru.. þú bara í næsta húsi... en fyrst það er ekki að ganga þá bara held ég mér við minn...
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

jeg wrote::rofl:

Já ég segi eins og Brynja minn kall er fínn
en vantar góða myndavél eða ljósmyndara :wink:
þið hjónin verðið bara að koma við í Nýherja í næstu bæjarferð eða dobbla einhvern sem er að fara til USA að kippa einni Canon vél með...

Fín afmælisgjöf.. áttu ekki bráðum afmæli?... :wink:
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

hey váá hvað ég er næm.. ég kíkti sko ekki á afmælisdagbókina fyrr en eftirá...

6.janúar... sko þarna ertu komin með það!!! ný myndavél handa þér... það er málið!

Það þurfa allar sætar konur að eiga góða myndavél!!!
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Ha haha já seigðu læt kallinn í málið :wink:
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

He he he - alveg magnaðar umræður :)

Ég er greinilega í fullkomnu hjónabandi, ég má fá mér eins mörg fiskabúr og ég vil - bara koma þeim fyrir (og eiga fyrir þeim), og ég sé líka um ljósmyndadelluna á þessum bæ - þarf bara að koma mér í það að panta mér almennilega linsu fyrir þetta (og fjármagna hana - sem er annað mál).

En rosalega eru seyðin orðin stór hjá þér - ferlega krúttleg, bara litlir kribbar, ekki seyði lengur. Ég var að reyna að rýna í það hjá mér hvernig kynjaskiptingin er, og það er greinilegt að sum eru stærri og með meira áberandi rönd en önnur. Ég giska á að það eru strákarnir sem eru stærri. Það eru ca 5 þannig og 4 hinsegin - annars er erfitt að segja til um það þar sem maður sér þau aldrei öll saman í einu. Þau þyrftu að vera með númer á sér... :P

Er kerlingin búin að hrygna aftur hjá þér?

Hvar ertu aftur í Hrútafirðinum?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Anna wrote:Hmmm, þetta kom 3x inn...
Nóg að ýta einu sinni á senda takkan. :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég þarf ríka konu með stórt hús. Annað tek ég ekki í mál.

Reyndar yrði konan mín líklega ekki sérstaklega kát ef hún læsi þetta :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Vargur wrote:
Anna wrote:Hmmm, þetta kom 3x inn...
Nóg að ýta einu sinni á senda takkan. :)
Já ég fékk krampa á send takkanum 8)
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Það er kannski spurning að opna Einkamáladálk fyrir bæði fólk og fiska...

hummm.. Vargur? Hugmynd?!?

T.d. er ég með nokkra single fiska í mínu búri..
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Anna spurði:
Er kerlingin búin að hrygna aftur hjá þér?
Já þegar æluævintýrið var og ég var að veiða kribbabörn vegna leiðinda.
Og núna var hún að flytja iðandi hrogn undir skelina (vökudeildina) :yay:

Anna spurði:
Hvar ertu aftur í Hrútafirðinum?
Rétt við Brú.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Náði myndum af iðabelgjunum.
Hún er búin að flytja þau 2x síðan í gærkvöldi :crazy:
Sorrý hvað þetta eru lélegar myndir.

Image


Image

Image
Last edited by jeg on 06 Jan 2008, 17:52, edited 1 time in total.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Allt er gott að frétta af Kribbunum og eru seiðin u.þ.b. að verða frísyndandi.
Þau eru reyndar mun minni en síðast og virðast vera með mun minni kviðpoka.
Sennilega er þetta nú vegna þess að hún hafi hryngt fleirri eggjum núna eða hvað ???
Kvk hefur endalausa orku í að færa krílin til og frá og kemur alltaf og betlar mat ef maður stoppar við búrið.

Þau stóru stækka vel og eru algjörir mathákar. Æpa nánast á mann ef maður nálgast búrið þeirra
og heimta mat :shock:
Last edited by jeg on 06 Jan 2008, 17:48, edited 1 time in total.
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Úú - en spennandi! Fínn þessi kuðungur til að geyma hrongin undir. Hvað er kerlan ca stór?
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Kellan er ca. 4 - 4,5 cm.
Já þessi kuðungur er flottur fékk hann með þessu búri.
Vinsæll gæsluvöllur.
Annars er núna verið á þvælingi um allt búr með liðið.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Jæja nú er allt á fullu hjá Kribbafjölskyldunni.
Gæti best trúað að seiðin væru helmingi fleirri en seinast sem þýðir ca. 70stk.
Set inn hérna myndir (ekki góðar vegna þess hve maður er illa græjaður)

Image
Hópurinn var uppá steininum en kvk náði að flytja flesta undir meðan ég náði í vélina.

Image
Hópurinn í einni hrúgu. Og þarna sést hvað kvk er lítil (hún er minni en myndin segir)

Og svo eru það stóru börnin.
Image
Unglingadeildin.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

vildi óska að ég ætti svona hrikalega ástfangið kribba par.. mitt er ekki neitt ástfangið, ekki meira en það að ég þurfti að stía þau í sundur því að karlinn var að ganga frá kerlu og er hún sporðlaus í augnablikinu.. algjörlega strípuð að aftan..
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Usssss ekki fallegt að heyra.
Þetta er bara kærumál :P
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

:)
Last edited by Brynja on 07 Jan 2008, 00:28, edited 1 time in total.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

....
Last edited by Inga Þóran on 07 Jan 2008, 18:45, edited 1 time in total.
Post Reply