Er þess virði að of-filtera?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Amything
Posts: 48
Joined: 02 Jan 2008, 11:57

Er þess virði að of-filtera?

Post by Amything »

Ég er að minnka við mig aðeins og búinn að kaupa 350 lítra búr og er með 2 Eheim dælur fyrir sem eru fyrir 350 L.

Ég hafði hugsað mér að nota þær báðar í nýja búrið og vera bara með ofur filteringu. En nú er ég byrjaður að pæla að kanski er það bara vitleysa. Eitthvað hlýtur að kosta reka þetta í rafmagni?

OK ég var að reikna

Dælan: Power Consumption 25watt

1000W á klst kostar 8 kr er mér sagt.

0,025*24*365*8 = 1752 kr. á ári, passar það? Það er frekar lítið.

Ég verð með 2 fullvaxna óskara í því, ekkert annað. Overkill að hafa 2 dælur þá?

Svo er það líka hvernig þetta lítur út, búrið á að vera stofustáss, ég verð með Back to Nature bakgrunn, hef ekki notað þá áður, mun ég koma öllu draslinu fyrir á bakvið ef ég verð með 2 dælur?
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

googlaðu "aquarium backgrounds" þar geturu fengið magnaðar upplýsingar
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bættu við einni dælu. :)
Þessar dælur með tveim fullvöxnum óskurum í 350 lítrum er langt því frá að vera of mikið, sennilega bara passlegt.

Dælur eru ekki skelfilega frekar á rafmagn, ef þú ert að spá í rekstrarkostnaði slepptu þá frekar hitaranum og/eða minnkaðu ljósin.
Einhversstaðar las ég að fiskabúr með öllum búnaði notaðai 10% af rafmagninu sem þvottavél og þurkari á meðal heimili nota.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Líklega passlegt að hafa 2 dælur.

Varðandi kostnað þá er ég ekki viss - hitarinn tekur yfirleitt mestu orkuna, en það fer líka eftir hitanum í íbúðinni hjá þér. Lýsingin getur líka verið svolítið orkufrek. Dælan er allavega ekki vandamál held ég :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Amything
Posts: 48
Joined: 02 Jan 2008, 11:57

Post by Amything »

Já þetta er líklegast rétt hjá ykkur, ætla nota báðar dælurnar.

Var að pæla með að fela túburnar, gæti maður ekki tekið úttakið á báðum og sett á þær svona Y tengi til að hafa bara eina úttaksslöngu í búrinu?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Jú jú, það er minnsta mál.
Post Reply