Cory Cats seiði

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
jonfr
Posts: 7
Joined: 06 Jan 2008, 09:05
Location: Hvammstangi, Ísland
Contact:

Cory Cats seiði

Post by jonfr »

Ég er með þrjá Cory Cats og á nýjársdag þá lagði einn af þeim eggjum á nokkrum stöðum í fiskabúrinu hjá mér. Í nótt byrjuðu þessi egg að klekjast út og úr komu seiði. Þetta er nokkur fjöldi af seiðum en ég er með 160 lítra búr, þannig að ég reikna ekki með neinum vandamálum þannig.

En það sem ég veit ekki er hvort að Cory Cats borði sín eigin seiði eða ekki. Ég hef verið að leita á netinu, en ekki fundið neitt sérstakt um tegundina og þessa hlið mála.

Takk fyrir svörin og hjálpina.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það eru náttúrulega til alveg hellingur af cory tegundum, en hrygningarnar hjá þeim eru flestar eins.

Þú getur alveg gert ráð fyrir því að þeir éti seiðin sín ef þeir fá tækifæri til þess.


Annars er meðhöndlun seiðanna voða lítið mál, bara gefur þeim nýklakta artemíu og þau ættu að ná ágætis stærð á nokkrum mánuðum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
jonfr
Posts: 7
Joined: 06 Jan 2008, 09:05
Location: Hvammstangi, Ísland
Contact:

Post by jonfr »

Fiskbúrið hjá mér er með fullt af felustöðum. Þannig að ég vona að seiðin komist þannig af.

Það er vonandi nóg af mat fyrir þau í búrinu. En búrið hjá mér er mikið á þeim nótum að vera sjálfum sér nægt að mestu leiti. En ég auðvitað gef fiskum og þeim sniglum sem ég er með mat reglulega.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvernig eru búrin þín sjálfum sér næg að mestu leiti ?
Passaðu svo vatnsgæðin því Cory seiði eiga til að vera viðkvæm fyrir slæmum vatnsgæðum.
Post Reply