Vatnsskipti með slöngum.

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Vatnsskipti með slöngum.

Post by Ásta »

Þetta geri ég sérstaklega fyrir Birki og vona að aðrir byrjendur geti nýtt sér þetta.
Get ekki hugsað mér að fólk þurfi að ganga í gegn um þá kvöl og pínu að hlaupa um með vatn í könnum, brúsum eða jafnvel tertuhjálmum!

En hér er það sem þarf til:

Millistykki á kranann
Image

Krana:
Image

Tekur svo efri hlutann af:
Image

Skrúfar millistykkið á:
Image

Slanga og svona dót sem passar á millistykkið (oftast selt saman í pakka)
Image

Síðan er "dótinu" smellt á millistykkið:
Image

Það er ekki flóknara en þetta og svo verður að passa upp á að ekki sé beygla á slöngunni.
Passa líka upp á að blanda vatnið áður en slöngunni er skellt í búrið. Það geri ég bara yfir vaskinum og skelli slöngunni í fötu á meðan ég hleyp að búrinu (sumum þætti e.t.v. betra að nota tertuhjálm).
Ath. líka þegar maður tekur slönguna af krananum að tæma vel yfir vaskinum svo ekki fari vatn um allt.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Æji þú ert svo sæt í þér elskan. Þessi þráður sparkar í ra**gat.
Hins vegar þá er nýtt í þessu, síðast þegar ég dældi vatn úr búrinu þá notaði ég einmitt slöngu, saug vatn inn í hana og lét gossa í fötu. Jú það tók líka tíma þanning að ég er að fara að vinda mér í kranadeildina eins og þú.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þú gætir notað sömu slöngu til að tæma búrið og þá leitt hana í vaskinn, ég teipa endann við kranann svo hann fari ekki á flakk.
Ég er samt með aðeins sverari slöngu við að tæma.
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Svona hef ég vatnaskipti 8)
Ein slangan tengd við hreinsidæluna sem dælir úr búrinu og hin slangan við blöndunartæki sem stilt er á 26 gráður og dælir aftur i búrið siðan stilli ég kraftin á blöndunartækjunum þannig að það haldi i við hreinsidæluna.
Image
Image

Þetta læt ég ganga i einn til einn og hálfan tima og vatnið er kristaltært.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Jáá, fjári er þetta sniðugt.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Svona er nú systemið hjá mér, slöngutengi á eldhúskrananum.
Image
Image

Þegar ég tæmi úr búrunum þá smelli ég slöngunni á kranann, hinn
endan í búrið og skrúfa frá. Þegar slangan er orðin full af vatni kippi ég endanum af krananum og þá rennur vatnið sjálfkrafa úr búrinu.
Ekkert vesen.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

ég elska þennan þráð. hann er sexy.
User avatar
Hrannar E.
Posts: 98
Joined: 18 Jan 2007, 06:27
Location: Grindavík

Post by Hrannar E. »

en hvernig tæmir maður búrin með svona slöngu???
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þegar slangan er orðin full af vatni kippi ég endanum af krananum og þá rennur vatnið sjálfkrafa úr búrinu.
Gerist ekki einfaldara, ef endinn í búrinu er hærri en hinn endinn myndast sog og vatnið rennur sjálfkrafa úr búrinu, alveg eins og þegar maður notar malaryksugu eða fyrir þá sem það þekkja, eins og þegar maður stelur bensíni.
Last edited by Vargur on 18 Jan 2007, 15:46, edited 1 time in total.
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

ein með reynslu :D
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

HAHAHAHA!
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Post Reply