240L Gróðurbúr
Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan
240L Gróðurbúr
Hér eru nokkrar myndir af gróðurbúrinu mínu. Þetta er 240L Juwel búr sem ég keypti 2001. Planið er að botninn verði þakinn lávöxtnu grasi (Echinodorus tenellus), þannig að það sjáist næstum ekkert í mölina. Svo ætla ég að reyna að þekja ræturnar með Riccia fluitans.
Ég nota einungis tvær 38 W T8 perur, en planið er skipta út gömlu ballestinni og fá nýja með T5 perum.
Svona lítur búrið út í heild sinni.
Hér er horft inn um hliðina.
Apistogramma agassizi
Blue diamond
Veit einhver hvaða plöntutegund þetta er?
Riccia fluitans og Java mosi

- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Flott búrið hjá þér Tommi.
Ég hef alltaf verið hrifin af miklum gróðri en hef verið klaufaleg hingað til að halda honum fallegum/lifandi.
En þessi planta sem þú veist ekki hvað er, getur verið að þetta sé Cryptocoryne albida eða einhver Echinodorus tegund?
Sé þú ert með fallegan lótus þarna, hefur þú verið með hann lengi?

Já, þetta eru bara fiska og plöntubækur Það eru diskusar, ancistra, rasborur, kuhli áll, eldsporður, SAE og dvergsíkliðu par í búrinu. Þetta eru u.þ.b. 30 fiskar samtals.Vargur wrote:Fallegt búr. Ég er mjög ánægður með að það virðast bara vera fiskabækur í hillunni á skápnum.
Hvað ertu með marga fiska í búrinu ?
Takk fyrir,Ásta wrote:Flott búrið hjá þér Tommi.
Ég hef alltaf verið hrifin af miklum gróðri en hef verið klaufaleg hingað til að halda honum fallegum/lifandi.
En þessi planta sem þú veist ekki hvað er, getur verið að þetta sé Cryptocoryne albida eða einhver Echinodorus tegund?
Sé þú ert með fallegan lótus þarna, hefur þú verið með hann lengi?
Þetta er hvorki Cryptocorine né Echinodorus tegund. Plantan er með stilk og laufblöð (Stem plant), en Cryptocorine og Echinodorus eru ekki með stilk.
Ég bara búinn að vera með þennan lótus í nokkra mánuði. Ég fékk hann á góðum afslætti vegna þess að hann var illa farinn. Núna er hann hinsvegar orðinn mjög fínn og ég gæti lent í vandræðum með hann þegar hann verður stærri.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Mjög flott búr hjá þér Tommi að vanda, sérstaklega hrifinn af öllum þessum rótum.
Áttu ricciu? Ég hef aldrei lagt í að vera með ricciu eftir það sem maður hefur heyrt með að það sé svo erfitt að halda henni á sínum stað. En þolinmæðin ætti að vera þess virði, gullfalleg planta.
Óþekkta plantan held ég að sé örugglega Hygrophila corymbosa siamensis.
Ertu annars með Hygrophilu difformis þarna rétt hægra megin við miðju?
Verst að þú búir á Akureyri, það væri mikill fengur í afleggjurum frá þér

Já, ég á nóg af riccia fluitans. Það getur verið dálítið vesen að festa ricciuna við rætur og steina. Mér finnst best að nota javamosa sem undirlag og festa síðann ricciuna ofan á mosann. Það hefur virkað vel hjá mér. Ég er ekki með nógu mikið ljós til þess að riccian þrífist við botninn, þess vegna læt ég hana vaxa ofan á rótum nálægt yfirborðinu þar sem ljósið er nógu sterkt. Riccia er mjög auðveld planta, það eina sem hún þarf til að vaxa er nóg ljós. Það þarf hinsvegar ekki mikið ljós ef plantan er látin fljóta á yfirborðinu.
Jú það er rétt, plantan í miðju búrinu er Hyrgrophila difformis. Hún var mun stærri og flottari, en ég er nýbúinn að vera í baráttu við cyanobacteríu sem kæfði mikið af gróðrinum.

Takk fyrir,
Ég held að sverðplantan heiti Echinodorus ozelot. Að vísu fylgdi ekki miði með plöntunni með upplýsingum, en ég fann svipaða plöntu á tropica síðunni http://www.tropica.com/productcard_1_po ... mode=close

- lilja karen
- Posts: 536
- Joined: 14 Oct 2007, 21:21
- Location: Akureyri. 17 ára
Takk fyrir,
Ætli það séu ekki frekar fáir einstaklingar á Íslandi sem eru með nógu góðar aðstæður í fiskabúrinu hjá sér til að geta ræktað mjög erfiðar plöntur. Lang flest verksmiðjuframleidd búr hafa t.d. ekki nógu mikið ljósmagn fyrir erfiðustu plönturnar. Að vísu eru Juwel búrin farin að bjóða upp á betri lýsingu en áður (T-5 perur í staðinn fyrir T- . (get ekki skrifað átta það kemur alltaf broskall með sólgleraugu )
Ég held að trikkið sé að nota plöntur sem eru ekki of kröfuharðar miðað við aðstæðurnar í búrinu. Allar plönturnar sem ég nota eru tiltölulega einfaldar og þurfa ekki mjög mikla lýsingu. Ég hef líka oft verið með plöntur þar sem einungis efstu 10cm eru í góðu lagi. Ég held að það sé oftast út af of lítilli lýsingu.Þetta er alveg svakalega flott búr
Hverning heldur þú , plöntur með fint lauf i goða lagið ? Vandræði hjá mér er oftast það efstu 10 cm eru mjög flottur enn þar fyrir niðan .....