Fiskar í 55L búr?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Fiskar í 55L búr?

Post by Karen »

Ég var að hugsa um að fá mér einhverja flotta fiska í 55L búr en ég veit bara ekki hvaða fiskar eru góðir saman og var að velta því fyrir mér hvort einhver gæti aðstoðað mig við valið :)
En ég var mest að hugsa um þessa fiska:

1-2xRamirezi
5xgúbbý (2xkalla og 3xkellur)
4xkardinála/neon tetrur
2xbardagakellur

Endilega segjið hvað ykkur finnst :)

Og ráð vel þegin :wink:

P.s. hvað kostar dæla fyrir svona búr núna (í Fiskabúr) og hvað þarf ég fyrir þessa fiska ?? Og hvað kosta þessir fiskar hjá ykkur??
Last edited by Karen on 09 Jan 2008, 22:01, edited 1 time in total.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

skal nú segja þér að skali verður ekki lítill lengi.. þeir stækka mikið og hratt.. minn er buin að stækka eiginlega of hratt og búrið er orðið of lítið :(
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

ok takk fyrir það þá tek ég skalann af listanum :wink:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Í helmingi stærra búri er ég með

4 svarttetrur
3 kardinála
3 ancistrur
6 einhverjar tetrur
3 litla skalla
11 sverðdraga
1 gullgúrama

það fer ágætlega um fiskana ef ég passa upp á vatnsskiptin svo það ætti að vera í lagi fyrir þig að hafa þetta.
Þegar skallinn verður of stór selur þú hann bara, það verður ekkert í næstu viku.
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

já ok takk fyrir þetta :D

en hvað segir t.d. ............. Vargur?

getur þú sagt mér eitthvað um þetta??

og gott væri að fá kannski verðskrá með þessum fiskum og kannski góðri dælu og kannski gefið mér ráð um hvernig uppsetning væri flott (er svo græn í því) ?? :) :oops:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Mér líst ágætlega á þetta. Ég er ekki með verðin á þessum fiskum á hreinu í dag.
Dæla í þetta búr kostar tæplega 3.000.- kr.
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

frábært :D takk fyrir :wink:

ég ætla nú að kíkja á laugardaginn :wink:
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Ég var líka að spá hvort það væri í lagi að setja einn dverggúrama með þessu?? :D
Post Reply