Convict seiði

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Convict seiði

Post by Birgir Örn »

Hvernig er best að taka þau frá og hversu lítið búr sleppur og hvað ætti að vera í búrinu?
ef ég hef þau bara áfram í búrinu ætti eithvað að komast upp? er með 5 X Svarta Neon og 2 X Brúsknefa 3 - 4 cm og svo convict parið
Svo var ég að spá ætli þeir sogist inn í hreinsi dæluna eða passa þeir sig
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Convict seiði geta komist upp við nánast hvaða aðstæður sem er. Ef þú tekur þau frá þá setur þú þau í eins stórt búr og þú getur, með dælu og hitara ef þú villt að þau stækki.
Best er að sjúga þau upp úr búrinu með grannri slöngu eða bara háfa þau upp.
Ef þau verða áfram í búrinu þá passa foreldrarnir þau.
Þau geta sogst inn í dæluna, fer eftir hversu kraftmikil hún er, ef þú hefur áhyggjur af því þá getur þú sett nælonsokk og teygju utan um dæluna eða svamp fyrir inntakið.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Mér finnst þægilegast að taka seiðin þegar þau eru á kviðpokastiginu. Sýg þau þá bara upp með slöngu, tekur 5sek :)

Ég er með nokkur hundruð convict seiði núna í strangri matargjöf eftir eina svona aðgerð :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

notar maður þá bara garðslönguna og sömu aðferð og við að skipta um vatn?
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

já ég á til dæmis eina stutta og eina langa :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

jæja þá eru þau farinn aðeins af stað þannig ég þarf að fara að gefa að borða. Hvað er best að gefa geiunum að borða svo þau stækki og dafni?
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

er það bara ekki aktamía og malað fóður (ef þetta er ragnt þá er bara að leiðrétta mig :wink: ) og góð vatnsskipti og hreinsa undan þeim á 2-4 daga fresti :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það borgar sig að gefa þeim lítið sem ekkert fyrstu 2 vikunar, bara gefa foreldrunum eins og vanalega. Þau róta svo upp sandinum fyrir ungviðið og seiðin finna sér eitthvað úr því ásamt því að narta í þörung og annað smáræði sem er á hlutunum í búrinu.
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

ok,

En eftir þann tíma? og svona yfir höfuð er gott að gefa convict eithvað annað en bara flögur
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eftir þann tíma ferðu að gefa þeim hvað sem er, flögufóður, frosið eða lifandi. Fersk artemía er sennilega það besta ef þú villt að seiðin vaxi hratt og nennir að standa í að klekja henni út.
Annars er bara málið að gefa fjölbreytt fóður og passa að ekki liggi óétið fóður á botninum, það á við um flestöll seiði.
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

hvenar er svo óhætt að selja/gefa seiðin?
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvenær sem er svo sem.
Heppileg stærð er ca 1.5-2 cm.
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

nú eru sirka 20 daga síðan að ég sá hrognin og nú eru kominn ný

Verður þetta alltaf svona?
Passa foreldrarnir eldri seiðin líka áfram?
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

já og já :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Hvernig er fólk annars að losa sig við convict seiðin þegar þau eru kominn í stærð
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Sturta þeim niður, gefa eða nota í fóður.

Þetta eru ekki fiskar sem þú færð einhvern pening eða inneign fyrir :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég fékk nú einu sinni 6 þús. fyrir 50 convict hjá Vargi (það var áður en ég uppgötvaði spjallið)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Ein spurning í viðbót ef ég er með par í náttúrulegum litum fæ ég þá bara þannig seiði eða fæ ég líka hvít
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég gæti losað þig við seiði ef að þörf er!!!
Er kannski til í að borga eitthvað :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Síkliðan wrote:Ég fékk nú einu sinni 6 þús. fyrir 50 convict hjá Vargi (það var áður en ég uppgötvaði spjallið)
Ekki séns :roll:
Þig hlítur að hafa dreymt það.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ó jú séns það er satt Vargur en mig minnir að það hafi verið kona að afgreiða (það eru nokkur ár síðan) :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þá er það ekki satt því ég er ekki kona.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég seldi þá víst í Fiskabúr.is :) :lol:
Skiptir engu þú getur alveg selt þá í dýragarðinn.
Kannski fiskó ef að það er eitthvað tómlegt þar og allir í nógu góðu skapi :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Síkliðan wrote:Ég seldi þá víst í Fiskabúr.is :) :lol:
Skiptir engu þú getur alveg selt þá í dýragarðinn.
Kannski fiskó ef að það er eitthvað tómlegt þar og allir í nógu góðu skapi :)
Það má vel vera að þú hafir selt þá þangað en þú sagðist hafa látið mig fá þá og það er ekki rétt. Ég er hvorki Fiskabur.is né kvenkyns.
Ég hefði aldrei látið þig fá krónu fyrir convict og ég efast um að hinar búðirnar sem þú nefnir geri það nema einhver afleysingastarfsmaður sé í búðinni sem veit ekki betur.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ah sorry smá mismælingar hjá mér :) Ég skammast mín :oops:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Það er hægt að fá eitthvað en ekki mikið :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Post Reply