720L búrið mitt
Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli
720L búrið mitt
jæja ákvað að gera smá þráð fyrir búrið mitt.
þetta er 720L akvastabil búr.
lýsing er 4x 30W t8 perur
hreinsibúnaður er 2 tunnudælu báðar af gerðinni eheim.
1stk eheim 2078(1850L/H)
1 stk eheim 2226(950L/H)
einnig er ég með powerhead af gerðinni hydor og dælir 3500L/H og kemur vatninu smá á hreyfingu.
búrið er búið að vera í gangi í 2-3 vikur núna og gengur þokkalega, byrjaði á því að setja 3 gullfiska sem voru í viku áður en ég fór að setja fleirri fiska í það.
Til að byrja með var ég með 2 rætur og svo gervigróður, ég vildi bíða með að setja alvöru gróður í búrið til að fá einhverja næringu fyrir plönturnar. Núna í dag fór ég og keypti mér eina stóra rót og nokkrar plöntur og allt annað að sjá búrið að mínu mati, lifandi gróður og eina stóra almennilega rót.
eftir þessi kaup í dag fór maður að sjá meira öryggi hjá fiskunum fleirri staðir til að "fela" sig og þannig háttar.
íbúar búrsins eru eftirfarandi:
4 dovii
3 midas
1 flowerhorn
2 albino convict
1 wc
1 rtc x tsn crossbreed
1 pangasius
2 gibbar
4 ancistrur
og 2 gullfiskar (einn var étinn í nótt) enginn sem liggur undir grun.
ég var einnig með 4 stk tiger óskara en þeir fóru í magann á rtc X tsn og var dýrt fóður.
stefnan er að bæta við stærri óskörum og svo green terror og vonandi fleirri flowerhorn.
ákvað að henda inn einni mynd af búrinum fyrir breytingar og eftir

Last edited by Daði on 28 Oct 2007, 02:12, edited 1 time in total.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
fishfiles hefur eitthvað klúðrað myndinni útaf íslensku stöfunum... Prófaðu að skipta ý út fyrir y og senda inn aftur, það ætti að virka.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Þessir convictar, eru þetta ekki bara venjulegir hvítir, oft kallaðir pink convict ?íbúar búrsins eru eftirfarandi:
4 dovii
3 midas
1 flowerhorn
2 albino convict
1 wc
1 rtc x tsn crossbreed
1 pangasius
2 gibbar
4 ancistrur
http://i98.photobucket.com/albums/l260/ ... onvict.jpg
veistu nei ég held að þetta séu albino. eru ekki eins og þessir á myndinni, engir blettir eða neitt álíka. En maður þekkir ekki nógu vel muninn á pink og albino. voða lítill munur, en miðað við þessa mynd þá mundi ég segja albino http://www.thetropicaltank.co.uk/Fishin ... nvalb1.jpg ég skal reyna að laga myndina:D
Kerlingarnar á pink hafa svona smá skellur á sér, karlarnir ekki.
Albino convict eru með rauð augu, pink ekki. Ég er nokk viss um að þú sért með pink
Þessi í linknum þínum er karl, þessvegna eru engar skellur.
Albino convict eru með rauð augu, pink ekki. Ég er nokk viss um að þú sért með pink
Þessi í linknum þínum er karl, þessvegna eru engar skellur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Hef ekki hugmynd um af hverju myndin var ekki að virka en ég henti henni inn aftur og þetta virkaði..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
jæja það er langt síðan seinast, og ekki enn komist í neinar myndatökur, en ég held að það fari að detta inn einhverjar myndir bráðum. Málið er það að ég fékk mér 2 flowerhorn í safnið og eru þeir 3 núna, ekki er það frásögu færandi nema hvað að 2 eru búnir að para sig og hrygna í búrinu hjá mér núna í kvöld, eggin eru á bakrunninum og núna er bara að sjá hvort þeim tekst að koma þessu á legg. ég ætlaði mér ekki að standa í neinum fjölgunum á fiskum svo þeir verða að sjá um sitt sjálfir. flowerhorninn er búinn að vera mjög duglegur að grafa góðar holur útum allt búr, en í dag fóru þeir alla leið
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
nei þeir voru þeir einu sem dóu, en ég er kominn með 4 stk óskara og svo losaði ég mig við walking catfish í dag. kominn tími til, ég átti ekki séns að veiða hann uppúr svo hann stökk uppúr eftir korters eltingaleik og fór svo í fötu í vatn og beint í dýrabúð. bætti einnig við helling af plöntum og er að reyna að fá gróðurfíling í búrið.