Botnfiskar/þörungaætur - samanburður

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Botnfiskar/þörungaætur - samanburður

Post by Birkir »

Jæja. Eftir að það kom þörungur í búr mitt og þegar ég fór að veita athyggli öllum umframmatnum sem sest hafði á botninn, á steina og rætur (já ég gaf of mikið af mat) þá fór ég að spá aðeins meira í kostum botnfiska. Þeir eru jú ekki bara fallegir og skemmtilegir á að horfa, þeir geta haft mikil áhrif á gæði vistkerfisins sem í búrinu er.

Þegar ég hugsa um svona fiska dettur mér alltaf fyrst í hug brúsknefja (ancestrur), plegga og botíur. ...Að þessir fiskar séu duglegir við að borða: það sem fellur til, snigla og þörung. Mér þætti gaman og gagnlegt að fá smá athugasemdir frá ykkur varðandi þessa fiska. Hverir eru duglegastir í hverju og þar fram eftir götunum.

Einnig hef ég heyrt að eldhalar og sverðdragarar séu iðnir við að borða þörung.
Eru einhverjar síkliður sem eru duglegar við þörunga og sniglaát?
Last edited by Birkir on 24 Jan 2007, 07:12, edited 1 time in total.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

ancesrurnar eru náttúrulega alltaf duglegar.
Pleggarnir verða stórir og latir með aldrinum.
Bótítur geta verið skemmtilegar líka
en.... það sem ég er hrifnastur af eru botnfiskar af synodontis ættinni
frábærir náungar
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Samála, Synodontis eru æði. Þeir éta hins vegar ekki þörung.
Bestir í það eru ancistur og minni pleggar.
Bótíur eru skemmtilegar, sérstaklega nokkrar saman.
Pictus gæti hentað þér þar sem hann er af Amerískum ættum en flestum þykir hann fullfjörugur.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

ég hef verið með pictusa og jú, það vantar ekki fjörið í þá og svo geta þeir stundum verið ansi skæðir.

ég er að velta þessu ölu fyrir mér m.a. vegna þess að ég sé varla ancisturnar lengur. Sé kannski 3 í einu. Venjuega voru þær í fínum fíling út um allt búr en ég væri til í að sjá fleiri en 3, þær eru nefnilega 8.

ég versla bótíur áður en þessi vika líður....
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

málið með ancisturnar eru að þær eiga það til að hverfa heilu mánuðina og birtast síðan allt í einu stærri og feitari, eða birtast ekki aftur
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

vona að það sé málið. það er samt eins gott að þær séu í "vinnunni".
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

hehe, ef að þú ert nátthrafn eins og ég og fleiri þá eiga þær til að fara á stjá eftir að öll ljós eru slökkt, allaveganna tók ég eftir því hjá mér
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Ég þarf að kanna þetta nætursístem. En aftur að uppfræðsluhungrinu.

SAE ryksugan. Sá þannig um daginn og hún er ansi dugleg að synda um. Hverjir eru hennar kostir +/- ?
Sá líka kopar SAE væntanlega sami fiskur en öðruvísi litir.

Bótíur +/- ?
Hef séð mismunandi útlit á þeim en eru þær allar með sömu skapgerðina?

Mörg afbrigði af þessum kjéppz á fiskabúr.is (myndin tekin þaðan)
Image
Corydoras
+/- ?

Image af fiskabúr.is
SAE? ekki rétt hjá mér?


Ásætðan fyrir þessum luralega þræði mínu er að ég er með gróðursælt búr og mikið af fiskum sem eru duglegir við að skíta og eiga eiganda sem kann sér ekki hóf í fóðurgjöf og því eiga þörungar heimagengt í búrinu sem slíku.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta eru allt fínir fiskar.
Ég mæli með Sae, þeir eru duglegir í þörungnum og hraðsyndir þannig þeir eiga vel með sikliðum.
Corydoras eru ekki hentugir í sikliðubúr að mínu mati, sikliðurnar hafa unun af því að kroppa í þá og auk þess eru þeir bara munnbiti fyrir stærri sikliður.
Bótíur eru skemmtilegar og yfirleitt sýnilegar í búrinu sérstaklega í hóp, þær henta vel með sikliðum og flestar eru friðsamar á sikliðumælikvarða, sumar eiga til að ráðast á aðra botnfiska og drepa, trúðabótiur og Botia histronica eru taldar með þeim friðsamari.
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Ég er með 3 Sae (Flying Fox eða Cossocheilus siamensis) þau er mjög skemmtilegur og lika mjög duglegur, stanslaus einhvarstaðir að borða og þrifa.

Ég er lika með Corydoras og hef mjög gaman á þeim, enn ég helt eins og Vargur segja þau er ekki alveg hentugt með sikliður. Þetta gengur vel með Skalar hjá mér, enn þau helt ég er lika meira rolegri enn aðrir sikliður.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

takk kjéppzar
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

upp
Post Reply