Convict og firemouth

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
EymarE
Posts: 54
Joined: 05 Dec 2007, 11:28
Location: Grundarfjörður

Convict og firemouth

Post by EymarE »

Sæl verið þið

Er hugsanlegt að convict-par og firemouth-par plummi sig saman í búri?

Ef ég væri með góða hellaaðstöðu sitthvoru meginn í búrinu?

kærar kveðjur
Eymar Eyjólfsson
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Já já, ef búrið er sæmilega stórt. Sennilega væri betra ef firemouthinn væri aðeins stærri en convictinn og færi jafnvel 1-2 dögum á undan í búrið.
User avatar
EymarE
Posts: 54
Joined: 05 Dec 2007, 11:28
Location: Grundarfjörður

Post by EymarE »

Sæmilega stórt já...

Eg ég mundi fá þá í lítilli stærð, gæti þá 125 L dugað til að byrja með?

Kannski þangað til í vor?
Eymar Eyjólfsson
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ef pörin eru lítil þá dugar það eitthvað, ég mundi samt ráðleggja búr með lágmark 100x 40 cm botnfleti fyrir 2 pör.
User avatar
EymarE
Posts: 54
Joined: 05 Dec 2007, 11:28
Location: Grundarfjörður

Post by EymarE »

Herðu, uss uss uss. Það er rúmir 80 á lengd og svo 37 á breidd. En það er rosalega hátt. Ef maður myndi byggja hellasvæði sem nær svolítið uppí búrið, svona hálfgerða hellabrekku...
Ætli það mundi duga fram á vor :)

Maður er alltaf að pæla sko ;) Vonandi öðrum til góðs líka.... :)
Eymar Eyjólfsson
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þú hefur ekkert við hellabrekku að gera fyrir þessa fiska, skiptu búrinu frekar í tvö svæði með tveim blómapottum eða hellum sitthvoru megin og láttu opin helst snúa frá hvort öðru.
User avatar
EymarE
Posts: 54
Joined: 05 Dec 2007, 11:28
Location: Grundarfjörður

Post by EymarE »

Þakka þér fyrir vargur. very very helpful ;)

Það vill ekki svo skemmtilega til að þið eigið tvo litla firemouth í búðinni hjá ykkur ;)
Eymar Eyjólfsson
Post Reply