
Ég er hérna voða ný á spjallið og einnig í fiskaáhuga... enda er ég alveg með í maganum við að skrifa hérna...þið vitið svooo margt og ég bara "döööööö"

En ég vil endilega kynna mig og gá hvort þið getið ekki hjálpað mér þegar mér vantar hjálp.
En já. Ég er hún Rós og ég á hérna rosa flott búr


En ég á 3 gúbbí, 2 kerlingar og 1 karl sem mér finnst bara flottasti gúbbíkarl sem ég hef séð!!!
Ætlaði að senda inn mynd en auðvitað kláraðist batterýið þannig að það tókst ekki..en seinna barasta.
Og þau eru nú komin með 20 seyði til samans, önnur kom með 16 stykki og hin 4(hin örruglega étin)
var með þær í svona gotbúri en önnur þeirra panikkaði og hoppaði upp úr og átti ungana sína í stóra búrinu.
En svona gerist. Ég er ekkert að rækta en hef samt áhyggjur af seiðunum. Og vil því passa þá.
En ég er með fullt af gróður og flottum sandi sem seiðin geta svo sem falið sig í. og líka rót.
En svo er ég með um 10 stykki svarta neon og 11 bláa neon og svo er ég með um 8 stykki af.. jæja þá sjáið þig hvað ég er ofboðslega ný í þessu, en ég veit ekki hvað þessi tegund heitir. En þeir eru svona appelsínubleikir með svartann þríhyrninng alveg helminginn af búknum og niður að sporð, en ekki sporðurinn sjálfur.
Ég held ég sé með of lítið búr fyrir þessa fiska, eða sem sagt rétt sleppur.
En við ætlum að fá okkur hornfiskabúr í sumar og mér hlakkar svo til að mér kitlar allstaðar

En seiðin mín lifa nú í litlu búri og mér langar...þetta er bara hugmynd ekkert ákveðið, en þegar við fáum hornbúrið, að þá fara seiðin yfir í þetta búr sem fiskarnir eru í , svo ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af hita og ljós og ég vorkenni þessum seiðum svo, ég set nýtt og nýtt vatn til þeirra svo þeir fá eitthvað af hita frá gamla búrinu (líka svo það séu sama bakteríur og allt því um líkt í báðum búrum) en seiðin eru bara í stofu hita því ég veit ekki til að það sé til svona lítill hitari, en þeir geta nú lifað þar til í sumar þarna...vona ég. komu nú um áramótinn og dafna vel, fljótari að stækka en mér var sagt.
En nú nokkrar kjánaspurningar...sem mér finnst bara hljóma vel. so spare with me.
En hinir fiskarnir..neon og þessi sem ég þekki ekki nafnið á.
Eignast þeir eitthvað seiði svona? er það ekki sjaldgæft nema hjá ræktendum? og ef þeir eignast seiði...hvernig líta þeir út.. eins og gúbbí seiðin eða eitthvern vegin öðruvísi.
Ég talað við vínkonu mína í gegnum síma í gær um eitthverjar kúlur í búrinu mínu. Hún sagði mér að taka það upp EF það skildu vera egg og ég lýsti því fyrir henni, sem sagt hvítar mattar kúlur...en hún fann alltaf á netinu eitthvað með svörtum doppum..ég sá það ekkert. En jæja ég reyndi að ná því en þetta var bara fast á glerinu á yfirborðinu, hreyfðist svo sem fram og til baka , upp og niður en ekki frá búrinu og ég bara náði því ekki, endaði með að gúbbí liðin urðu forvitin og þá fór ég í slag við þá

og svo eitt annað þar til seinna...ég sá hvítann pínupínupííínu lítinn orm, ég reyndi að ná honum en hann var í gúmmíinu við hornið..undir því eitthvern vegin og það náði ekkert að bíta á hann og ég veit ekkert hvar hann er núna, ég tók upp sjúkdómabæklinginn minn og sá þetta ekki neinstaðar...hafiði hugmynd? eitthver sjúkdómur eða bara ormur sem fiskar finnst bara nammi gott??
Heyriði já held ég sé búin...og já ég er ein afþeim stelpum sem virðast aldrei hætta að tala....

