Ha ha, mér er alls ekki illa við saltið, það bara heillar mig nákvæmlega ekki neitt.
Ég tek samt stundum út pirring á saltinu vegna fólks sem heldur að ekki séu til fallegir og litmiklir ferskvatnsfiskar.
það er náturlega bara þvæla,tld discusarnir.aftur á móti held ég að fallegasta monsterið sé sallt fiskur.dreka múrena erfit að finna góða mynd af dyrinnu svo er náturlega ljónafiskur
ulli wrote:það er náturlega bara þvæla,tld discusarnir.aftur á móti held ég að fallegasta monsterið sé sallt fiskur.dreka múrena erfit að finna góða mynd af dyrinnu svo er náturlega ljónafiskur
ja ég var að leita að heildar mynd af dyrinnu,fann nokrb en allar lélegar.ps dragon moray kostar í kringum 100þ svo hann er ekkert á leiðinni í búrið mitt
Til lukku með diskusana það er fyrst að segja að ég er sennilega með 2 sistkin þeirra grunar reyndar að um 2 hænga sé að ræða. ég er á margan hátt sammála þér að við endum í gubbunum þegar að við erum búnir að fara allan hringinn. Enda á ég slatta af þeim, en enn og aftur til lukku og gaman af að þeir skyldu hrigna hjá þér og nú er bara að bíða og sjá hvort þeir passa þetta og fara alla leið í seiði hjá þér.
Myndana tók hún Brynja en hún mætti ásamt fleirum á Skrautfisks fund sem var hér heima. Ég hef sjálfur ekkert verið að angra greyin en allt virðist í himnalagi þrátt fyrir mikinn umgang gesta við búrið.
Það er ekki ólíklegt að umgangurinn hafi haft eitthvað að segja en þýðir ekkert að grenja yfir því.
Dælan er kannski ekki besti staðurinn en ég hef ekki miklar áhyggjur af því að seiðin sogist í þessar dælur, yfirborðið sem vatnið fer í gegnum er það mikið að hún sogar ekki af miklum krafti inn, auk þess er útblásturinn á hálfum krafti. Ef mér hefði litist illa á það þá get ég alltaf slökkt á dælunni. Ég ætla þó að koma einhverjum betri hrigninga stað fyrir þau eða bara færa þau í búrið við hliðina.
Diskusahjónin eru komin með þennan fína tveggja hæða blómapott og sleppa þá vonandi að hrygna aftur á dæluna.
Annars er ekkert nema gott að frétta af þeim, éta vel og virðast almennt nokkuð sátt og róleg. Þetta er eiginlega bara hundleiðinlegt, hvar er allt vesenið ?
Ég bíð spenntur eftir að sjá hvernig hrygningarnar fara hjá þér... Svo þegar þú ert búinn að mastera þetta þá hermi ég bara eftir þér, mínir ættu að verða kynþroska einhvertíman um það leyti
Þegar að diskusarnir þínir hrigna næst þá dælan í burtu (og þá er mér slett saman hvar þau hrigna á dæluna eða ekki) og búrið á loft og þá er það ok að nota svampdælu á loftið. lítil birta er kostur en mirkur ókostur tíra yfir nóttina er fín og dauf birta yfir daginn, þetta hefur mér reynst best. en straum......gleymdu því lirfurnar þær ráða ekkert við sig í upphafi. Taka tvö takk
Almáttugur Hlynur, ég hreinlega gleymdi að kommenta hjá þér .. er alveg yfir mig hrifin yfir því hvað þetta eru glæsileg eintök OG að þeir eru strax farnir að hrygna hjá þér er frábært!
En þú ert nú sjóaður í þessu, og þó að það farist fyrir ein eða tvær hrygningar þá koma fleiri og Discusarnir fatta smám saman hvað þeir eiga að gera við afkvæmin annað en éta þau.
Ég fékk einmitt 2 síðustu Discusana hennar Vigdísar, semsagt systkin þinna
notarðu hitaveituvatn hjá þeim eða bara kallt vatn?
Ég trúi því að "hitaveituvatnið" sé allra meina bót óg nota það í öll búr og alla mína matargerð og hef aldrei orðið var við kísil eða annað.
Ph mæling sýnir einungis 0.2 stiga mun á heita og kalda vatninu úr mínum krönum.
Last edited by Vargur on 07 Feb 2008, 01:38, edited 1 time in total.