Vatnsskipti með slöngum.
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Vatnsskipti með slöngum.
Þetta geri ég sérstaklega fyrir Birki og vona að aðrir byrjendur geti nýtt sér þetta.
Get ekki hugsað mér að fólk þurfi að ganga í gegn um þá kvöl og pínu að hlaupa um með vatn í könnum, brúsum eða jafnvel tertuhjálmum!
En hér er það sem þarf til:
Millistykki á kranann
Krana:
Tekur svo efri hlutann af:
Skrúfar millistykkið á:
Slanga og svona dót sem passar á millistykkið (oftast selt saman í pakka)
Síðan er "dótinu" smellt á millistykkið:
Það er ekki flóknara en þetta og svo verður að passa upp á að ekki sé beygla á slöngunni.
Passa líka upp á að blanda vatnið áður en slöngunni er skellt í búrið. Það geri ég bara yfir vaskinum og skelli slöngunni í fötu á meðan ég hleyp að búrinu (sumum þætti e.t.v. betra að nota tertuhjálm).
Ath. líka þegar maður tekur slönguna af krananum að tæma vel yfir vaskinum svo ekki fari vatn um allt.

Svona hef ég vatnaskipti
Ein slangan tengd við hreinsidæluna sem dælir úr búrinu og hin slangan við blöndunartæki sem stilt er á 26 gráður og dælir aftur i búrið siðan stilli ég kraftin á blöndunartækjunum þannig að það haldi i við hreinsidæluna.
Þetta læt ég ganga i einn til einn og hálfan tima og vatnið er kristaltært.

- Hrannar E.
- Posts: 98
- Joined: 18 Jan 2007, 06:27
- Location: Grindavík
Gerist ekki einfaldara, ef endinn í búrinu er hærri en hinn endinn myndast sog og vatnið rennur sjálfkrafa úr búrinu, alveg eins og þegar maður notar malaryksugu eða fyrir þá sem það þekkja, eins og þegar maður stelur bensíni.Þegar slangan er orðin full af vatni kippi ég endanum af krananum og þá rennur vatnið sjálfkrafa úr búrinu.
Last edited by Vargur on 18 Jan 2007, 15:46, edited 1 time in total.