Hér er að myndast kanski grundvöllur fyrir einhverjum sér þræði eða sér útfærslu á uppboðsþræði þar sem maður getur boðið i fiska og ýmsa hluti varðandi fiska og fylgihluti þá á ég við fiskabúr,dælur og fleira og alltaf séð hæðsta boð hverju sinni og timan.
Svona eins og á e-bay nema bara i mini sniði
Þetta er virkilega spennandi og hvet forráðamenn Fiskaspjalls.is að skoða og athuga hvort þetta geti gengið.
Spurning hvort gæludýraverslanir hafi áhuga á að bjóða upp á svona siðum?
Kv
Lalli
Sælir spjallverjar.
Vildi færa umræðuna frá uppboðsþráðinum minum með puffernum hingað þvi greinilega þarf að ræða þessa hluti
Hvað mig snertir þá ber að taka uppboði alvarlega og ef menn bjóða i hluti þá ber að standa við boðið þvi annars eru við ekki tekin alvarlega þegar við bjoðum næst i. Þetta snyst um að mynda traust og virða leikreglur sem eru settar i svona sölumensku til að gera uppboðin trúverðug annars getum við bara sleppt þvi að halda uppi þannig þráð.
Endilega tjáið ykkur um þessi mál hérna og hvort menn og konur hafa alment áhuga fyrir þvi að bjóða upp fiska og hluti.
Mér finnst að uppboðin verða synilegri og skemtilegri ef þráðurin er notaður en ekki einkapósturin en auðvitað er hverjum og einum frjálst að hafa sinn hátt á.
Mér finnst að hver ætti að fá að hafa sinn hátt á með tilboðin, ep eða á þræðinum.
Ef viðkomandi þarf t.d. að skreppa frá í 1-2 daga á meðan uppboði stendur er alveg eins von á að hann eigi fjöldamörg tilboð í ep sum jafnhá og einhver lægri.
Mér finnst þessi uppboð líka vera háalvarleg og þeir sem eru að bjóða eiga að standa við sitt, ellegar halda kj.
*edit* Sá sem uppboðið heldur þarf líka að hafa skírar reglur og vera ekki að breyta reglum á miðri leið.
Hvernig svo sem fólk kýs að hafa uppboðsþráðinn sinn þá ætti það að vera skýrt fyrir öllum að koma ekki með innlegg sem kemur uppboðinu ekki við. Og svo auðvitað að taka þessu alvarlega, ekki bjóða nema viðkomandi hafi áhuga á vörunni
Já nákæmlega þetta er og verður alltaf spurning um trúverðugleika og heiðaleika, þessvegna er þetta alltaf alvarlegt þegar menn bjóða fram vöru og einnig þeir sem bjóða i vöruna að standa við sitt
hér er smá viðbót í þessa umræðu.
Ég held að besta lausnin í þessum uppboðum að þau séu alveg á milli kaupenda og seljanda, seljandi setji skilmálana og verði þá að sætta sig við vitleysuna ef einhver er og aðrir skipti sér ekkert af þeirra málum.
Þá verður þetta aldrei alvöru uppboðsþræðir ef hver og einn setur reglur hverju sinni. það verða að gilda lámarksreglur ef þetta á að vera alvöru uppboð en ef menn vilja hafa það eins og það er búið að vera þá verði svo
Kv
Lalli
Það er þá jafnvel spurning um að einhver stjórnandi haldi utan um þetta, menn sendi honum beiðni um að bjóða eitthvað upp og stjórnandi setji inn auglýsingu og taki við tilboðum og haldi utan um allt málið.
Já það eru til reglur fyrir spjallverja sem allir verða að virða og ég þykist vita að flestir fara eftir afhverju ekki að búa til svipaðar reglur sem taka mið af uppboðsþráðum sem allir eiga að virða taki þeir á annað borð þátt i sliku.